Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 35
Í góðu sambandi
við framtíðina
Hvers vegna Veitur?
Það er líf og fjör í vinnunni, starfsemi okkar er fjölbreytt og samfélagslega mikilvæg.
Starfsfólk okkar hefur frumkvæði og fær tækifæri til að hrinda hugmyndum sínum í
framkvæmd og við leggjum áherslu á jafnvægi vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun
og möguleika til að vaxa í starfi. Okkur er annt um umhverfið, jafnrétti og að koma fram
við hvert annað og viðskiptavini af virðingu.
Nánari upplýsingar á starf.veitur.is
Framtíðin er snjöll
– mótaðu hana með okkur
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2020.
Jafnrétti er okkar hjartans mál!
Vilt þú komast á spennandi samning í málmiðn,
pípulögnum eða rafvirkjun?
Við leitum að jákvæðum og námsfúsum iðnnemum sem hafa lokið
grunndeild málmiðnaðar eða rafvirkjun og langar að bætast í hóp
þeirra iðnnema sem vinna sinn námssamning hjá okkur í Veitum.
Við bjóðum upp á metnaðarfullan námssamning þar sem þú getur
klárað allt starfsnám á einum stað og fengið góðan undirbúning fyrir
sveinspróf. Þú færð skemmtilega og hagnýta reynslu af því að vinna
með fagfólki okkar á fjölbreyttum og lifandi vinnustað sem leitast við
að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, jafnrétti, vinnuumhverfi og
möguleika til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð.
Við veljum í iðnnemastöður þannig að tryggt sé að fjölbreytileiki kynja
sé í nemahópnum – öll kyn eru hvött til að sækja um.
Framkvæmdastjóri
lækninga
Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra lækninga
á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Leitað er að
öflugum leiðtoga til að taka þátt í innleiðingu á endur-
nýjuðu stjórnskipulagi og endurskipulagningu á með-
ferðarstarfi Reykjalundar. Um er að ræða 100% starf og
ráðið er í það til fimm ára frá 1. júní n.k. Möguleiki er á
að sinna klínískri vinnu samhliða stjórnunarstörfum.
Reykjalundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands
íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur
samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Á
Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing með það að
markmiði að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu
þeirra sem þangað leita. Um þjónustuna gildir þjónustu-
samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Reykjalund-
ar. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum
og starfar í tengslum við háskóla á sviði kennslu og
heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
Framkvæmdastjóri lækninga heyrir undir forstjóra og
situr í framkvæmdastjórn.
Hlutverk og ábyrgðarsvið.
Framkvæmdastjóri lækninga er sviðstjóri á meðferðar-
sviði 1 og ber ábyrgð á starfsemi og rekstri sviðsins og
meðferðarteyma sem því tilheyra.
Framkvæmdastjóri lækninga er faglegur yfirmaður
lækninga og ber ábyrgð á allri læknisfræðilegri meðferð
og að hún sé í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu,
lög um réttindi sjúklinga og lög um heilbrigðisstarfs-
menn.
Framkvæmdastjóri lækninga ber ábyrgð á að færsla og
varðveisla sjúkraskrár sé samkvæmt lögum og reglu-
gerðum.
Framkvæmdastjóri lækninga ber ábyrgð á að skapa
aðstæður fyrir klínískt nám læknanema, ásamt fram-
kvæmd sérnáms í endurhæfingarlækningum á Reykja-
lundi og er tengiliður Reykjalundar við háskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur.
• Íslenskt sérfræðileyfi í endurhæfingarlækningum og
reynsla á sviði endurhæfingarlækninga
• Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
• Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla
• Þekking og reynsla af mannauðsmálum
• Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum
samskiptum
• Frumkvæði og metnaður í starfi
Umsókn skal fylgja staðfestar upplýsingar um nám, fyrri
störf, vísindavinnu og reynslu af stjórnunarstörfum.
Umsóknarfrestur er til 9. maí 2020.
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna hjá
Landlæknisembættinu.
Umsókn skal skilað á sérstöku eyðublaði, sem aðgengi-
legt er á vef Landlæknis, til Önnu Stefánsdóttur starf-
andi forstjóra anna@reykjalundur.is, sem einnig veitir
nánari upplýsingar um starfið eða Guðbjargar Gunnars-
dóttur mannauðsstjóra gudbjorg@reykjalundur.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 L AU G A R DAG U R 2 5 . A P R Í L 2 0 2 0