Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 18
ÞAR SEM ÉG LAS ÞETTA
HUGSAÐI ÉG: „HVAÐA RUGL
ER ÞETTA? ÉG ER FLJÓTARI
AÐ KEYRA ÞARNA NIÐUR
EFTIR OG TÍNA ÞETTA
UPP EN AÐ LESA ÞENNAN
ÞRÁÐ.“
Aðspurður hvenær hann haf i byrjað að plok ka seg ist Ein ar hafa um árarað ir dáðst að vini s í n u m , T o m m a
Knúts, í Bláa hernum, og kraftinum
í honum. „Svo voru fleiri góðir aðil
ar manni hvatning í þessum efnum
og ég var alltaf að hugsa: „Ég verð
að fara að gera eitthvað, það er ekki
hægt að sitja bara á rassinum.“ Þá
sá ég þetta plokkæði sem var að
fæð ast í Svíþjóð og hugsaði með
mér að kannski gæti ég notað hæfi
leika mína í almannatengslum og
markaðsmálum og búið bara til
svona „plokkæði“ á Íslandi.
Svo hófst þetta í raun í febrú
ar 2018 þegar ég var við störf sem
sam skiptastjóri hjá Hafnarfjarðar
bæ. Ég var að fylgjast með um ræðu
á hverfasíðu um tjörn við Byggða
safnið sem hafði fengið mikið magn
af plastpokum og plast og áldósum
í heimsókn og íbúum blöskraði
þetta vitaskuld.
Ég fór að hugsa hvaðan þetta væri
og hvernig þetta væri tilkomið og
las alls konar kenningar um það
hverj um væri um að kenna. Þar
sem ég las þetta hugsaði ég: „Hvaða
rugl er þetta? Ég er f ljótari að keyra
þarna niður eftir og tína þetta upp
en að lesa þennan þráð.“ Þannig
að ég tók poka úr búrskápnum og
hanska og fór niður að byggðasafni
og hreinsaði þetta bara upp. Þetta
var ekki í starfslýsingu samskipta
stjórans en ég hafði þó séð til Har
ald ar bæjarstjóra nokkra laugar
dags og sunnudagsmorgna tína
upp rusl í miðbænum og ég veit að
það var ekki í hans starfslýsingu
heldur.
Í framhaldi stofnaði ég síðuna
Plokk á Íslandi þann 1. mars 2018
og þá fór þetta allt að rúlla og er
orðið fjöldahreyfing með stóran
hóp öflugra sjálf boðaliða. Því eins
og Mugison segir svo skemmtilega:
„Þú gerir ekki rassgat einn.””
Gott og gefandi
Hvaðan kemur drif krafturinn í
þetta sjálf boðaliðastarf?
„Ég hreinlega veit það ekki en
þetta er sannarlega gefandi og gott
að vera úti í náttúrunni. Svo er
af skap lega gott að finna þakklætið
frá fólki í kringum mann. Guðni
Gunn arsson, vinur minn og leið
bein andi í lífsins lykkjum, hefur
sagt mér að honum finnist upp
vaskið mesta hugleiðslan. Ég upplifi
það reyndar mjög sterkt í þessu.
Svo er það nú þannig að þetta
plokkbrölt mitt hefur hvatt mig
til að láta enn frekar til mín taka í
umhverfismálum og síðasta sumar
tók ég við starfi framkvæmdastjóra
Votlendissjóðs. Þar er ég líka að
vinna að frábærum verkefnum,
með Landgræðslunni og f lottum
fyrir tækjum og stjórn sjóðsins,
sem hafa mikla þýðingu fyrir
umhverfið. Þannig að ég er bara
einhvern veginn kominn alveg á kaf
í umhverfismál og ég nýt þess, það
er mikil lífsfylling að gera eitthvað
í leik og starfi sem hefur einhverja
þýðingu í lok dags og skilur eftir sig
góða tilfinningu.”
Hversu oft plokkarðu og með
hverjum?
„Ég plokka mest á vorin og inn í
sumarið og svo aftur á haustin og
fram að jólum. Það er mitt keppnis
tímabil. Ég set það ekki fyrir mig að
fara einn og svo koma oft plokkarar
úr grúppunni með mér. Konan mín
fer oft með mér, tengdó og syst
ir hennar hafa líka komið með.
Mamma er rosalega dugleg líka en
hún býr fyrir austan þannig að við
förum ekki oft saman. En þetta er
þannig að það þarf ekkert próf,
Bílhúdd í heilu lagi
er það skrítnasta
Í dag er Stóri plokkdagurinn og fólk hvatt til að tína rusl í kringum
heilbrigðisstofnanir og sýna þannig heilbrigðisstarfsfólki þakklæti
um leið og umhverfið er fegrað. Einar Bárðarson hefur verið ötull
talsmaður plokks og stofnaði síðuna Plokk á Íslandi árið 2018.
Einar Bárðarson var ásamt syni sínum að plokka rusl við Reykjanesbrautina þegar ljósmyndari hitti á hann
á Sumardaginn fyrsta en hann segir það bæði gott og gefandi að vera úti í náttúrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
reynslu eða sérþekkingu í þetta. Það
geta þetta allir.”
Hvað er það skrítnasta sem þú
hefur plokkað?
„Það hefur verið ýmislegt en
húddið af Citroen C3 í heilu lagi á
Reykjanesbrautinni var svolítið
sér stakt. En svo er þetta stundum
heil mikil stúdía á mannlegu eðli
og hegðun. Oft stendur maður yfir
einhverju sem maður skilur ekki
hvernig komst þangað og svo veltir
maður líka vindáttum og öðru
fyrir sér. Hvernig stendur á því að
allt safnast saman í þessum enda
svæð isins en ekki hinum megin.
Það getur bara verið skemmtilegt
rannsóknarefni.”
Hefurðu orðið var við einhverjar
breytingar á þessum tíma sem þú
hefur plokkað?
„Við sem plokkum erum á einu
máli um það að breytingar sem
gerð ar voru á reglum í fyrra um
af hend ingar á fríum plastpokum í
búðum eru að skila sér strax. Inn
kaupa pokar og litlu ávaxtapoka
and skotarnir sem voru ógeðslega
erf ið ir viðureignar eru svo gott sem
horfn ir úr náttúrunni og það eru
í raun algjör tímamótatíðindi því
marg ir efuðust um að þetta meinta
mannréttindabrot myndi skila sér.
En það gerði það svo sannarlega.
Mig langar nú líka bara að þakka
umhverfisráðherranum fyrir þenn
an gjörning og ég hvet hann áfr am til
dáða í þrengingum á allri óábyrgri
meðferð á plasti og rusli.”
Rusl á viðeigandi stofnun
Hvaða skilaboðum viltu koma til
sóðanna?
„Big Bárðar is watching you“ –
svarar Einar og skellir upp úr. „– Nei,
ég hef þá trú að það séu í raun engir
sóðar til. Að mestu leyti er þetta
klaufa skapur og lélegur frágangur
á rusli og sorptunnum og slæleg
vinnu brögð á athafnasvæðum, sér
staklega yfir veturinn, sem valda
þessu. Sorpið reynir nefnilega með
öllum ráðum að sleppa frá þeim
sem hugsa illa um það og það er bara
skiljanlegt. En allt rusl á rétt á því að
vera vistað á viðeigandi stofnun.”
Hvernig fer stóri plokkdagurinn
fram?
„Þetta er þriðja árið sem við stönd
um fyrir deginum. Vegna sam komu
banns og óvissutíma vorum við
ekki viss hvort hægt væri að boða
til hátíðarinnar þetta árið en eftir
samráð við Víði Reynis var ákveðið
að kýla á þetta.
Í ár viljum við beina plokk töng
um okkar að heilbrigðisstofnunum
landsins, sjúkrahúsum, heilsu gæslu
stöðvum og dvalar og hjúkr un ar
heimilum. Þannig viljum við sýna
þakklæti okkar í verki, enda hefur
starfsfólk og stjórnendur þess ara
heilbrigðisstofnana verið undir
miklu álagi. Svavar Hávarðsson
plokkkonungur átti þessa frábæru
hugmynd. Hún er fyrst og fremst
tákn ræn. Það er ekki svo að í kring
um heilbrigðisstofnanir lands
ins sé rusl að finna í meiri mæli en
ann ars staðar, en með því að taka
þátt í plokki í kringum heil brigð is
stofnanir getum við, fólkið í land
inu, látið þakklæti okkar í ljós með
þessum táknræna hætti.”
Nánast öll sveitarfélög landsins
taka þátt og hægt er að nálgast upp
lýsingar á heimasíðum þeirra og
samfélagsmiðlum. Deginum skipt
um við upp í tvær plokkvaktir. Sú
fyrri byrjar klukkan 10.00 að morgni
og sú síðari klukkan 13.00. Öllum
er frjálst að taka þátt í hluta skipu
lagðra aðgerða eða deginum öll um,
allt eftir því hvað hentar hverj um
og einum. Hægt er að nálg ast frekari
upplýsingar inn á Plokk á Íslandi á
Facebook og á sam fél ags miðlum eða
heimasíðum sveitarfélaganna.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN