Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 18
ÞAR SEM ÉG LAS ÞETTA HUGSAÐI ÉG: „HVAÐA RUGL ER ÞETTA? ÉG ER FLJÓTARI AÐ KEYRA ÞARNA NIÐUR EFTIR OG TÍNA ÞETTA UPP EN AÐ LESA ÞENNAN ÞRÁÐ.“ Aðspurður hvenær hann haf i byrjað að plok ka seg ist Ein ar hafa um ára­rað ir dáðst að vini s í n u m , T o m m a Knúts, í Bláa hernum, og kraftinum í honum. „Svo voru fleiri góðir aðil­ ar manni hvatning í þessum efnum og ég var alltaf að hugsa: „Ég verð að fara að gera eitthvað, það er ekki hægt að sitja bara á rassinum.“ Þá sá ég þetta plokkæði sem var að fæð ast í Svíþjóð og hugsaði með mér að kannski gæti ég notað hæfi­ leika mína í almannatengslum og markaðsmálum og búið bara til svona „plokkæði“ á Íslandi. Svo hófst þetta í raun í febrú­ ar 2018 þegar ég var við störf sem sam skiptastjóri hjá Hafnarfjarðar­ bæ. Ég var að fylgjast með um ræðu á hverfasíðu um tjörn við Byggða­ safnið sem hafði fengið mikið magn af plastpokum og plast­ og áldósum í heimsókn og íbúum blöskraði þetta vitaskuld. Ég fór að hugsa hvaðan þetta væri og hvernig þetta væri tilkomið og las alls konar kenningar um það hverj um væri um að kenna. Þar sem ég las þetta hugsaði ég: „Hvaða rugl er þetta? Ég er f ljótari að keyra þarna niður eftir og tína þetta upp en að lesa þennan þráð.“ Þannig að ég tók poka úr búrskápnum og hanska og fór niður að byggðasafni og hreinsaði þetta bara upp. Þetta var ekki í starfslýsingu samskipta­ stjórans en ég hafði þó séð til Har­ ald ar bæjarstjóra nokkra laugar­ dags­ og sunnudagsmorgna tína upp rusl í miðbænum og ég veit að það var ekki í hans starfslýsingu heldur. Í framhaldi stofnaði ég síðuna Plokk á Íslandi þann 1. mars 2018 og þá fór þetta allt að rúlla og er orðið fjöldahreyfing með stóran hóp öflugra sjálf boðaliða. Því eins og Mugison segir svo skemmtilega: „Þú gerir ekki rassgat einn.”” Gott og gefandi Hvaðan kemur drif krafturinn í þetta sjálf boðaliðastarf? „Ég hreinlega veit það ekki en þetta er sannarlega gefandi og gott að vera úti í náttúrunni. Svo er af skap lega gott að finna þakklætið frá fólki í kringum mann. Guðni Gunn arsson, vinur minn og leið ­ bein andi í lífsins lykkjum, hefur sagt mér að honum finnist upp­ vaskið mesta hugleiðslan. Ég upplifi það reyndar mjög sterkt í þessu. Svo er það nú þannig að þetta plokkbrölt mitt hefur hvatt mig til að láta enn frekar til mín taka í umhverfismálum og síðasta sumar tók ég við starfi framkvæmdastjóra Votlendissjóðs. Þar er ég líka að vinna að frábærum verkefnum, með Landgræðslunni og f lottum fyrir tækjum og stjórn sjóðsins, sem hafa mikla þýðingu fyrir umhverfið. Þannig að ég er bara einhvern veginn kominn alveg á kaf í umhverfismál og ég nýt þess, það er mikil lífsfylling að gera eitthvað í leik og starfi sem hefur einhverja þýðingu í lok dags og skilur eftir sig góða tilfinningu.” Hversu oft plokkarðu og með hverjum? „Ég plokka mest á vorin og inn í sumarið og svo aftur á haustin og fram að jólum. Það er mitt keppnis­ tímabil. Ég set það ekki fyrir mig að fara einn og svo koma oft plokkarar úr grúppunni með mér. Konan mín fer oft með mér, tengdó og syst­ ir hennar hafa líka komið með. Mamma er rosalega dugleg líka en hún býr fyrir austan þannig að við förum ekki oft saman. En þetta er þannig að það þarf ekkert próf, Bílhúdd í heilu lagi er það skrítnasta Í dag er Stóri plokkdagurinn og fólk hvatt til að tína rusl í kringum heilbrigðisstofnanir og sýna þannig heilbrigðisstarfsfólki þakklæti um leið og umhverfið er fegrað. Einar Bárðarson hefur verið ötull talsmaður