Bændablaðið - 06.10.2016, Page 10

Bændablaðið - 06.10.2016, Page 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016 Fréttir Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur frá því breyting var gerð á umdæmum lögreglu og sýslu- manna í júní árið 2014 gert athugasemdir við að ekki var gert ráð fyrir mannaðri lög- reglustöð á Hvammstanga. Byggðarráð sveitarfélagsins hefur sett fram þá skýlausu kröfu að öryggi íbúa og ferðamanna í Húnaþingi vestra verði tryggt með mannaðri lögreglustöð á Hvammstanga. Farið hefur verið fram á við innanríkisráðuneytið að fjölgað verði í lögregluliðinu á Norðurlandi vestra til að svo megi verða. Alvarleg staða Í bókun frá fundi byggðarráðs er greint frá fundi sem fulltrú- ar sveitarfélagsins áttu með innanríkis ráðherra í liðnum mánuði vegna stöðu löggæslumála í Húnaþingi vestra. Sá fundur var haldinn í kjölfar þess að bíll fór í höfnina á Hvammstanga og maður sem í honum var lést. Það tók lög- reglu tvo klukkutíma að koma á staðinn. Á fundinum voru, auk Ólafar Nordal innanríkisráðherra, þær Þórunn Hafstein og Ingilín Kristmannsdóttir skrifstofustjór- ar. Fram kemur í bókun byggð- arráðs að atburðurinn sé litinn alvarlegum augum í ráðuneytinu og að allra leiða verði leitað til að koma í veg fyrir að slíkt komi fyrir aftur. Farið var yfir gögn sem málinu tengjast, m.a. bréf Geirs Karlssonar, yfirlæknis á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga, sem hafði borist til ráðuneytisins, og bréf Björgu Bjarnadóttur, yfirsálfræðings Húnaþings vestra. Aukið álag og mikið óöryggi Í bréfi Bjargar er fjallað um aukið álag á félagsþjónustu sveitarfélags- ins vegna skorts á löggæslu m.a. vegna úrvinnslu áfalla þegar óhöpp verða á vegum og lögregla kemur ekki á staðinn sem og óöryggi íbúa þegar lögregla er ekki til staðar þegar á reynir. Jafnframt var farið yfir áhyggjur byggðarráðs á skorti á landfræðilegri þekkingu starfsfólks Neyðarlínunnar 112. Byggðarráð hélt á loft þeirri kröfu sinni og sveitarstjórnar að á Hvammstanga verði sett upp mönnuð lögreglustöð til að tryggja öryggi og jafnræði íbúa í lögreglu- umdæminu. Fram kemur í bókun- inni að mannaðar lögreglustöðvar séu í tveimur sýslum af þremur og að vegalengdir séu slíkar að við- bragðstími er alls ekki viðunandi. /MÞÞ Hvammstangi, Húnaþingi vestra: Skýlaus krafa um mannaða lögreglustöð Náttúrustofa Austurlands fagn- ar framtaki Náttúruverndar- samtaka Austurlands að berj- ast gegn ónýtum girðingum. Á heimasíðu þeirra (http://www. nattaust.is/) segir eftirfarandi: „NAUST fékk styrk frá umhverfisráðuneytinu til að standa straum af hvatningarátaki á starfs- svæði sínu til að fjarlæga ónýtar girðingar. Átakinu er ætlað að beina sjónum að þeim hættum sem stafa af ónýtum girðingum sem og því lýti sem þær eru í landslaginu.“ Flest ár fréttir Náttúrustofan af einu eða fleiri hreindýrum sem drepast í girðingum eða öðrum vír. Einna verst er þetta um fengitímann, þ.e. seinni hluta september og október. Þá stanga tarfarnir ýmislegt sem fyrir þeim verður þ.á m. ónýtar girðingar sem vilja festast í hornum þeirra. Ef það gerist geta þeir svo „veitt“ aðra tarfa í erjum við þá. Samfastir eiga þeir sér ekki lífs von. Reyndar á þetta við um allan vír sem liggur á víðavangi og þannig veiddi símavír sem lá á jörðinni í Loðmundarfirði nokkra tarfa í gegnum tíðina og eitt sinn hröpuðu tveir rígfullorðnir samfastir tarfar fram af sjávarklettum utan við Stakkahlíð. Fyrir nokkrum árum festist veturgamall tarfur í aflangri túngirðingu í Arnórsstaðamúla. Sem betur fer sást til hans og tókst að losa hann. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem sú girðing „veiddi“ hreintarfa. Náttúrustofan hefur skorað á sveitarfélagið að sjá til þess að sú girðing verði fjarlægð og var vel tekið í það. Munum við reyna að leggja verkefninu lið með því að tilkynna um aflagðar og ónýtar girðingar svo og annað drasl sem verða á vegi okkar og geta verið dauðagildrur fyrir hreindýr.