Bændablaðið - 06.10.2016, Side 4

Bændablaðið - 06.10.2016, Side 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016 Fréttir Kjötborðið er markaðstorg á vefnum með íslenskt lambakjöt: Milliliðalaus samskipti bónda og viðskiptavinar – fyrirhugað er að auka kjötúrvalið á næstu dögum Þann 29. september var nýtt mark aðs torg með íslenskt lamba- kjöt opnað á vefnum, á slóðinni kjotbordid.is. Að sögn Vignis Más Lýðssonar, eins af aðstandendum Kjötborðsins, hefur Kjötborðið farið vel af stað. „Þeir bændur sem voru með framboð inni á torginu seldu töluvert strax á fyrsta degi. Við finnum fyrir miklum áhuga, sér í lagi frá neytendum á höfuðborgarsvæðinu enda margir sem ekki þekkja til í sveitinni. Við sáum í haust að stór hópur bænda hafði byrjað að auglýsa sína fram- leiðslu á hinum ýmsu síðum á netinu en okkur taldist lauslega til að um 70 aðilar væru að selja hver í sínu horni. Við ákváðum að setja upp vettvang sem auðveldaði bæði þeim að koma vörum sínum á framfæri og neyt- endum að finna allan þennan fjölda. Þetta var ákveðið tilraunaverkefni og var fjöldi notenda og framboð takmarkað í upphafi. Við stefnum á að auka fjölda bænda og framboð á næstu dögum,“ segir Vignir og bætir því við að fimm bændur séu núna þátttakendur í Kjötborðinu. Öll viðskipti fara fram á vefn- um og þar geta viðskiptavinur og sauðfjárbóndi átt í milliliða- lausum viðskiptum. Afhending er samkomulagsatriði og geta við- skiptavinir í einhverjum tilvikum sótt kjötið beint á bæinn, eða feng- ið það sent heim. Aukið vöruúrval á næstu dögum Vignir segir að þeir bændur sem vilja selja kjöt í gegnum Kjötborðið þurfi að vera með öll leyfismál í lagi. Þeir þurfa að stofna aðgang fyrir sig og skrá viðeigandi upplýsingar. Fólk hafi nú í byrjun val um að kaupa kjöt af nýslátruðu eða fros- ið og í byrjun eru í boði heilir og hálfir skrokkar. „Á næstu dögum stefnum við að þvi að bæta við framboði, m.a. á nauta-, folalda-, grísa- og hreindýrakjöti, sem og gæs og fleira, svo sem fullunn- um vörum á borð við hakk, gúllas og reykt kjöt. Von bráðar munum við byrja að taka við pöntunum á hangikjöti, bæði venjulegu og tvíreyktu, og vonumst við til að fá sem flesta bændur til að taka þátt í því en við stefnum á að senda stóra sendingu til Norðurlandanna í desember.“ Að sögn Vignis stendur ekki til að opna hefðbundna verslun í eigin húsnæði alveg strax. „Kjötborðið er eingöngu á vefnum en við sér- hæfum okkur í uppsetningu og viðhaldi netkerfa fyrir deilihag- kerfið, það er vefsíður þar sem kaupendur og seljendur geta átt milliliðalaus viðskipti og haldið utan um greiðslur og pantanir. Við stefnum ekki á að opna verslun strax, en við sjáum til hvernig þessi tilraun heppnast. Sendingarkostnaður er inni- falinn í verðinu í Kjötborðinu, nema annað sé tekið fram. Bænd- um er greitt vikulega út, á föstu- dögum, fyrir sölu síðustu sjö daga. Þóknun Kjötborðsins er 15 prósent af söluverði. /smh Eiður Gunnlaugsson, formað- ur stjórnar Kjarnafæðis, segir það hafa verið óskemmtilega ákvörðun að lækka verð til bænda nú í yfirstandandi slát- urtíð. Hún hefði hins vegar verið óhjákvæmileg. Kjarnafæði á og rekur SAH Afurðir á Blönduósi og á að auki hlut í sláturhúsinu á Vopnafirði. Eiður mætti á fund félaga sauðfjárbænda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum sem haldinn var á Hrafnagili nýverið. Benti Eiður á að félagið hefði eflaust ekki fengið afurðalán nema vegna þess að gripið var til þess ráðs að lækka verð á afurðum til bænda nú í haust. „Ef þið væruð ekki til, værum við það ekki heldur. Okkur er það þvert um geð að rýra tekjur annarra,“ sagði Eiður á fundinum. Hann gat þess jafnframt að Kjarnafæði væri í einkaeigu og það væri fyrst og fremst mat- vælaframleiðandi sem hefði í sjálfu sér ekki endilega áhuga fyrir því að hafa rekstur sláturhúsa á sinni könnu. Menn gætu velt fyrir sér af hverju félagið hefði gert tilboð í Norðlenska í fyrravor. „Það var kannski okkar framlag í þá átt að fækka sláturhúsum í landinu,“ sagði hann. Skylda okkar að grípa inn í Kjarnafæði hefur átt hlut í slátur- húsinu á Blönduósi í yfir 30 ár. Leitað var til félagsins þegar svo var komið að verulega hafði sigið á ógæfuhliðina. Greindi Eiður frá því að Kjarnafæðismenn hefðu í fyrstu ráðlagt Húnvetningum að leita til nágranna sinna hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, KS eða jafnvel til SS. Ekki hafi verið vilji fyrir því meðal heimamanna á þeim tíma. „Við vorum beðnir um að grípa inn í og við gerðum það, fannst það skylda okkar vegna mikilla og góðra tengsla frá fyrri tíð,“ sagði Eiður. Kvað hann útlitið bjartara nú en var í fyrra, svo framarlega sem menn missa verð ekki meira niður en orðið er. /MÞÞ Eiður Gunnlaugsson, formaður stjórnar Kjarnafæðis: Þvert um geð að rýra tekjur annarra – Ákvörðun um lækkun á verði til bænda var samt óhjákvæmileg Eiður Gunnlaugsson, formaður stjórnar Kjarnafæðis, og Ólafur Rúnar Ólafs- Mynd / MÞÞ KS lækkar afurðaverð á nautakjöti tímabundið Kaupfélag Skagfirðinga, KS, hefur lækkað verð á nautakjöti, ný verð- skrá tók gildi um nýliðin mánaða- mót, 1. október síðastliðinn. Edda Þórðardóttir, skrifstofustjóri hjá KS, segir að um tímabundna lækkun á verði sé að ræða og sem dæmi lækkaði verð fyrir UN gripi um 10 krónur á kílóið og 15 krónur fyrir K gripi. Edda segir að miklir biðlistar hafi myndast nú í haust og verið sé að reyna að vinna sig niður listann. „Framboðið er mikið, það er það reyndar alltaf á þessum árstíma þegar bændur eru að koma gripum sínum á hús fyrir veturinn og senda kýr í sláturhús,“ segir Edda. Gerður hefur verið tímabundinn samningur við vinnslurnar um að taka meira inn til sín þegar toppurinn er hvað mestur. /MÞÞ Kartöflurækt á Seljavöllum í Hornafirði: Hagstætt veðurfar í vor og sumar skilar metuppskeru Metuppskera varð í kartöflu- görðum Hjalta Egilssonar á Seljavöllum í Hornafirði nú í haust. Hann er með garða á 22–23 ha lands og var uppskeran á bilinu 30 til 35 tonn á hektara. „Þetta er alveg prýðileg uppskera, líkast til það mesta sem við höfum tekið upp hér frá því við hófum kart- öflurækt,“ segir Hjalti. Hagstætt veðurfar skiptir þar mestu að sögn Hjalta, vorið var sérlega gott og sumarið einnig. Upptökustörf fyrir sumarmarkað, sem Hjalti og hans fólk leggur tölu- verða áherslu á, hófust 2. júlí sem er óvenju snemmt. „Við höfum aldrei getað byrjað svo snemma fyrr, þetta er því frekar óvenjulegt, en gekk engu að síður mjög vel,“ segir hann. Bætir við að þar skipti gott veðurfar á liðnu vori miklu, en hægt var að setja niður með fyrra fallinu. Kláraði fyrir haustrigningar Fullsprottið var í görðum við Seljavelli strax í byrjun ágúst og var hafist handa af fullum krafti við upptöku rétt um viku af ágúst- mánuði. Það segir Hjalti að hafi verið mikið lán, því að langmestu tókst að ljúka upptöku áður en haustrigningar hófust síðari hluta þess mánaðar. „Þær voru í fyrra fallinu þetta árið, haustrigningar hér um slóðir dundu hér yfir okkur fyrr en vant er, en þær gera að verkum að ómögu- legt er að taka upp, ekkert hægt að komast um garðana fyrir bleytu. Við lukum okkar upptökustörfum á fystu dögum septembermánaðar og náðum því að koma öllu í hús áður en bleytutíðin hófst,“ segir hann. „Við vorum heppin, það slapp til að ná öllu upp úr görðunum fyrir haustrigingar.“ Varla þörf á innflutningi Hjalti segir að uppskera í fyrrahaust hafi verið með besta móti, en hún sé enn betri í ár. Hann segir að svo sé einnig á svæðinu í kringum hann og gera megi því ráð fyrir að mikið verði til af góðum kartöflum fram á næsta ár. Það ætti því ekki að þurfa að koma til innflutnings á kartöflum á næsta söluári. Hjalti ræktar rófur á tæpum hekt- ara til viðbótar við kartöflurnar, segir þá ræktun aukabúgrein einkum til gamans. Uppskera er einnig meiri þar en vant er. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.