Bændablaðið - 06.10.2016, Page 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Um 32 milljónir tonna af sojabaunum og sojamjöli eru flutt til ESB-landa árlega:
Um 28 milljónir tonna, eða um 87%
af innflutningnum, er erfðabreyttur
− Milljónir manna verða fyrir eitrun vegna notkunar „varnarefna“ í landbúnaði, m.a. samfara notkun erfðabreyttra afbrigða
Genabreytt sojabaunaafbrigði
(GMO) eru yfirgnæfandi í þeim
sojabaunum og sojamjöli sem flutt
er til landa Evrópusambandsins.
Í sumum framleiðslulandanna
er 100% framleiðslunnar erfða-
breytt.
Þannig voru t.d. flutt 32 millj-
ónir tonna af sojabaunum og soja-
mjöli til ESB-landa á árinu 2013 frá
öllum helstu sojaframleiðsluríkjum
heims. Um 72% framleiðslu þessara
ríkja var ræktað upp af erfðabreytt-
um afbrigðum samkvæmt tölum
úr tillögum framkvæmdastjórn-
ar Evrópusambandsins 2015 um
erfðabreyttar lífverur. Hlutfallsleg
skipting innflutningsins milli fram-
leiðslulandanna veldur því þó að
87,2% innflutnings á soja-afurðum
til Evrópusambandslandanna var
erfðabreytt, eða 27,9 milljónir tonna.
Einungis 4,1 milljón tonna voru það
ekki, eða 12,8%.
Umdeild tækni
Þótt deilt sé um hvort neysla á erfða-
breyttum matvælum sé örugg eða
ekki, þá hefur líftæknin sannarlega
leitt til margháttaðrar byltingar í
ræktun. Samt er líka óumdeilt að
ræktun á erfðabreyttum afbrigðum,
eins og sojabaunum og korni, fylgir
óhófleg notkun eiturefna sem fag-
menn í greininni kalla gjarnan „varn-
arefni“. Þessi mikla notkun á sér
þá einföldu skýringu að í mörgum
tilfellum eru erfðabreyttu afbrigðin
beinlínis hönnuð til að þola það að
miklu magni eiturefna sé úðað yfir
akrana á ræktunartímanum. Sem
dæmi má nefna afbrigði sem nefnd
hafa verið „Roundup Ready" soya
og „Roundup Ready" korn.
Getur haft umtalsverð áhrif á
Íslandi
Þótt hér sé um innflutning til
Evrópusambandsins að ræða getur
það haft veruleg áhrif á margvísleg
matvæli sem flutt eru til Íslands og
einnig að einhverju leyti á matvæli
sem hér eru framleidd. Sojamjöl
og ýmsar afurðir úr sojabaunum
er notað í fjölmargar fæðutegundir
sem og iðnaðarvörur. Þar má nefna
ýmiss konar álegg, hamborgara,
pylsur, tómatsósu, drykkjarvörur
ýmiss konar sem og málningu og
aragrúa annarra vöruflokka. Oft
getur verið mjög erfitt að átta sig á
sojainnihaldinu í viðkomandi vörum.
Stærstu útflutningslöndin með
allt að 100% erfðabreytt
Hlutfallslega mest af innfluttum
sojaafurðum til ESB-landanna
kemur frá Brasilíu, eða 43,8%, af
því eru 89% erfðabreytt. Næstmest
hlutfall kemur frá Argentínu, eða
22,4%, og þar er 100% framleiðsl-
unnar erfðabreytt. Síðan eru það
15% af sojaafurðunum sem koma frá
Bandaríkjunum. Þar eru 93% erfða-
breytt. Þá kemur Paragvæ með 7,3%
og 95% erfðabreytt. Kanada með
4,4% og 85% erfðabreytt. Úkraína
með 2,6% og ekkert erfðabreytt.
Úrúgvæ er með 1,9% sem er 100%
erfðabreytt og frá Indlandi kemur
1,7% sojainnflutningsins en ekkert
af honum er erfðabreytt.
