Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 6
I samvinnu við:
STÆRSTI
DANSVIÐBURÐUR
NORÐURSINS
dansbandsveckan.se
SAMFELLDUR
DANS Í 7 KVÖLD
6 DANSGÓLF
UNDIR ÞAKI
SVÍÞJÓÐ, MALUNG, 12.-18. JÚLÍ 2020
82 HLJÓMSVEITIR
Pakkaverð í boði frá 75.700 kr.
Nánari upplýsingar gefur
Gunnar í síma: 863 5100
ORKUMÁL „Það sem við sjáum
almennt mjög jákvætt í þessu er að
Landsvirkjun hefur áform um að
stækka núverandi virkjanir í Þjórsá.
Þeir ætla að nýta betur það rask sem
þegar hefur átt sér stað og tengja
það við nýtingu á vindorku,“ segir
Tryggvi Felixson, formaður Land-
verndar, um virkjunarkosti fjórða
áfanga rammaáætlunar.
Orkustofnun sendi í síðustu
viku verkefnisstjórn fjórða áfanga
rammaáætlunar gögn um 43 nýja
virkjunarkosti. Af þeim eru 34 í
vindorku.
„Það er engin tilviljun að áhugi
á vindorku fari vaxandi þar sem
kostnaðurinn hefur farið lækkandi.
Það er samt ekki fyrirsjáanlegt að
eftirspurn eftir raforku verði mjög
mikil á næstunni og það er enginn
orkuskortur. Þetta eru framtíðar-
mál en ekkert sem er beint aðkall-
andi,“ segir Tryggvi.
Óli Grétar Blöndal Sveinsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Landsvirkjunar, segir að kostnað-
urinn við vindorkuna muni halda
áfram að lækka. Hann bendir á að á
tímabilinu 2010 til 2018 hafi kostn-
aður á hverja orkueiningu lækkað
um rúman þriðjung.
Afgreiðslu Alþingis á þriðja
áfanga rammaáætlunar hefur
verið frestað til haustþings sem og
frumvarpi um hálendisþjóðgarð.
Tvö verkefni í vindorku á vegum
Landsvirkjunar voru í þriðja áfanga.
Blöndu lundur, sem verkefnisstjórn
setti í nýtingarf lokk, og Búrfells-
lundur sem var settur í biðflokk.
Landsvirkjun leggur nú fram
breytta útfærslu á Búrfellslundi í
fjórða áfanga en fyrirtækið hefur
verið með tvær vindmyllur á svæð-
inu í rannsóknarskyni. „Þarna eru
aðstæður eins og þær gerast bestar
í heiminum fyrir vindmyllur. Í
öðrum löndum eru myllur settar
út á sjó til að fá meiri vind og betri
nýtni en við fáum þessa nýtni bara á
landi þarna,“ segir Óli Grétar.
Gert er ráð fyrir að 30 til 40 vind-
myllur rísi í Búrfellslundi með
samanlagt af l upp á 120 MW. Óli
Grétar segir að við bestu aðstæður á
Íslandi, eins og í Búrfellslundi, megi
gera ráð fyrir 45 prósenta nýtni.
Miðað við þær forsendur gæti
Búrfellslundur framleitt um 470
gígavattstundir á ári. Árið 2018 var
heildarraforkuframleiðsla á Íslandi
tæplega 20 þúsund gígavattstundir
en aðeins 4,4 þeirra komu frá vind-
orku.
Aðspurður segir Óli Grétar að
Landsvirkjun sjái fyrir sér f leiri
möguleika í vindorku. „Við sjáum
auðvitað að það er gríðarlegur
áhugi á vindorku og margir aðilar
að senda inn margar hugmyndir.
Við höfum verið að einskorða okkur
við þessi svæði sem eru nálægt
okkar rekstrarsvæðum. Þá erum við
nálægt flutningskerfinu og auðvelt
að tengja þessa vindorkugarða.“
Engu að síður séu mörg önnur
áhugaverð svæði og veltir Óli Grét-
ar því upp hvort það fari að verða
kapphlaup um þau bestu.
Tryggvi veltir því líka upp hvort
vindorka gæti nýst á stöðum þar
sem orku vanti og öflugar tengingar
séu ekki til staðar. „Mér finnst líka
spennandi að hugsa hvort þetta
gæti leyst svona staðbundin við-
fangsefni. Svo er kostur að ef við-
komandi starfsemi hættir þá er
hægt að f lytja vindmyllurnar eitt-
hvert annað.“
sighvatur@frettabladid.is
Vaxandi áhugi er á
vindorkuverkefnum
Mikill fjöldi verkefna á sviði vindorku er í tillögum sem verkefnisstjórn um
fjórða áfanga rammaáætlunar hefur fengið sendar. Sviðsstjóri hjá Landsvirkj-
un segir vindorku góðan kost á Íslandi. Kostnaður hefur lækkað mikið.
Landsvirkjun setti upp tvær vindmyllur við Búrfell í desember 2012. Þær hafa gefið góða raun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SUÐURLAND Sveitarstjórnir allra
sveitarfélaganna sem koma að
rekstri Fjölbrautaskóla Suður-
lands, FSu, eru orðnar þreyttar á
aðgerðaleysi vegna heimavistar
við skólann og segja ráðherra
svara engu. Stjórn Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga, SASS, skorar
á Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og
menningarmálaráðherra, að grípa
tafarlaust til aðgerða vegna undir-
búnings húsnæðisúrræðis fyrir
nemendur við skólann.
Rúmir þrír mánuðir eru síðan
þarfagreiningu var skilað til ráðu-
neytisins eins og óskað hafði verið
eftir, segir í fundargerð SASS í byrj-
un mánaðarins. „Þrátt fyrir marg-
ítrekaðar beiðnir af hálfu formanns
starfshóps á vegum SASS og þrátt
fyrir ítrekuð loforð ráðherra um
að svör muni berast þá hafa engin
skýr svör borist frá ráðuneytinu
um stöðu málsins,“ segir í harðorðri
ályktun.
Sveitarstjórnir allra sveitarfélaga
sem koma að rekstri FSu sam-
þykktu í haust samhljóða ályktun
þar sem þess er krafist að starfrækt
verði heimavist við skólann.
Ráðherra var afhent ályktunin á
fundi í september. Þá bendir stjórn
SASS á að aðdragandi málsins sé
þó ekki nýr af nálinni. SASS hafi
ítrekað ályktað um málið frá árinu
2016 þegar starfsemi heimavistar
var hætt og því ekki um nýtt mál
á borði ráðuneytisins að ræða. – bb
Nóg komið af innantómum loforðum
Lilja Alfreðsdóttir
Tónlistarsjóður
Átaksverkefni
í menningu og listum
Auglýst er eftir umsóknum um sérstaka styrki úr
Tónlistarsjóði samkvæmt þingsályktun um sérstakt
tímabundið fjárfestingaátak með styrkveitingum til
menningar- og listaverkefna fyrir almenning.
Átakinu er ætlað að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í
kjölfar heimsfaraldurs.
Skilyrði fyrir veitingu sérstakra styrkja úr
Tónlistarsjóði eru eftirfarandi:
• Verkefnið hefjist eigi síðar en 1. september 2020
og verði lokið fyrir 1. apríl 2021.
• Verkefnið styðji við fjölbreytta starfsemi á sviði
lista og menningar með áherslu á sköpun og virka
þátttöku listamanna í menningarlífi landsmanna.
• Verkefnið uppfylli grunnmarkmið átaksins um að
styðja við eftirspurn og atvinnu til skamms tíma með
arðbærum verkefnum.
• Sýnt sé fram á gildi verkefnis og mikilvægi þess
fyrir landsmenn.
• Styrkveiting sé til undirbúnings, þróunar og framkvæmd
verkefnis.
• Ítarlegar upplýsingar og tímáætlun fylgi verkefnisumsókn.
• Ekki verða veittir styrkir til þeirra sem njóta
listamannalauna í 6 mánuði eða meira árið 2020.
• Reglur um úthlutun þessara styrkja verða rýmri en
alla jafna með úthlutanir úr Tónlistarsjóði. Allir sjálfstætt
starfandi tónlistarmenn og skipuleggjendur
tónlistarverkefna geta sótt um til afmarkaðra og vel
skilgreindra verkefna.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.
á www.tonlistaratak.is.
Umsóknarfrestur rennur út 8. maí 2020 kl. 16.00.
Athugið að ekki er hægt að senda inn umsóknir
eftir þann tíma.
Tónlistarráð
Svo er kostur að ef
viðkomandi hættir
starfsemi þá er hægt að
flytja vindmyllurnar
eitthvert annað.
Tryggvi Felixsson,
formaður Landverndarr
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð