Bændablaðið - 06.10.2016, Qupperneq 16

Bændablaðið - 06.10.2016, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016 Í tilefni þess að mikil jarð- skjálftahrina hefur verið við Kötlu undanfarið er gaman að rifja upp þjóð- og goðsögur sem tengjast jarðhræringum og jarðskjálftum. Allar þjóðir sem búa á jarð- skjálftasvæðum eiga sínar þjóð- og goðsögur sem útskýra orsök þeirra. Þó að þessi trú samræm- ist ekki þekkingu nútímavísinda á fyrirbærinu er hún um margt merkileg og lýsir hugmynda- fræði fólks sem er að búa sér til skýringar á fyrirbærum sem það skilur ekki. Samkvæmt norrænni goðafræði verða jarðskjálftar þegar Sigyn, kona. Loka, tæmir skálina sem hún heldur undir gini eiturnöðrunnar sem hangir yfir honum. Eitrið úr slöngunni drýpur þá í andlit Loka og hann hristir sig svo hressilega að jörðin nötrar og skelfur. Indíánar í Mexíkó segja að jarðskjálftar eigi sér stað þegar undirheimaguðinn El Diablo og djöflar hans ferðast um neðanjarð- ar til þess að koma af stað ófriði einhvers staðar á jörðinni. Kaliforníuindíánar hafa aðra skýringu á jarðskjálftum. Goðsagnir þeirra herma að í árdaga hafi bara verið til vatn. Andinn mikli ákvað því að skapa löndin og kom þeim fyrir á bakinu á þremur skjaldbökum. Dag einn varð skjaldbökunum sundurorða og fóru þær að rífast og synti hver þeirra í sína áttina. Við það hristust löndin og skulfu. Skjaldbökurnar gátu ekki synt langt þar sem löndin eru þung. Þær sneru því við og sættust. En annað slagið lendir þeim saman aftur og synda þær þá hver í sína áttina og sagan endurtekur sig. Í Perú trúðu innfæddir að skjálftar ættu sér stað þegar guðinn mikli gekk um jörðina í þeim tilgangi að kasta tölu á mennina. Til þess að flýta fyrir talningunni hljóp fólkið út úr húsum sínum og hrópaði: „Hér er ég, hér er ég!“ Indverskar goðsagnir skýra jarðskjálfta með því að einn hinna fjögurra fíla sem halda jörðinni uppi sé orðinn þreyttur á byrðinni og beygi sig örlítið til að létta á þunganum. Hirðingjar í Síberíu telja aftur á móti að jörðin hristist þegar sleðahundar guðsins Tuli klóra af sér flærnar. Í Mongólíu og Kína er til saga sem segir að jarðskjálftar og jarðhræringar stafi af því að froskurinn sem ber jörðina á bak- inu hristi sig lítillega. Menn þar eystra leyfa sér ekki að hugsa það til enda hvað muni gerast ef frosk- urinn tekur upp á því að hoppa en afleiðing þess er heimsendir. Í japönskum goðsögnum er sérstakur guð sem ver þjóðina fyrir jarðskjálftum. Guðinn, sem kallast Kashima, heldur töfrasteini sínum yfir risastórri leirgeddu ein- hvers staðar neðanjarðar. Kashima þarf stanslaust að halda vöku sinni því að ef hann slakar á eitt andar- tak byrjar geddan að sprikla og jörðin hristist. Þrátt fyrir að lönd og höf skilji að þjóðir má finna ótrúlegan samhljóm í þjóð- og goðsögum þeirra. Margar þjóðir tengja jarð- skjálftana við risastór dýr sem annaðhvort hrista sig eða hreyfa og koma jörðinni á stað með því. Einnig er freistandi að hugsa sér einhverja tengingu á milli hlutverka Sigynjar í norrænni goðafræði og Kashima í þeirri japönsku. Afleiðingar jarðskjálfta og eldgosa sem þeim geta fylgt geta verið skelfilegar og sjálfur kýs ég að trúa frekar á skýringar jarð- vísindamanna en trúa þjóð- og goðsögnum. /VH Katla urrar STEKKUR Hæstu tré sem vaxa á Vestfjarða- kjálkanum nálgast nú tuttugu metra hæð og má búast við að þeirri hæð verði náð á næsta ári. Hnífjafnt er nú í kapphlaupi alaskaaspar í Dýrafirði og sitka- grenis í Reykhólasveit. Starfsfólk landshlutaverkefna í skógrækt sem nú er hluti af hinni nýju stofnun, Skógræktinni, hafa hist árlega á nokkurs konar landsmóti til að bera saman bækur sínar og kynnast nytjaskógrækt á lögbýlum í mismunandi landshlutum. Að þessu sinni var komið saman á Reykhólum 21.