Bændablaðið - 06.10.2016, Page 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Í sumarfríinu mínu tók ég að mér
fyrir kunningja minn í Englandi
að keyra bíl fyrir hann og 10 vini
hans hringinn í kringum landið
á bíl með farangur og varahluti.
Eftir smá umhugsun valdi ég
nýjan fjórhjóladrifinn Volkswagen
Caravelle eftir ráðgjöf frá vini
sem á svona bíl og ferðast mikið
við starf sitt sem pípulagninga-
maður og lætur vel af sínum VW
Caravelle, oft yfirhlöðnum af verk-
færum og rörbútum í langkeyrsl-
um.
Caravelle stóðst allar kröfurnar
sem gerðar voru til bílsins
Það sem bíllinn þurfti að geta var
að bera nauðsynlegan útbúnað
fyrir mótorhjólafólk í langferð,
farangurstöskur fyrir 12, ásamt
varahlutum og verkfærum. Einnig
að geta tekið mótorhjól inn í bílinn
ef hjól bilaði. Bíllinn þurfti líka að
komast suma seinfarna fjallvegi
og yfir nokkrar lækjarsprænur á
fyrirhuguðum vegum.
Eftir að hafa tekið sæti fyrir
5 úr bílnum var lagt upp í 3.300
km hring um landið. Framan af
var bara malbik, en þegar komið
var á Norðausturland var byrjað á
malarvegum, bröttum og hlykkjótt-
um fjallvegum. Þetta leysti bíllinn
vel með ágætis fjöðrun og kraft-
mikilli vél. Sem dæmi þá prófaði
ég nokkrum sinnum að bæta við
hraðann upp bröttustu brekkurnar
og engin var sú brekka sem bíllinn
bætti ekki við hraða í þessum til-
raunum mínum. Beygjuradíusinn
er góður, 13,2 metrar sem hent-
aði vel í kröppustu beygjunum á
hlykkjóttustu fjallvegunum.
Þægilegur í akstri,
en mætti vera hærri
Að keyra bílinn á malbiki er mjög
gott og ekki ósvipað og hvern
annan fólksbíl, rann nánast hljóð-
laust eftir veginum. Þrátt fyrir að
vera töluvert hlaðinn var hann
fljótur að ná hraða þegar þurfti að
taka fram úr hægfara bílum.
Á malarvegum heyrðist örlítið
steinahljóð undir bílnum miðjum
þegar steinar spýttust upp undir
bílinn, en mottan sem er á gólfinu
er einangruð sem dempar hljóðið
verulega.
Fjöðrunin er góð, en það eina
sem ég taldi mig þurfa að varast
á vondum malarvegum var að
höggva ekki hliðarnar í 17 tommu
dekkjunum á hvössum steinum á
sumum vegunum. Persónulega
myndi ég vilja að bíllinn væri á
16 tommu felgum með belgmeiri
dekkjum, en það er ekki hægt
vegna stærðar bremsudælanna. Til
er lausn á þessu sem er auðveld og
kostar ekki mikið. Það er að setja
tommu klossa undir gormana til
að hækka bílinn sem gerir manni
kleift að stækka dekkin undir bíln-
um um tvö númer og fá þannig
betri fjöðrun út úr dekkjunum og
hærri bíl sem hentar betur á veg-
slóðum og í snjó.
Eyðsla lítil miðað við kraft
vélarinnar
Bíllinn er með ýmsum aukabún-
aði sem er orðið í flestum bílum
samanber stöðugleikastýringu,
aukamiðstöð í farþegarými, USB,
AUX og SD kortarauf og fleira.
Bíllinn sem ég ók var grunnút-
gáfa af VW Caravelle, beinskiptur
með 2,0 l dísilvél sem skilar 150
hestöflum.
Samkvæmt aksturstölvunni var
ég oftast að eyða á bilinu 7,2 lítrum
á hundraðið og upp í 7,9 lítra, en
uppgefin eyðsla samkvæmt bæk-
lingi er 6,5 lítrar á hundraðið.
Það sem ég fann að bílnum var
að ljósin þurfti ég að kveikja til að
fá afturljós á bílinn svo að ég væri
löglegur í umferð.
Þá hefðu mátt vera fleiri 12
volta tengi í bíl sem ætlaður er
fyrir marga farþega, sem allir eru
með síma og fleira sem þarfnast
rafhleðslu.
Á drullugum malarvegi varð
bíllinn eitt drullusvað, en mér
fannst koma aðeins of mikil drulla
inn fyrir gúmmílistana í hurðar-
fölsunum miðað við marga aðra
bíla.
Grunnverðið á bílnum er
7.290.000, en með smá viðbótar-
pening til að hækka bílinn, en
núverandi lægsti punktur er 20,2
sentímetrar, örlítið með stærri
dekkjum væri maður kominn á
fínan 9 manna bíl sem hentar vel
bæði í snjó og á fjallvegum.
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Fullhlaðinn með þungt mótorhjól, samt góður kraftur. 17 tommu dekkin eru með of lágan belg fyrir grýtta malarvegi, en auðvelt
að breyta.
Útsýni er gott úr bílnum og gott aðgengi bæði að aftan og um hliðarhurð. Eftir þessa drullu þurfti líka að þvo öll hurðarföls.
Hæð 1.990 mm
Breidd 2.297 mm
Lengd 5.406mm
Helstu mál og upplýsingar
Myndir / HLJ
Bændablaðið
Kemur næst út
20.
október