Ljósmæðrablaðið - aug. 2019, Side 16
16 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2019
Í tengslum við Norðurlandaráðstefnuna var í fyrsta skipti haldið doktors-
námskeið um kenningar og hugmyndafræðilega nálgun ljósmóður-
fræða, en það var í boði við námsbraut í ljósmóðurfræði við Hjúkrunar-
fræðideild Háskóla Íslands og haldið dagana fyrir ráðstefnuna.
Námskeiðið var þróað af nýju norrænu samstarfsneti akademískra
ljósmæðra NorNAM sem hefur þann tilgang að efla framhaldsnám og
rannsóknir í ljósmóðurfræði á Norðurlöndunum.
Umsjón með námskeiðinu höfðu prófessorar í ljósmóðurfræði, Ólöf
Ásta Ólafsdóttir frá H.Í., Íslandi og Ellen Blix frá OsloMet í Noregi.
Fjallað var um kenningar og hugmyndafræðilega nálgun ljósmóður-
fræða í barneignarþjónustu og áhrif á kynheilbrigði s.s. í tengslum
við heilsueflingu, sjúkdóma, gagnreynda þekkingu í starfi, gæðaþjón-
ustumódel fyrir barnshafandi konur og nýbura (QMNC) og norrænt
ljósmóðurfræðilegt umönnunarmódel á forsendum kvenna (MiMo).
Menningarlegar aðstæður á Norðurlöndum voru ræddar og nemendur
fjölluðu um eigin rannsóknir í samhengi við hugmyndafræði ljósmóð-
urfræða. Í lok námskeiðs skiluðu nemendur fræðilegri ritgerð um efnið.
Mikil ánægja var með námskeiðið, en þeir 25 nemendur sem sóttu
námskeiðið voru frá Norðurlöndunum (þar af 4 frá Íslandi) en einnig frá
Evrópu s.s. Þýskalandi, Austurríki og Tyrklandi.
Vonir standa til að námskeiðið þróist og verði lyftistöng fyrir ljós-
mæður sem t.d. vilja samtvinna og efla akademíska vinnu í klínísku
starfi. Námskeiðið verði haldið árlega og ferðist milli háskóla á Norð-
urlöndunum.
F R É T T I R
DOKTORSNÁMSKEIÐ FYRIR
NORRÆNAR LJÓSMÆÐUR
TVÆR LJÓSMÆÐUR HLJÓTA FÁLKAORÐU
Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum
þann, 17. júní 2019, sæmdi forseti
Íslands sextán Íslendinga heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu. Meðal þeirra
voru tvær ljósmæður:
Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir ljósmóðir
og hjúkrunarstjóri, Kirkjubæjarklaustri,
sem hlaut riddarakross fyrir framlag til
heilbrigðis- og björgunarstarfa í heima-
byggð.
Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir og
dósent við Háskóla Íslands, hlaut riddara-
kross fyrir störf í þágu ljósmæðra og
skjólstæðinga þeirra. Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir Hildur Kristjánsdóttir
Íslenskir þátttakendur: Embla Ýr, Lilja Þórunn og Birna Gerður. Á myndina vantar
Valgerði Lísu.
Nemendur og kennarar fyrir utan Háskólatorg.