plokks og stofnaði síðuna Plokk á Íslandi árið 2018. Einar Bárðarson var ásamt syni sínum að plokka rusl við Reykjanesbrautina þegar ljósmyndari hitti á hann á Sumardaginn fyrsta en hann segir það bæði gott og gefandi að vera úti í náttúrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI reynslu eða sérþekkingu í þetta. Það geta þetta allir.” Hvað er það skrítnasta sem þú hefur plokkað? „Það hefur verið ýmislegt en húddið af Citroen C3 í heilu lagi á Reykjanesbrautinni var svolítið sér stakt. En svo er þetta stundum heil mikil stúdía á mannlegu eðli og hegðun. Oft stendur maður yfir einhverju sem maður skilur ekki hvernig komst þangað og svo veltir maður líka vindáttum og öðru fyrir sér. Hvernig stendur á því að allt safnast saman í þessum enda svæð isins en ekki hinum megin. Það getur bara verið skemmtilegt rannsóknarefni.” Hefurðu orðið var við einhverjar breytingar á þessum tíma sem þú hefur plokkað? „Við sem plokkum erum á einu máli um það að breytingar sem gerð ar voru á reglum í fyrra um af hend ingar á fríum plastpokum í búðum eru að skila sér strax. Inn­ kaupa pokar og litlu ávaxtapoka­ and skotarnir sem voru ógeðslega erf ið ir viðureignar eru svo gott sem horfn ir úr náttúrunni og það eru í raun algjör tímamótatíðindi því marg ir efuðust um að þetta meinta mannréttindabrot myndi skila sér. En það gerði það svo sannarlega. Mig langar nú líka bara að þakka umhverfisráðherranum fyrir þenn­ an gjörning og ég hvet hann áfr am til dáða í þrengingum á allri óábyrgri meðferð á plasti og rusli.” Rusl á viðeigandi stofnun Hvaða skilaboðum viltu koma til sóðanna? „Big Bárðar is watching you“ – svarar Einar og skellir upp úr. „– Nei, ég hef þá trú að það séu í raun engir sóðar til. Að mestu leyti er þetta klaufa skapur og lélegur frágangur á rusli og sorptunnum og slæleg vinnu brögð á athafnasvæðum, sér­ staklega yfir veturinn, sem valda þessu. Sorpið reynir nefnilega með öllum ráðum að sleppa frá þeim sem hugsa illa um það og það er bara skiljanlegt. En allt rusl á rétt á því að vera vistað á viðeigandi stofnun.” Hvernig fer stóri plokkdagurinn fram? „Þetta er þriðja árið sem við stönd­ um fyrir deginum. Vegna sam komu­ banns og óvissutíma vorum við ekki viss hvort hægt væri að boða til hátíðarinnar þetta árið en eftir samráð við Víði Reynis var ákveðið að kýla á þetta. Í ár viljum við beina plokk töng­ um okkar að heilbrigðisstofnunum landsins, sjúkrahúsum, heilsu gæslu­ stöðvum og dvalar­ og hjúkr un ar­ heimilum. Þannig viljum við sýna þakklæti okkar í verki, enda hefur starfsfólk og stjórnendur þess ara heilbrigðisstofnana verið undir miklu álagi. Svavar Hávarðsson plokk­konungur átti þessa frábæru hugmynd. Hún er fyrst og fremst tákn ræn. Það er ekki svo að í kring­ um heilbrigðisstofnanir lands­ ins sé rusl að finna í meiri mæli en ann ars staðar, en með því að taka þátt í plokki í kringum heil brigð is­ stofnanir getum við, fólkið í land­ inu, látið þakklæti okkar í ljós með þessum táknræna hætti.” Nánast öll sveitarfélög landsins taka þátt og hægt er að nálgast upp­ lýsingar á heimasíðum þeirra og samfélagsmiðlum. Deginum skipt­ um við upp í tvær plokkvaktir. Sú fyrri byrjar klukkan 10.00 að morgni og sú síðari klukkan 13.00. Öllum er frjálst að taka þátt í hluta skipu­ lagðra aðgerða eða deginum öll um, allt eftir því hvað hentar hverj um og einum. Hægt er að nálg ast frekari upplýsingar inn á Plokk á Íslandi á Facebook og á sam fél ags miðlum eða heimasíðum sveitarfélaganna. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.