Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 28
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þótt enginn sé að ferðast um þessar mundir er ekki bannað að láta sig dreyma
um staði sem hægt er að heim-
sækja í framtíðinni. Fyrir þá sem
langar til að fara á nýja staði eru
Mið-Austurlönd skemmtilegur
kostur. Það er svolítið eins og að
koma í annan heim að heimsækja
Dúbaí, Abú Dabí og Katar. Þarna
flæða peningar olíukónganna og
þess sjást merki víða í glæsilegum
byggingum.
Allar þessar borgir hafa verið
að byggjast upp á undanförnum
árum og byggingarnar því nýjar
eða nýlegar. Áður en olían kom
til sögunnar bjuggu í borgunum
fátækir hirðingjar. Það var ekki
fyrr en á fjórða áratugnum sem
vinnanleg olía fannst í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum og lífið
tók heljarstökk inn í lúxusinn hjá
heimamönnum.
Samkvæmt TripAdvisor er
Grand-moskan í Abú Dabí í þriðja
sæti yfir vinsælustu staði sem
ferðamenn sækjast eftir að skoða.
Á undan koma Péturskirkjan í
Vatíkaninu í Róm og Taj Mahal
á Indlandi. Á fyrri hluta síðasta
árs komu fjórar milljónir gesta
í Grand-moskuna í Abú Dabí.
Moskan er engin smásmíði og
ekkert var til sparað til að gera
hana sem glæsilegasta. Hún er ein
af þeim stærstu í heiminum.
Vinna við byggingu á Grand-
moskunni hófst árið 1996 og það
tók tólf ár að ljúka henni. Bygging-
in kostaði um 545 milljónir dala en
hún nær yfir svæði sem jafngildir
fjórum stórum fótboltavöllum.
Moskan komst í Heimsmetabók
Guinness fyrir stærsta handofna
teppið sem prýðir bænasvæðið
en það er án allra samskeyta. Auk
Ein glæsilegasta moska í heimi
Hin glæsilega Sheikh Zayed Grand-moska í Abú Dabí hefur gríðarmikið aðdráttarafl og laðar
milljónir ævintýragjarnra ferðamanna frá öllum heimshornum til borgarinnar á hverju ári.
Grand-moskan
í Abú Dabí er
engin smásmíði
og glæsileg eftir
því. Núna er
moskan lokuð
á COVID-19
tímum.
Bænahúsin gerast vart fegurri. Þarna er stærsta teppi í heimi án samskeyta.
þess er stærsta ljósakróna í heimi
í hvelfingunni og sú eina sinnar
tegundar í heiminum. Það eru 82
hvítar marmarasúlur í moskunni,
skreyttar með dýrmætum gim-
steinum og ljósakrónur með 24
karata gullhúð og Swarovski-krist-
öllum hanga eins og demantar í
loftinu.
Moskan dregur nafn sitt af
fyrsta forseta Sameinuðu arabísku
furstadæmanna, sjeik Zayed bin
Sultan Al Nahyan, sem átti hug-
myndina að byggingunni. Eftir
andlát hans árið 2004 var lík hans
grafið í garði moskunnar.
Þessi stórbrotni minnisvarði
var hannaður af sýrlenska arki-
tektinum Yousef Abdelky. Hann
sagðist innblásinn af persneskum
arkitektúr en um 3.000 verkamenn
hvaðanæva úr heiminum komu að
byggingunni.
Smáatriðin voru útfærð á
glæsilegan máta, til dæmis flókið
blómamynstur á súlum og inn-
felldir gimsteinar. Það var breski
listamaðurinn, Kevin Dean, sem
kom að blómaskreytingunum en
hann hefur sagt að það hafi verið
skemmtilegasta verkefni hans.
Kevin vann náið með syni Zayed
sjeiks og segist hafa fengið frjálsar
hendur með listsköpunina. Það
tók hann fjögur ár að klára skreyt-
inguna sem er ótrúlega falleg.
Hann leitaði innblásturs í blóm
sem vaxa í Mið-Austurlöndum.
Moskuna hafa heimsótt margir
mektargestir frá því hún var opnuð
árið 2007. Karl prins og Kamilla
eru þar á meðal. Þau heimsóttu
moskuna í opinberri heimsókn til
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna árið 2016. Tónlistarfólk hefur
einnig komið þarna við á ferðum
sínum og má þar nefna Selenu
Gomez, Justin Bieber, Rihönnu og
marga fleiri.
Það geta allir heimsótt moskuna,
hún er opin daglega í eðlilegri tíð
og það er ókeypis aðgangur. Ströng
öryggisgæsla er við innganginn
en konur fara ekki inn í bygg-
inguna nema í síðum kufli og með
slæðu. Konur þurfa sem sagt að
hylja fætur, handleggi og höfuð.
Karlmenn þurfa að klæðast síðum
buxum. Ef farið er inn í bænahúsið
þarf að taka af sér skó og sokka.
Hægt er að fara í ókeypis
klukkustundarlanga leiðsögn
og fá fræðslu um trúarbrögð og
menningu. Þegar rökkva tekur á
kvöldin er moskan fallega upplýst.
Nauðsynlegt er að hafa sólgleraugu
ef komið er að degi þar sem sólin
endurspeglast í marmaranum.
Best er að heimsækja moskuna
fyrst á morgnana eða seinni-
partinn.
Það eru auðvitað allir með
myndavélar eða síma með sér til
að mynda herlegheitin. Sérstakir
staðir eru merktir þar sem má
taka myndir. Moskan er vissulega
töfrandi og þar er hægt að ná afar
fallegum myndum.
Til að komast í moskuna frá
miðbæ Abú Dabí er f ljótlegast að
taka leigubíl. Það tekur 20 mínútur
og leigu bíla far gjöld eru sanngjörn.
Fyrir þá sem eru í Dúbaí er hægt
að taka rútu eða leigubíl. Einnig
útvega hótel loftkælda einkabíla
fyrir þá sem það vilja.
Þeir sem vilja fara í ferðalag um
moskuna á netinu geta skoðað
heimasíðuna: szgmc.gov.ae/en/
Home
AÐALFUNDUR
GEÐHJÁLPAR 2O2O
Aðalfundur Landssamtakanna Geðhjálpar verður haldinn
í Valsheimilinu Hlíðarenda (salur á 2. hæð)
laugardaginn 16. maí. kl. 14.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf, m.a. kosning nýrra fulltrúa
í stjórn samtakanna og umfjöllun um ársskýrslu og ársreikning samtakanna.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Virðingarfyllst, stjórn Geðhjálpar.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R