Bændablaðið - 06.10.2016, Qupperneq 1
19. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 6. október ▯ Blað nr. 476 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 32.000
Sláturtíð stendur sem hæst og gengur vel:
Meðalþyngd norðan heiða meiri en í fyrra
Sláturtíð stendur nú sem hæst og
gengur vel að því er fram kemur
í samtölum við nokkra sem þar
standa í brúnni. Meðalþyngd
dilka er álíka og var í fyrra
hjá SS, en fyrir norðan er hún
nokkru meiri en á svipuðum tíma
á liðnu hausti. Hagstætt veðurfar
í vor og sumar skýrir að mestu
hversu vænt fé kemur af fjalli nú
í haust.
„Það gengur mjög vel hjá okkur,“
segir Guðmundur Svavarsson,
framleiðslustjóri hjá SS, um yfir-
standandi sláturtíð. Áætlanir gera
ráð fyrir að slátrað verði um 111
þúsund fjár í haust. Samfelld slátr-
un hófst hjá SS 12. september og
stendur yfir til 11. nóvember.
Gott starfsfólk skilar góðu verki
„Við erum svo heppin að fá sama
fólkið ár eftir ár, sem gengur fum-
laust að sínum störfum. Þetta skil-
ar sér með óyggjandi hætti í góðri
verkun afurða og toppafköstum. Ég
er verulega stoltur af þeim sam-
heldna og metnaðarfulla hópi sem
starfar hjá okkur í sláturtíðinni,“
segir Guðmundur.
Meðalþyngd dilka var í lok sept-
ember 16,5 kíló sem er sama þyngd
og var á svipuðum tíma árið 2015.
Fitueinkunn er 6,14 í ár á móti 5,96
í fyrra og einkunn fyrir gerð var 8,71
í fyrra, en er 8,9 í ár.
Mikilvægt að flytja út til
Bandaríkjanna
Guðmundur segir að sláturhús
SS sé annað af tveimur slátur-
húsum í landinu sem uppfylli
strangar kröfur sem gerðar eru fyrir
Bandaríkjamarkað.
Á dögunum var þar á ferð full-
trúi frá yfirvöldum þar í landi til að
taka út innra eftirlitskerfi, búnað,
aðstöðu, verklag og gæði.
„Það komu ekki fram
athugasemdir og við munum því
áfram geta flutt út til Bandaríkjanna,
sem er mikilvægt og kann að auð-
velda sköpun nýrra tækifæra á erfið-
um tímum í kindakjötsframleiðslu,“
segir Guðmundur.
Sláturmarkaður SS hófst fimmtu-
daginn 22. september og er starf-
ræktur í Hagkaup í Kringlunni. Gert
er ráð fyrir að slátursalan standi yfir
fram undir lok október. Einnig geta
Sunnlendingar gengið að fersku
SS-slátri í Krónunni á Selfossi. Þá
býðst frosið slátur frá fyrirtækinu í
kössum í verslunum um allt land.
„Við bjóðum upp á alvöru kalóner-
aðar vambir sem valkost með slátr-
inu,“ segir Guðmundur.
Langt síðan meðalþyngd hefur
verið svo mikil
Gísli Garðarsson, sláturhússstjóri hjá
SAH Afurða á Blönduósi, segir að
sláturtíð gangi vel og fé komi vænt
af fjalli.
Meðalþyngd nú í ár er um 300
grömmum þyngri en var í fyrrahaust.
Sláturtíð hófst 7. september síðast-
liðinn og lýkur um næstu mánaða-
mót, í lok október. Búið var að slátra
ríflega 43 þúsund fjár í lok liðinnar
viku, en Gísli segir að gert sé ráð
fyrir að í heild verði slátrað um 95
þúsund fjár.
„Það er oft drjúgt hjá okkur í
restina, mikill lokasprettur,“ segir
hann, en starfsfólk er ráðið út
októbermánuð.
Meðalþyngd hjá SAH Afurðum á
Blönduósi er um 17,2 kíló og er meiri
en á svipuðum tíma í fyrrahaust.
„Meðalþyngd hjá okkur er nokk-
uð há, það er langt síðan við höfum
séð svo háar tölur. Sumarið var sér-
lega gott og vorið líka sem skýrir
háa meðalvigt. Við erum að sjá að
margir bændur hér um slóðir eru
að ná allt að 20 kílóa meðalvigt,“
segir Gísli.
Lítur vel út hjá Norðlenska
Sigmundur Hreiðarsson, vinnslu-
stjóri á sláturhúsi Norðlenska á
Húsavík, segir að áætlað sé að slátra
um 94 þúsund fjár í yfirstandandi
sláturtíð sem stendur yfir fram undir
mánaðamót. Í lok liðinnar viku var
búið að slátra um 44 þúsund fjár.
„Meðalþyngdin eftir þessi 44.000
er 17,01 kg og klárt að við erum að
tala um töluverða breytingu frá
2015, þar sem meðalþyngd var 15,88
kg, holdfylling er þó nokkuð betri
og aðeins meiri fita, svo þetta lítur
miklu betur út,“ segir Sigmundur.
Hann segir að slátrun hafi gengið
vel fram til þessa, „enda erum við
með mjög sterkan kjarna af starfs-
fólki og það starfsfólk sem kemur
að er í flesta staði mjög gott og til
fyrirmyndar,“ segir hann og bætir
við að flutningaaðilar séu öflugir og
í mjög góðu samstarfi við bændur
á svæðinu.
„Svona verkefni sem sláturtíð er
getur aldrei gengið vel nema allir
þessir þættir vinni saman.“
Fer vel af stað hjá KS
Sláturtíð hefur farið vel af stað hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga, KS á
Sauðárkróki, en hún hófst þann 13.
september og áætlað að henni ljúki
28. október næstkomandi.
Edda Þórðardóttir, skrifstofustjóri
hjá KS, segir að í lok liðinnar viku
hafi verið búið að slátra um 43 þús-
und fjár og var meðalfallþungi 17,01
kíló sem er aðeins meira en var á
svipuðum tíma í fyrrahaust, þegar
meðalþyngdin var 16,44 kíló. /MÞÞ
Heimir Ásgeirsson var alveg með þetta þegar fé var dregið í dilka í glænýrri Gljúfurárrétt í Grýtubakkahreppi í síðustu viku. − Sjá myndasyrpu á bls. 26. Mynd / Þorsteinn Friðriksson
Hagstætt veðurfar í vor
skilar metuppskeru
4 21-22
Ótti við nýja
efnahagslega
helför
7
Eimverk bruggar
úr 60 tonnum af
íslensku byggi