“ Hætt við að hreintarfar ánetjist á fengitíma Myndir / NA Um þessar mundir þeytast frambjóðendur til Alþingis á milli staða og funda um hin fjölbreyttustu mál. Félag atvinnurekenda hélt morgunfund á dögunum þar sem fundarefnið var landbúnaðar- og tollamál. Á fundinum voru frambjóðendur meðal annars spurðir um hvaða breytingar eigi að setja í forgang við endurskoðun á búvörusamningum og hvaða skoðanir þeir hefðu á úthlutun tollkvóta. Í upphafi fundar fór Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður FA, stuttlega yfir helstu áherslur félagsins í landbúnaðar- og tollamálum sem í stuttu máli ganga út á að aflétta tollum á innfluttar búvörur og gjörbylta stuðningskerfi landbúnaðarins. Ísland er ekki eina ríkið sem styður við sinn landbúnað Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálf- stæðisflokki, sagði að íslenskur landbúnaður væri rekinn í svipuðu umhverfi og gert væri hjá öðrum OECD-ríkjum og Ísland væri ekki eina landið í heiminum sem styddi við sinn landbúnað. Guðlaugur sagði mikilvægt að hafa framtíðarsýn og í þeim efnum nefndi hann að leggja ætti aukna áherslu á umhverfismál, gæði framleiðslunnar og uppruna- merkingar. Þá nefndi hann tækifæri í lífrænni ræktun sem þyrfti að nýta betur. Þórunn Egilsdóttir, Framsóknar- flokki, sem situr í atvinnuveganefnd Alþingis, sagði að þar hefði verið lögð mikil áhersla á góða grein- ingarvinnu við endurskoðun búvöru- samninganna. Skoða þyrfti verðþró- un afurða og hlut bænda í framleiðsl- unni. Nefndi hún líka þær kröfur sem gerðar væru til íslenskrar framleiðslu og að meta þyrfti kostnað við þær. Markmiðið væri að tryggja byggð og búsetu um allt land og fólk þyrfti að spyrja sig hvernig lífið á lands- byggðinni væri ef landbúnaðar nyti ekki við. Píratar vilja nýtt kerfi Smári McCarthy, Pírötum, sagði að núverandi skipan landbúnaðarmála væri ekki að skila viðunandi árangri til neytenda, bænda, afurðastöðva eða skattgreiðanda. Píratar vildu skoða ný kerfi sem ýttu frekar undir nýsköpun og útflutning á búvörum. Aftengja ætti stuðning við bændur frá framleiðslu og miða frekar að því að búa til einskonar grunnstuðnings- kerfi sem væri hannað til að tryggja afkomuöryggi fleiri bænda. Árni Páll Árnason, Samfylkingu, lagði áherslu á að afleggja ætti fram- leiðslustýringu sem hefði fest bænd- ur í gildru. Stuðningurinn frá ríkinu nýttist ekki bændunum sjálfum að öllu leyti því þeir þyrftu að kaupa sér aðgang að honum. Þannig hefði byggst upp lénsveldi í greininni sem væri engum til góðs. Bændur ættu næg sóknarfæri ef þeir hefðu frelsi til að framleiða það sem þeir kysu að framleiða. Árna Páli fannst merkilegt að landbúnaðurinn væri eina greinin í landinu þar sem hagsmunaðilar væru sannfærðir um að óhugsandi væri að fjölga störfum í greininni. Benti hann á möguleika í nýjum tollasamningi við ESB þar sem tækifæri væru á að flytja út meira af t.d. smjöri sem eftirspurn væri eftir erlendis. Viðreisn segir athafnafrelsi bænda skert Pawel Bartoszek, hjá Viðreisn, sagð- ist tala fyrir auknu frelsi til handa bændum og neytendum. Tillögur Viðreisnar byggðu meðal annars á hugmyndum samstarfsvettvangs um aukna hagsæld um landbúnaðarmál. Þar var lagt til að framleiðslustýrt kerfi yrði aflagt og teknar upp jarð- ræktargreiðslur til bænda. Þá skipti ekki máli í hvaða búgrein menn væru og ekki þyrfti að kaupa sig inn í kerf- ið. Stærsta athugasemd Viðreisnar við búvörusamningana væri að þeir væru samningar hinna glötuðu tæki- færa. Athafnafrelsi bænda væri skert og jarðræktarstuðningur ekki aukinn nægilega. Kerfið hefði verið fest í sessi í of langan tíma. Tollahækkanir væru líka ekki Viðreisn að skapi. Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð, ítrekaði andstöðu síns flokks við nýgerða búvörusamninga. Hún kysi að sjá róttækari breytingar en raun varð á. Björt framtíð vill setja í forgang að eyða óeðlilegum viðskiptaháttum í mjólkuriðnaði þar sem samkeppnisumhverfið væri ekki virkt. Jarðræktarstyrkir væru eins og músík í eyrum Bjartar þar sem það yki fjölbreytni innan landbúnaðarins. Kolbeinn Óttarsson Proppé, Vinstrihreyfingunni grænu framboði, sagðist vilja horfa á það þannig að nú væri einstakt tækifæri til að horfa á landbúnaðarkerfið alveg frá grunni. Spyrja þyrfti þeirrar grunnspurningar hvort við vildum íslenskan landbúnað eða ekki. Ef að svarið væri já þyrfti að útfæra kerfi sem sátt væri um. Það væri hins vegar ekki þannig að landbúnaðurinn væri staðnaður. Benti Kolbeinn á að stuðningur við landbúnað sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hefði minnkað úr 5% árið 1986 niður í 1,2% eins og hann er í dag. Nú sé búið að festa í lög ákvæði um endurskoðun og vinna þyrfti út frá þeirri staðreynd. Taldi hann möguleika landbúnaðarins mikla og framundan væru spennandi tímar þar sem meðal annars ætti að hafa hugtökin sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi. /TB Tilvonandi alþingismenn ræða landbúnaðarmál: Einstakt tækifæri til að endurskoða landbúnaðarkerfið frá grunni

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.