Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 30
Framkvæmdastjóri
lækninga
Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra lækninga
á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Leitað er að
öflugum leiðtoga til að taka þátt í innleiðingu á endur-
nýjuðu stjórnskipulagi og endurskipulagningu á með-
ferðarstarfi Reykjalundar. Um er að ræða 100% starf og
ráðið er í það til fimm ára frá 1. júní n.k. Möguleiki er á
að sinna klínískri vinnu samhliða stjórnunarstörfum.
Reykjalundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands
íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur
samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Á
Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing með það að
markmiði að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu
þeirra sem þangað leita. Um þjónustuna gildir þjónustu-
samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Reykjalund-
ar. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum
og starfar í tengslum við háskóla á sviði kennslu og
heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
Framkvæmdastjóri lækninga heyrir undir forstjóra og
situr í framkvæmdastjórn.
Hlutverk og ábyrgðarsvið.
Framkvæmdastjóri lækninga er sviðstjóri á meðferðar-
sviði 1 og ber ábyrgð á starfsemi og rekstri sviðsins og
meðferðarteyma sem því tilheyra.
Framkvæmdastjóri lækninga er faglegur yfirmaður
lækninga og ber ábyrgð á allri læknisfræðilegri meðferð
og að hún sé í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu,
lög um réttindi sjúklinga og lög um heilbrigðisstarfs-
menn.
Framkvæmdastjóri lækninga ber ábyrgð á að færsla og
varðveisla sjúkraskrár sé samkvæmt lögum og reglu-
gerðum.
Framkvæmdastjóri lækninga ber ábyrgð á að skapa
aðstæður fyrir klínískt nám læknanema, ásamt fram-
kvæmd sérnáms í endurhæfingarlækningum á Reykja-
lundi og er tengiliður Reykjalundar við háskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur.
• Íslenskt sérfræðileyfi í endurhæfingarlækningum og
reynsla á sviði endurhæfingarlækninga
• Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
• Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla
• Þekking og reynsla af mannauðsmálum
• Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum
samskiptum
• Frumkvæði og metnaður í starfi
Umsókn skal fylgja staðfestar upplýsingar um nám, fyrri
störf, vísindavinnu og reynslu af stjórnunarstörfum.
Umsóknarfrestur er til 9. maí 2020.
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna hjá
Landlæknisembættinu.
Umsókn skal skilað á sérstöku eyðublaði, sem aðgengi-
legt er á vef Landlæknis, til Önnu Stefánsdóttur starf-
andi forstjóra anna@reykjalundur.is, sem einnig veitir
nánari upplýsingar um starfið eða Guðbjargar Gunnars-
dóttur mannauðsstjóra gudbjorg@reykjalundur.is
Hlutfall: Fullt starf Tegund: Sérfræðingur
Spennandi tækifæri hjá Ísafjarðarbæ
Umsóknarfrestur til 12.05.2020
Sjá nánar á Job
Byggingarfulltrúi
hms.is
Vilt þú taka þátt í að byggja upp framsækinn
vinnustað sem leggur áherslu á nýsköpun,
aðgengi upplýsinga og stafrænar lausnir
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugum
liðsauka til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar
á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála á Íslandi.
Hlutverk okkar er að stuðla að stöðugleika á
húsnæðismarkaði í þágu almennings auk þess að
tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og
hafa virkt eftirlit með gæðum, öryggi og heilnæmi.
Hagfræðingur á sviði stafrænnar stjórnsýslu HMS
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun í hagfræði eða
sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Afbragðs greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu
og framsetningu upplýsinga
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti opinberlega,
bæði á íslensku og ensku
• Nákvæmni í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Rannsóknir og greiningar á húsnæðismarkaði,
þ.m.t. fasteigna-, leigu-, byggingar- og lánamarkaði
• Þátttaka í söfnun og úrvinnslu upplýsinga á
sviði húsnæðismála
• Útgáfa efnis og skýrslugjöf
• Ráðgjöf til annarra sviða stofnunarinnar og
þátttaka í verkefnum þeirra
• Kynning á greiningingum hagdeildar innan
stofununar og opinberlega
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í hóp öflugra sérfræðinga hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Hagdeildin annast rannsóknir og greiningar, tryggir gott aðgengi að upplýsingum um húsnæðismál og styður þannig við ábyrga
stefnumótun og ákvarðanatöku í málaflokknum.
Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2020.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Arnalds, framkvæmdastjóri
stafrænnar stjórnsýslu HMS thorsteinn.arnalds@hms.is
Sérfræðingur á lánasviði HMS
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun í viðskiptafræði eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði
• Reynsla í sambærilegu starfi er skilyrði
• Nám til vottunar fjármálaráðgjafa er kostur
• Nákvæmni, skipulagshæfileikar og góður
talnaskilningur er skilyrði
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
• Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
• Færni í mannlegum samskiptum og miklir hæfileikar til
að starfa í hópi
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Móttaka og vinnsla lána- og greiðsluerfiðleikaumsókna
• Gerð greiðslumats
• Undirbúningur mála fyrir lánanefnd
• Lánaráðgjöf til viðskiptavina
• Þátttaka í þróun verkferla og kerfa
• Þátttaka í gæða- og umbótaverkefnum
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing í húsnæðislánum á lánasvið stofnunarinnar. Sérfræðingar lánasviðs sjá
um móttöku og vinnslu lánsumsókna, greiðsluerfiðleikaumsókna og greiðslumats ásamt ráðgjöf við viðskiptavini vegna húsnæðislána,
fasteignamarkaðar og leigumarkaðar. Í starfinu felst einnig þátttaka í þróun verkferla og uppbygging kerfa sem snúa að húsnæðislánum.
Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2020.
Nánari upplýsingar veitir María Dungal forstöðumaður
Fræðslumiðstöðvar HMS - Maria.Dungal@hms.is
Margmiðlunarfræðingur/stafrænn snillingur
Hæfnikröfur
• Menntun og reynsla á sviði grafískrar hönnunar
og/eða margmiðlunar eða sambærileg menntun sem
nýtist í starfi
• Hæfileikar til að vinna sjálfstætt og næmt auga fyrir
smáatriðum
• Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
• Hæfileiki til að hugsa út fyrir boxið og leita nýrra lausna
• Frumkvæði og drifkraftur
• Reynsla af vefumsjónarkerfum er kostur
• Þekking á leitarvélabestun og auglýsingakerfi
Facebook og Google er kostur
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Uppfærsla á vef- og samfélagsmiðlum í samráði
við vefstjóra
• Hönnun og uppsetning auglýsinga, kynninga- og
fræðslumyndbanda
• Skapandi og lausnamiðuð hugmyndavinna
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni tengd markaðs-
og kynningarmálum
• Þátttaka í stefnumótun á sviði stafrænnar miðlunar
Um er að ræða starf við hönnun á markaðs- og kynningarefni fyrir vef og prentmiðla, gerð fræðslumyndbanda og uppfærslu á vefum og
samfélagsmiðlum stofnunarinnar. Unnið er náið með vefstjóra í stafrænni vegferð stofnunarinnar. Við leitum að árangursdrifnum og
lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur yfirgripsmikla þekkingu og hæfni á sviði hönnunar og framsetningu efnis fyrir vef- og prentmiðla.
Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2020.
Nánari upplýsingar veitir Hafþór Rafn Benediktsson,
vefstjóri HMS – hafthor.benediktsson@hms.is
Nánari upplýsingar
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og
viðkomandi stéttarfélaga. Í ráðningarferlinu verður óskað
eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi
verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það
orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna
starfinu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur karla jafnt sem
konur til að sækja um starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Umsókn óskast sendar í gegnum
netfangið mannaudur@hms.is
Umsóknum skal fylgja
starfsferilsskrá og
kynningarbréf.