Erfitt virðist vera að fá óyggj-
andi upplýsingar um notkunartölur
á svokölluðum „varnarefnum“ (crop
protection products) eða „Pesticides“
í landbúnaði á heimsvísu. Undir
þessari skilgreiningu eru bæði margs
konar sveppa- og illgresiseyðir sem
og skordýraeitur. Matvæla- og land-
búnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna
FAO hefur þó birt samantektir um
slíkt þótt þær séu venjulega nokkurra
ára gamlar þegar þær birtast. Sama
má segja um margar aðrar stofnanir
eins og Umhverfisverndarstofnun
Bandaríkjanna, EPA. Um leið og
þessi efni eru gagnleg við að halda
niðri margs konar óværu, þá eru þau
hættuleg ef þau berast í menn. Þar
liggur einmitt vandinn, því korn á
akri þar sem „varnarefni“ eru notuð
fær óhjákvæmilega á sig eitthvert
magn eiturefna sem ekki hverfur við
þreskingu. Það berst síðan með korn-
inu inn í fæðukeðju dýra og manna.
2,5 milljónir tonna af eiturefnum
á heimsvísu
Samkvæmt tölum US National
Library of Medicine og National
Institutes of Health eru yfir 1 millj-
arður punda, eða 450 þúsund tonn af
„varnarefnum“, notuð á ári hverju í
Bandaríkjunum einum. Um 40% af
því voru ýmis afbrigði af illgresi-
seyði, um 17% var skordýraeitur og
um 10% ýmiss konar sveppaeitur.
Segir stofnunin að á heimsvísu sé
verið að nota rúmlega 2,5 milljónir
tonna af slíkum efnum á ári hverju.
Nær tveir milljarðar manna í
snertingu við eiturefnin
Samkvæmt tölum stofnunarinnar
er áætlað að 1,8 milljarðar manna
komist í nána snertingu við eiturefni
í landbúnaði um allan heim á hverju
ári. Þar er átt við bæði gróðureyðing-
arefni og skordýraeitur. Mikill fjöldi
kemst einnig í snertingu við slík efni
við úðun á heimilum og í görðum.
25 milljónir verða fyrir eitrun
Áætlað er að 25 milljónir landbún-
aðarverkamanna verði fyrir eitrun af
völdum svokallaðra „varnarefna“ á
ári hverju. Samkvæmt heilbrigðis-
rannsókn sem vísað er til af stofn-
uninni, þá er áætlað að 16% af not-
endum slíkra efna verði fyrir miklum
áhrifum eða eitrun á ári hverju.
Landbúnaðarráðuneyti Banda-
ríkjanna (US Department of
Agriculture) hefur áætlað að 50
milljónir Bandaríkjamanna neyti
drykkjarvatns sem er mengað af
eiturefnum og og öðrum efnum sem
notuð eru í landbúnaði. Þá verða
börn á aldrinum 3–6 ára fyrir mikl-
um áhrifum í gegnum húð.
Talin valda krabbameini
Alþjóða krabbameinsrannsókna-
stofnunin, (The International Agency
for Research on Cancer – IARC),
hefur skilgreint fjölmörg af svoköll-
uðum varnarefnum í landbúnaði
(pesticides) sem krabbameins-
valdandi. Yfir 20 þúsund tegundir af
margvíslegum „varnarefnum“ hafa
verið markaðssettar í Bandaríkjunum
einum.
Vísað er m.a. til heilsufarsrann-
sóknar sem gerð var í landbúnaði
þar sem sönnur eru taldar hafa verið
lagðar á krabbamein af völdum slíkra
efna í blöðruhálskirtli, lungum,
þörmum, brisi, blöðru, blóði (hvít-
blæði) og fjölþætt mergæxli vegna
langvarandi snertingar við ákveðin
varnarefni.
