Gríma - 01.09.1934, Síða 22
20 SKREIÐARFERÐ INGJALDS OG ARA
hefnt fyrir drenginn, en þess var engínn kostur,
þar sem eg var einn á móti þremur og þeir auk
þess vopnaðir, en eg verjulaus með öllu. Það gat
ekki dulizt mér, að hér voru ekki neinir byggða-
menn á ferð, heldur útilegumenn af lakara tæginu«.
Þeir Ingjaldur og Ari þökkuðu karli söguna,
þægðu honum fyrir skemmtunina og skildu þeir
mestu mátar. — Gekk þeim félögum heimferðin
greiðlega, og lýkur með því sögunni.
— Ingjaldur á Mýri var móðurbróðir heimildar-
manns og sagði honum frá þessu; sömuleiðis Ari á
Stóruvöllum, og bar þeim saman í öllum atriðum.
4.
Frá séra Jönl læría ( Möðrnfelli.
(Eftir handriti Hólmgeirs Þorsteinssonar o. fl. heimildum).
Séra Jón Jónsson, sem almennt hefur verið kall-
aður hinn lærði, var sonur séra Jóns Jónssonar á
Grund í Eyjafirði. Bar snemma á því að piiturinn
var hneigður til dulvísi og einu sinni á skólaárum
hans að sumri til, er hann dvaldi heima á Grund
hjá foreldrum sínum, fór hann eina nóttina að fást
við að vekja upp draug þar í kirkjugarðinum. En
þá var hann ekki orðinn svo lærður í galdri, að
hann næði taumhaldi á draugnum, og rak að þvf
síðast, að hann varð að leita á náðir móður sinnar,
tjá henni vandræði sín og biðja leyfis að mega
hleypa draugsa á eina kúna í fjósinu, til þess að
losna við hann. Leyfði hún honum það, en morg-