Bændablaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016 „Þetta ætlar greinilega að slá í gegn enda hafa viðtökurnar verið eftir því, upplifun gesta er frábær og allir í skýjunum með þessa nýjung hjá okkur Möggu,“ segir Jóhann Helgi Hlöðversson, ferðaþjónustubóndi í Vatnsholti í Flóahreppi. Hann og eiginkona hans, Margrét Ormsdóttir, hafa opnað nýjan veitingastað sem heit- ir Blind Raven. Þar borða gestir í kolsvarta myrkri þar sem meistarakokkurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um matreiðsluna. Þjónarnir eru með nætursjónauka á höfðinu þannig að þeir sjái hvað þeir eru að gera. „Fólk velur af matseðl- inum áður en það fer inn í salinn en þá erum við að tala um rauðan lit fyrir kjöt, bláan lit fyrir sjávarrétti, grænan lit fyrir grænmetisrétti og hvítur litur er fyrir óvissu rétt,“ segir Jóhann Helgi. Eftir að búið er að borða í myrkrinu er fólk leitt inn í ljósið þar sem það fær að sjá mat- seðilinn og hvað það var að borða. „Þetta er frábær upplifun fyrir fólk svo ekki sé minnst á skemmtunina sem fylgir því að hafa ekki hugmynd hvað er á disknum fyrir framan sig. Sumir enda á því að borða með fingr- unum því þeir ná matnum ekki upp með hnífapörunum eða hitta ekki á munninn með þeim. Þetta er að heppnast stórkostlega,“ bætir Jóhann Helgi við. /MHH KOMDU MEÐ Á AGROMEK Agromek Landbúnaðarsýningin er stærsta landbúnaðarsýning Norður Evrópu og er haldin í Herning í Danmörku annað hvert ár. Jötunn í samstarfi við Snorra Sigurðsson hafa ákveðið að efna til hópferðar á sýninguna þar sem blandað verður saman heimsóknum til bænda og fræðsluerindum danskra og íslenskra ráðgjafa. Bókanir og upplýsingar um ferðina veita vélasölumenn í síma 480 0400 Áætlaður kostnaður pr. þáttakanda er kr. 140.000,- Miðvikudagurinn 30. nóv. 08:00 Brottför með Icelandair flugi FI 204 12:00 Lending í Kaupmannahöfn. Ekið með rútu frá Kaupmannahöfn til Sjálandsodda með bændaheimsókn á leiðinni. 16:45 Hraðferja til Árósa sem siglir á allt að 75km hraða. 18:00 Komið á hótel í miðbæ Árósa (3 nætur). 20:00 Kvöldverður og stutt kynning á dagskrá. Fimmtudagurinn 1. des. 09.00 Brottför frá Hóteli á Sýningu í Herning (allur dagurinn). 19.00 Komið tilbaka á Hótel í Árósum. 20.00 Kvöldverður og Keila í miðbæ Árósa Föstudagurinn 2. des. 08.00 Brottför frá Hóteli. 08.30 Heimsókn til Seges sem er RML danskra bænda. Kynning á starfsemi Seges og stutt fræðsluerindi frá nokkrum Landsráðunautum Seges um áhugaverð efni. 12.00 Brottför frá Seges og farið aftur á sýningu í Herning. 18.00 Brottför af sýningu og heimsókn til bónda á leiðinni tilbaka til Árósa. 20.00 Kvöldmatur í nágrenni hótelsins í Árósum. ATH. Þeir sem vilja geta notað daginn frekar í Árósum. Laugardagurinn 3. des. 08.00 Brottför frá hóteli. Ekið suður Jótland, yfir Fjón og Sjáland með heimsóknum til bænda og/eða fyrirtækja. 18.00 Komið á hótel í Kaupmannahöfn. 20.00 Kvöldverður í nágrenni hótelsins. Sunnudagurinn 4. des. 11.00 Brottför frá hóteli út á Flugvöll 13.20 Flug Icelandair FI 205 til Keflavíkur 15.30 Lending í Keflavík. Drög að dagskrá ferðarinnar eru eftirfarandi: Þar sem aðeins 50 sæti eru í boð er miðað við að hámarki 2 miða á hvert lögbýli og fyrstur kemur fyrstur fær. Innifalið: Flug, rútuferðir, gisting með morgunverði og kvöldverður alla dagana. Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is ararstjóri: F norri Sigurðsson S sviðstjóri hjá SEGES Borðað í kolsvörtu myrkri Blind Raven er fyrsti myrkvaði veitingastaðurinn á Íslandi en nokkrir slíkir staðir eru til erlendis og njóta mikillar vinsælda. Myndir / MHH Gestir velja liti af matseðlinum áður en þeir fara í myrkvaðan salinn í Vatnsholti. Í byrjun verður eingöngu opið fyrir hópa en hægt er að senda fyrirspurnir á info@hotelvatnsholt.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.