Bændablaðið - 06.10.2016, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2016
Framleiðendasamvinnufélagið
Danish Crown, sem er sérhæft
í slátrun og kjötvinnslu, starf-
rækir í smábænum Holsted á
Suður-Jótlandi eitt fullkomn-
asta nautgripasláturhús í heimi.
Sláturhúsið, sem einnig er kjöt-
vinnsla, var tekið í notkun árið
2014 og nær athafnasvæði þess
yfir um 18.500 fermetra.
Um leið og framleiðsluaðstað-
an var tekin í notkun lokaði Danish
Crown fimm minni sláturhúsum í
hagræðingarskyni enda er slátrunar-
getan í Holsted afar myndarleg, en
þar er hægt að slátra 950 fullorðn-
um nautgripum á dag, eða nærri
helmingi allra slátraðra nautgripa í
landinu.
Til þess að setja þessa afkastagetu
í samhengi við íslenskar aðstæður þá
má geta þess að árið 2015 var slátrað
hér á landi 15.957 fullvöxnum naut-
gripum í átta sláturhúsum, en þetta
magn nautgripa rennur í gegn hjá
Holsted á rúmlega þremur vikum.
3 ár í byggingu
Ákvörðun Danish Crown um að
sameina fjórar
minni sláturlínur
í eina var tekin
árið 2010 og árið
2011 hófust svo
framkvæmdir við
hið nýja sláturhús
en alls kostaði
f r a m k v æ m d -
in 711 danskar
milljónir króna,
eða um 12 millj-
arða íslenskra
króna.
Þetta er vissulega stór upphæð en
framkvæmdin hefur þegar borgað
sig að sögn talsmanna félagsins og
er þess vænst að í lok þessa árs muni
fjárfestingin skila arði til eigenda
sinna, þ.e.a.s. hinna dönsku kúa-
bænda.
Alls starfa um 300 manns á staðn-
um, bæði við slátrun, kjötvinnslu og
pökkun, og er þetta því umtalsvert
stór vinnustaður. Reyndar það stór
að í aðdraganda þess að félagið
valdi starfseminni stað átti sér stað
allmikil samkeppni á milli þeirra
sveitarfélaga sem komu til greina
enda munar veru-
lega um vinnu-
stað sem þennan.
Fyrir valinu varð
bærinn Holsted,
sem er lítill bær
um það bil mitt á
milli Esbjerg og
Kolding.
Í Holsted búa
rétt rúmlega þrjú
þúsund manns og
af þeim starfa nú
tæplega 200 hjá Danish Crown. Þessi
ákvörðun félagsins hefur því haft
veruleg áhrif á íbúana í Holsted.
Reka enn 3 sláturhús í Danmörku
Þó svo að afkastageta sláturhússins í
Holsted sé veruleg er hún þó engan
veginn næg til þess að sinna hinum
danska markaði. Félagið situr allvel á
slátrunarmarkaðinum í Danmörku og
er með rúmlega 90% af allri slátrun
nautgripa.
Alls er félagið með 2 önnur slát-
urhús í landinu, í Álaborg og Husum,
en í þeim tveimur er afkastagetan til
samans svipuð og er nú í Holsted.
Auk þess er rekin sérvinnsla á
ýmsum sérstökum nautgripaafurð-
um í vinnslustöð félagsins í Søndre
Felding og svo er félagið einnig með
sláturhús í rekstri í Þýskalandi.
Samtals sjá dönsku sláturhúsin
um að slátra rétt rúmlega 300 þúsund
nautgripum árlega og sé hið þýska
sláturhús talið með er árleg slátrun
rétt tæplega 400 þúsund nautgripir.
Alls starfa um 800 manns hjá naut-
griparæktardeild félagsins í dag og
nemur árleg velta þessa hluta Danish
Crown rúmlega 60 milljörðum
íslenskra króna.
Sérstök áhersla á velferð
Þegar sláturhúsið og kjötvinnslan
í Holsted voru í hönnunarferli var
strax í upphafi ákveðið að horfa
sérstaklega til tæknivæðingar og
velferðar bæði manna og dýra.
