Ljósmæðrablaðið - Aug 2019, Page 10
10 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2019
F R É T T I R Ú R F É L A G S S TA R F I
Starfsárið hefur verið annasamt og hafa 18 stjórnarfundir verið
haldnir á árinu auk þess sem aukaaðalfund þurfti til að kjósa fólk
að nýju í nefndir og stjórn félagsins.
Kjaramál
Kjaramálin mörkuðu fyrri hluta starfsársins þar til lausn náðist í
júlí. Skv. gerðardómi þarf að laga stofnanasamninga á nokkrum
stofnunum og hefur það verið gert nema á einum stað hefur ekki
náðst lending í málinu ennþá. Skv. gerðardómi átti að útbúa fram-
gangskerfi á stofnanir utan LSH þar sem slíkt kerfi er þegar til
staðar. Sú vinna er langt komin. Nánar um miðlægu samningana,
sjá skýrslu kjaranefndar.
Vangoldin laun úr verkfalli 2015
Hæstiréttur dæmdi ljósmæðrum í vil í málinu um vangoldin laun
fyrir unna vinnu í verkfalli. Dómurinn féll í október en talsvert
þref var við ríkið um að fá peningana greidda út. Það hafðist að
lokum og var greitt út þann 1. apríl s.l. Með því var bundinn endi
á nær 4 ára baráttu.
Félagslíf og fræðsla
5. maí 2018 var haldinn á Akureyri og tókst mjög vel til.
Haldinn var fundur fyrir fólk í nefndum og trúnaðarmenn
félagsins haustið 2018 með það í huga að hrinda starfinu af stað.
Félagið bauð í „brunch“ einu sinni á haustdögum og einu sinni
á vorönninni. Það mæltist vel fyrir. Jólafundur var á sínum stað.
Í janúar 2019 var málstofan „Frá fortíð til framtíðar“ haldin í
tilefni 100 ára afmælis Ljósmæðrafélagsins, þar var reynt að fara
yfir öldina og þróunina og einnig var reynt að skyggnast til fram-
tíðar.
Í tengslum við NJF ráðstefnuna nú í maí 2019, voru haldin
námskeið og vinnustofur á vegum Gynzone sem bæði voru vinsæl
og vel sótt bæði af íslenskum og erlendum ljósmæðrum.
Stórafmæli félagsins
Ýmislegt var gert til að minnast 100 ára afmælis félagsins. Lógó
félagsins var fært í hátíðarbúning. Afmælisboð var í gömlu
Rúgbrauðsgerðinni þann 27. mars þar sem vel á annaðhundrað
gesta mættu. Þar voru heiðraðar ljósmæðurnar Ása Marinósdóttir,
María Björnsdóttir og Ólöf Ásta Ólafsdóttir.
Á afmælisdaginn sjálfan þann 2. maí var afhjúpuð hella í
götunni við Laugaveg 20 þar sem félagið var stofnað. Þann sama
dag opnaði Norðurlandaráðstefna ljósmæðra í Hörpu.
Þann 5. maí opnaði í Þjóðarbókhlöðunni sýningin Ljósmæðra-
félag Íslands 100 ára, Við tökum vel á móti þér. Hún mun verða
opin út árið.
Síðar á árinu kemur saga félagsins og félagatal og einnig appið
Fylgja sem er ætlað ljósmæðrum og mun innihalda gagnlegar
upplýsingar til ljósmæðra.
Persónuverndarlögin
Vegna breytinga á persónuverndarlögum eru ýmsar breytingar sem
gera þarf á varðveislu gagna innan félagsins og aðgengi að upplýs-
ingum. Sú vinna er hafin og stendur yfir. BHM félögin hafa
sameiginlegan persónuverndarfulltrúa sem kemur frá Deloitte.
Vefirnir og app
Félagið heldur úti bæði ljosmodir.is og ljosmaedrafelag.is. Ljós-
móðir.is er mjög mikið sóttur vefur og gefur talsverðar tekjur til
félagsins. Appið Ljósan sem er hugsað fyrir væntanlega foreldra
kom út á árinu og hefur hlotið ágætis viðtökur.
Ljósmæðrablaðið
Það koma sem fyrr 2 tölublöð af ljósmæðrablaðinu út árlega.
Félagið hefur undirritað samning við Landsbókasafn um aðgengi
blaðsins frá upphafi á vefnum - timarit.is
Samskipti við heilbrigðisráðuneytið
Félagið hefur átt í samtali um ýmis mál t.d. breytingu á lyfja-
frumvarpi sem loks varð að lögum og gefur nú ljósmæðrum
leyfi til að ávísa getnaðarvörnum. Þetta samtal hefur staðið yfir í
mörg ár. Dropinn holar steininn og loks varð þetta að veruleika.
Vinnu við að útfæra hvernig þessu verður komið við út í praktík-
ina er ekki enn lokið.
Einnig fékkst samþykki ráðherra fyrir að ljósmæður reki
sína eigin móttöku á heilsugæslunni líkt og gert er í Svíþjóð
á heilsugæslustöðvum. Í stuttu máli, þá varð mikil andstaða
lækna til þess að verkefnið rann út í sandinn að minnsta kosti
í bili.
Ráðstefnan
21. Norðurlandaráðstefna ljósmæðra var haldin í Hörpu 2.- 4.
maí og þótti takast mjög vel í alla staði og hafa félaginu borist
mikill fjöldi kveðja frá erlendum þátttakendum. Þátttakendur
voru ríflega 700 frá 27 löndum. Uppgjör vegna ráðstefnunnar
liggur ekki fyrir þegar þetta er skrifað en ljóst er að félagið er
réttu megin við strikið.
Erlent samstarf
Félagið sótti stjórnarfund NJF í Færeyjum 2018, en stjórnar-
fundur NJF 2019 var hér á Íslandi. Lögð var lokahönd á sameig-
inlega yfirlýsingu norðurlandafélagana um hvernig þjónustu
skyldi hagað. Yfirlýsingin hefur vakið mikla athygli annarra
landa. Hildur Kristjánsdóttir lauk sínu tímabili sem forseti norð-
urlandasamtakanna eftir 12 ára starf og við tók Lillian Bondo
frá Danmörku.
Fyrsti fundur hér á landi á vegum ICM var haldinn í maí. Þetta
var fundur á vegum Evrópudeildar ICM og sóttu hann tæplega
50 fulltrúar frá Evrópu.
Félagið sótti stjórnarfund Evrópusamtaka ljósmæðra. Þar var
Twinning verkefni okkar við hollenska ljósmæðrafélagið kynnt.
Twinning verkefnið er nú komið á sitt annað starfsár og gengur
vel. Hollensku ljósmæðurnar voru allar hér á ráðstefnunni með
sínum íslensku kollegum og voru þar með kynningar.
SKÝRSLA STJÓRNAR LMFÍ
FYRIR STARFSÁRIÐ 2018-2019
Flutt á aðalfundi 18. maí