–22. september. Í tengslum við landsmótið var efnt til trjámælinga þar sem vitað var um hæstu tré á Vestfjarðakjálkanum. Ekki er vitað betur en að nú berjist myndarleg alaskaösp við Miðbæ í Haukadal í Dýrafirði um titilinn hæsta tré Vestfjarða við ekki síður myndarlegt sitkagrenitré í hinni ástsælu Barmahlíð í Reykhólasveit. Mælingin nú sýnir að öspin hefur náð greninu og sennilega ná bæði þessi tré að rjúfa 20 metra múrinn á næsta sumri. Á eftir að taka sumarið út Grenið í Barmahlíð mældist nú 19,6 m og hefur bætt við sig 60 cm síðustu tvö sumur. Öspin mældist 19,7 m og hefur hækkað um 140 cm á tveimur sumrum. Sæmundur Þorvaldsson, skógfræðingur hjá Skógræktinni á Vestfjörðum, bendir þó á að hafa beri í huga að grenið eigi eftir að taka út góða sumarið 2016, ef svo má segja, en hagstætt veður nýliðins sumars hafi þegar nýst öspinni. Frá þessu er sagt á vef Skógræktarinnar, skogur. is. /MÞÞ Æsispennandi kappvöxtur alaskaaspar og sitkagrenis á Vestfjörðum Skógfræðingar beina tækjum sínum að sitkagrenitrjánum í Barmahlíð. Frá vinstri: Kristján Jónsson, Valgerður Erlingsdóttir og Rakel Jónsdóttir. Myndir / Sæmundur Kr. Þorvaldsson Valgerður Jónsdóttir og Arnlín Óladóttir við hæsta sitkagrenitréð í Barmahlíð, Sitkagrenitrén í Barmahlíð vaxa vel og það hæsta mælist nú 19,6 metrar á hæð. Hröfnum líkar sérlega vel við asp- ir, ekki einungis til að sitja þar og krunka heldur naga þeir gjarnan efstu greinar og toppa auk þess að taka kvisti úr þeim til hreiðurgerðar. Hugsanlega gætu heimilishrafnarnir í Miðbæ komið í veg fyrir að öspin þar nái nokkurn tíma 20 m hæð enda hlunkast þeir niður í öspina af full- komnu kæruleysi. Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu: Viðhaldsþörf tækjabúnaðar orðin mikil Tækjabúnaður Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu er far- inn að eldast og er viðhaldsþörf orðin mikil. Þetta koma fram á stjórnarfundi BAH sem haldinn var nýlega. Fram kom á fundinum að mark- mið Brunavarna væri að fjárfesta í endurnýjun tækjakosts slökkvi- bíls á næstu árum þannig að hann gæti þjónað bæði því hlutverki að vera tankbíll og dælubíll og að BAH þurfi mikinn stuðning frá sveitarfélögunum á svæðinu við þetta metnaðarfulla og risavaxna verkefni. Eldvarnareftirlit í góðu horfi Mikil ánægja kom fram á fund- inum með að eldvarnareftirlit á svæðinu væri komið í gott horf. Vel gangi að sinna eldvarnar- eftirliti og sé eldvarnareftirlit til sveita langt komið. Mikil vinna þurfi þó að eiga sér stað við að yfirfara fasteignir í eigu sveitarfé- laganna að teknu tilliti til eldvarna. Handbært fé tæp 300 þúsund Ársreikningur BAH fyrir árið 2015 var lagður fram til samþykktar á fundinum og kom þar fram að rekstrartekjur hafi numið 365 þúsund krónum og rekstrargjöld 14,3 milljónum króna. Framlög sveitarfélaganna námu 16 millj- ónum króna. Rekstrarniðurstaða ársins nam 1,9 milljónum króna. Bókfært eigið fé í árslok nam 9 milljónum króna. Handbært fé í árslok var 292 þúsund krónur. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.