Bændablaðið - 06.10.2016, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
ekkert svo slæmur þrátt fyrir að hafa
ekki fengið neitt viðhald í átta ár. Í
Heydal tekur Stella alltaf vel á móti
gestum með sinni einstöku móður-
legu umhyggju.
Langur dagur í einstöku veðri sé
miðað við Vestfirði
Frá Heydal á Látrabjarg er ágæt-
is dagleið, en að lenda á að keyra
alla þessa leið í blanka logni gerir
daginn ansi langan. Á svo mörgum
stöðum þurfti að stoppa til að njóta
útsýnis vegna þess að hægt var að
skoða heilu firðina bæði á sjónum og
landi. Af þessum sökum var ansi oft
stoppað til að taka myndir sem sumar
hverjar gátu verið ansi skemmtilegar.
Við Dynjanda tel ég mig hafa náð
að mynda það sem gæti allt eins hafa
verið kveikjan að hinu heimsfræga
málverki Ópinu sem norski lista-
maðurinn Edvard Munch málaði
árið 1893.
Eftir góða máltíð hjá Birnu í
Breiðuvík var ljúft að komast í gott
rúm á hótelinu í Breiðuvík og hvíla
sig eftir langan dag.
Á áttunda degi var komið að
blauta deginum, en það hafði
rignt mikið um nóttina á undan
og að keyra þessa rúma 40 km frá
Breiðuvík í botn Patreksfjarðar eftir
svona rigningu skilur maður vel
kvartanir heimamanna yfir vond-
um vegum. Drullusvað alla leið og
á verstu köflunum sukku dekkin á
bílnum allt að 10 sentímetra í aurinn
og gripið á veginum eftir því. Frá
botni Patreksfjarðar er vegurinn með
bundnu slitlagi megnið af leiðinni í
Bjarkalund þar sem stoppað var í
mat. Áfram haldið til suðurs og nú
var ákveðið að keyra Skarðsströnd
og yfir á Fellsströnd og gista á Hótel
Vogi, nýlegu hóteli með skemmtilegt
útsýni yfir eyjarnar á sundinu milli
Stykkishólms og Fellsstrandar.
Níundi og tíundi dagur
Það var lágskýjað og „svekkjanlega“
lítið útsýni frá Vogi yfir eyjar og
sund þegar vaknað var á degi níu. Nú
átti að keyra Snæfellsnes. Dagurinn
byrjaði á blautum og drullugum
malarvegaakstri fyrst Fellsströndina
og síðan Skógarströndina. Eftir
þvott á bílnum og næringu í bak-
aríinu á Stykkishólmi var farið á
Hákarlasafnið í Bjarnarhöfn hjá
Hildibrandi og syni hans Guðjóni,
vinalegt safn með miklum fróðleik
um fyrri tíma sjómennsku og fleira.
Næst var ekið út Snæfellsnes og
frá Ólafsvík var ekinn vegurinn yfir
Jökulháls. Stutt stopp var tekið upp
á hálsinum til að njóta útsýnisins
og að því loknu var ekið niður að
Sönghelli og hann skoðaður. Inni í
hellinum hafa margir gestir fyrri ára
rist upphafsstafi sína og ártal sem
athyglisvert var að skoða. Dagurinn
endaði á Langaholti hjá Kela vert,
manninum með hattinn, sem hefur
svo skemmtilegar skoðanir á mat
og lífinu almennt. Frá Langaholti
til Reykjavíkur var ekin heldur
óhefðbundin leið eftir að komið
var í Borgarnes. Gamli þjóðvegur-
inn yfir Hvítárbrúna er falleg leið,
en þaðan var ekið upp í Húsafell,
síðan Kaldidalur, Grafningur og
Nesjavallaleið síðasta spölinn.
Nokkur lokaorð um það besta
Að lokinni ferð standa upp úr staðir
sem voru fremri öðrum, en hlýleg-
ustu móttökurnar voru hjá Stellu í
Heydal og Birnu í Breiðuvík.
Besta rúmið og flottasta her-
bergið var á Hótel Laugabakka
Miðfirð.
Besti morgunmaturinn var á
Langaholti og Heydal.
Bestu magafyllina að kvöldi
fékk ég á Aðalbóli við hringborðið
góða með 10 Bretum sem köll-
uðu snúanlegt hringborðið „Lazy
Susan“, en gátu ekki útskýrt hvað-
an slíkt orðatiltæki um snúanlegt
matarborð væri komið.
IS Hurðir I Sími 564 0013 I www.ishurdir.is I ishurdir@ishurdir.is
IÐNAÐARHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
• Íslensk framleiðsla, smíði og samsetning.
• Allar hurðir smíðaðar samkvæmt máli.
• Áratuga reynsla starfsmanna í hurðum.
• Hágæða hráefni.
• Þolir íslenskt veðurfar.
• Sér meðhöndlaðar brautir gegn ryði og álagi.
• Stuttur afgreiðslutími.
Skútuvogi 11 www.neyd.is s: 510 8888
Opið alla virka daga 8-18 laugardaga 10-14
Vantar
Hurðapumpur
ALLAR VÖRUR SENDAR FRÍTT
hvert á land sem er!
MEÐ ÍSLANDSPÓSTI
BLEK TÓNER
PRENTARAR
RITFÖNG PAPPÍR
w w w . p r e n t v o r u r . i s
SKJÓL FYRIR VETURINN - ÞAÐ ER ENN TÍMI TIL STEFNU
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ FINNUM LAUSNINA SAMAN