Jólablað

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Jólablað - 01.12.1930, Qupperneq 11

Jólablað - 01.12.1930, Qupperneq 11
*Hvernig fórst þú að borga fyrir hann Friðrik?« Rósa varð nú að segja alla sög- una un meðferð sína á gullpen- ingnum, og leit upp á ömmu sína með tárin í augunum. Gamla konan breiddi út faðminn móti sonardóttur sinrii og vafði hana að sjer og mæiti: • Pakkaðu Guði, barnið mitt, að þú breyttir eftir því sem þitt góða hjarta sagði þjer, og hugsaðir meira um aðra en sjálfa þig, og varst þannig verkfæri í Guðs hendi til að frelsa bróður þinn«. Og á heimili efnamannsins og heimili hinnar fátæku ekkju var sönn jólagleði þetta kvöld. H F vinur 6arnanna. I Á jólunum Jesús fœddist í jötu var rúmið hans, en englarnir sungu og syngja í sálu hvers dauðlegs manns. Því hann var í heiminn sendur á heilagri jólanótt, að minka hjá okkur öllum, /jað alt, sem er dimmt og Ijótt. liann þekkti hvað var að vera svo veikt og lítið barn, hann blessaði litlu börnin svo blíður oo líknargjarn. Hann brosti þeim eins og bróðir, og bros hans var dýrðleg sól; hann fol þau í faðmi sínum og flutti þeim himnesk jói. Hann sá inn í sáiir þeirra, hann sá þeirra hjartaslátt; hann gladdist með þeim í gleði og grjet, ef þau áttu bágt. Þau komu til hans í hópum og hvar sem hann fór og var þá fundu þau blessuð börnin, að bróðurleg hönd var þar. Og því verður heilagt haldið í hjarta og sálu manns, um eiiífð í öllum löndum. á afmœlisdaginn hans. S. J. J.

x

Jólablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað
https://timarit.is/publication/1419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.