Sláturhúsið er því allt hið fullkomn-
asta á þessu sviði og stendur fólk á
sjálfvirkum lyftum, öll færsla á föll-
um og kjöti gerist með sjálfvirkum
hætti og nánast hvergi sá staður þar
sem lyfta þarf einhverju upp með
handafli.
Sláturhúsið er einnig afar hljóð-
látt, undirlag mjúkt bæði fyrir fólk og
dýr og loftræstingin slík að hvergi er
eiginlega hægt að finna það sem kalla
Fullkomnasta nautgripa-
sláturhús í heimi – fyrri hluti
Utan úr heimi
Bretland:
MRSA-bakteríur greinast í svínakjöti
í verslunum Asda og Sainburys
Sýni sem nýlega voru tekin úr
svínakjöti í verslunum Asda og
Sainburys á Bretlandseyjum sýndu
að hluti kjötsins var sýkt af sýkla-
lyfjaónæmu afbrigði af MRSA-
bakteríum sem finnst í búfé.
MRSA stendur fyrir Methicillin-
resistant Staphylococcus aureus,
eða Staphylococcus aureus-bakter-
ía, sem er ónæm fyrir Methicillin-
sýklalyfjum. Bakterían getur valdið
alvarlegum sýkingum í mönnum
og talið að hún valdi dauða um 300
manns á ári á Bretlandseyjum.
Blaðamenn The Guardian, í sam-
vinnu við Bureau of Investigative
Journalism, segjast einnig hafa fund-
ið galla í innflutningsreglugerðum
Breta sem gerir kleift að flytja til
landsins lifandi svín frá löndum eins
og Danmörku þar sem afbrigði sömu
bakteríu, sem kallast MRSA CC398,
er mjög algeng.
Þrátt fyrir að MRSA-bakterían
drepist sé kjötið vel eldað er mikil
hætta á smiti sé það meðhöndlað
hrátt. Starfsmenn svínabúa og svína-
sláturhúsa eru sagðir vera í mestri
hættu á smiti og að vera smitberar.
Sýkta kjötið í verslunum er því
einungis talið vera toppurinn á ísjak-
anum. /VH
Danish Crown, sem er sérhæft í slátrun og kjötvinnslu, starfrækir í smábænum Holsted á Suður-Jótlandi eitt full-
komnasta nautgripasláturhús í heimi. Mynd / Morten Fauerby
Danish Crown-sláturhúsið í Holsted á Suður-Jótlandi.
Sýkta kjötið í verslunum Asda og Sainburys er einungis talið vera toppurinn
á ísjakanum.
Fylgst er með útbreiðslu olíunnar í sjó úr lofti og stefnir hún með straumum
frá landi og norður á bóginn.
Mengun í Norðursjó:
100 tonn af olíu í sjóinn
Vegna bilunar í olíuborpalli BP
láku tæplega 100 tonn af olíu í
Norðursjó í byrjun vikunnar.
Fuglalíf í hafinu umhverfis er sagt
í hættu.
Olíuborpallurinn, sem er í eigu
British Petrolium, er staðsettur um 75
kílómetra vestur af Hjaltlandseyjum.
Olíuvinnsla pallsins hefur verið
stöðvuð á meðan reynt er að komast
fyrir lekann.
Talsmenn BP segja ástæðu lekans
vera vegna tæknibilunar í lokum.
Fylgst er með útbreiðslu olí-
unnar í sjó úr lofti og stefnir hún
með straumum frá landi og norður
á bóginn og vonast er til að hún
eyðist á náttúrulegan hátt áður en
skaðinn af hennar völdum verður
mikill.
Talsmenn náttúrverndarsamtaka
segja að fuglalíf á hafsvæðinu milli
Noregs og Hjaltlandseyja sé við-
kvæmt og að full ástæða sé til að
hafa áhyggjur af því vegna lekans.
/VH