Frá 1 til 6 kg á hektara
Tölfræðiútlistun á eiturefnanotkun-
inni víða um lönd sýnir að banda-
rískir bændur noti að meðaltali 1 kg
á hektara ræktarlands á meðan kín-
verskir bændur nota 4,7 kg á hektara.
Þá eru um 1,3 kg notuð á hektara
í Bretlandi, 2,5 kg á Ítalíu og 5,9
kg í Japan. Þess má þó geta að eftir
að notkun á skordýraeitrinu DDT
(Organochlorine hydrocarbons) var
bönnuð víðast hvar um heiminn voru
tekin í notkun ný lífræn fosföt, „org-
anophosphates“. Allt eru þetta samt
efni sem hafa lamandi áhrif á tauga-
starfsemi skordýra og þess vegna
manna.
Gríðarlegir peningahagsmunir
Svokölluð varnarefni geta vissulega
sparað bændum miklar upphæðir
vegna uppskeru sem annars hefði
eyðilagst. Áætlað er að sparnaðurinn
nemi allt að fjórföldum þeim kostn-
aði sem bændur eyða í eiturefni og
úðun þess. Ástæðan er meiri upp-
skera en ella.
Sumar úttektir benda til að bann
við notkun eiturefna kunni að leiða
til hækkunar matvælaverðs vegna
minni uppskeru. Á móti hefur verið
bent á að oft séu það framleiðendur
efnanna sem kosti slíkar úttektir.
Því er spáð að eftir tvö ár, eða
á árinu 2019, muni markaður fyrir
eiturefni sem ætluð eru til að verja
uppskeru velta um 52 milljörð-
um dollara, eða sem svarar nærri
749 milljörðum íslenskra króna.
Fyrirtækin sem framleiða þessi efni
eru flest í eigu sömu aðila og eiga
einkaréttinn á erfðabreyttu afbrigð-
um soja, korns og annarra erfða-
breyttra nytjajurta. Þar er banda-
ríski efna- og líftæknifræðirisinn
Monsanto án efa fyrirferðarmestur,
en samsteypan var keypt á dögunum
af þýska líftæknirisanum Bayer fyrir
56,6 milljarða dollara. /HKr.
Úr skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá síðasta ári um
landa 2013.
Landbúnaðarráðuneyti Banda ríkjanna (US Department of Agriculture), hefur áætlað að 50 milljónir Bandaríkjamanna neyti drykkjarvatns sem er mengað af eiturefnum og öðr-
um efnum sem notuð eru í landbúnaði. Þá verða börn á aldrin-
um 3–6 ára fyrir miklum áhrifum af efnunum í gegnum húð.
A lþjóða krabbameinsrannsókna stofnunin (The Inter-national Agency for Research on Cancer – IARC) hefur skilgreint fjölmörg af svokölluðum varnarefnum í land-
búnaði (pesticides) sem krabbameinsvaldandi. Yfir 20 þúsund
tegundir af margvíslegum „varnarefnum“ hafa verið markaðs-
settar í Bandaríkjunum einum.
Samkvæmt tölum US National Library of Medicine og National Institutes of Health eru yfir 1 milljarður punda eða 450 þúsund tonn af „varnarefnum“ notuð á ári hverju
í Bandaríkjunum einum. Um 40% af því voru ýmis afbrigði af
illgresiseyði, um 17% var skordýraeitur og um 10% ýmiskonar
sveppaeitur. Segir stofnunin að á heimsvísu sé verið að nota
rúmlega 2,5 milljónir tonna af slíkum efnum á ári hverju
Áætlað er að 25 milljónir landbúnaðarverkamanna verði fyrir eitrun af völdum svokallaðra „varnarefna“ á ári hverju. Samkvæmt heilbrigðisrannsókn sem vísað er til af
National Institutes of Health, þá er áætlað að 16% af notendum
slíkra efna verði fyrir miklum áhrifum eða eitrun á ári hverju.
nytjajurtaakur sem búið er að úða