Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 11
11Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
samþykkti á fundi sínum í liðnum
mánuði að sameina grunnskóla
sveitarfélagsins undir merkjum
Grunnskóla Langanesbyggðar frá
og með upphafi næsta skólaárs.
Á fundinum var lagt fram minn-
isblað þar sem staða skólastarfs á
Bakkafirði var reifuð og farið yfir
þann vanda sem til er kominn og
fyrirsjáanleg fækkun nemenda hefur
í för með sér.
Á yfirstandandi skólaári eru
7 nemendur í grunnskólanum á
Bakkafirði, tveir þeirra í 6. bekk, 1
nemandi í 7. bekk, 2 nemendur í 8.
bekk og 2 nemendur í 10. bekk. Á
næsta skólaári lítur út fyrir að nem-
endur verði að hámarki 5.
Styttra fyrir flesta að fara til
Þórshafnar
Staðan er sú, að því er fram kemur í
bókun sveitarstjórnar, að allir nem-
endur við Grunnskólann á Bakkafirði
nema þrír eiga styttra að sækja skóla
til Þórshafnar en Bakkafjarðar. Í
minnisblaðinu kemur fram að vandi
sé að halda uppi faglegu skólastarfi
í svo fámennum skóla.
Fræðslunefnd Langanesbyggðar
tekur undir það sjónarmið, þ.e. að
farsælast sé að sameina skólastofn-
anir í sveitarfélaginu í eina þannig
að öll börn innan þess sæki skóla á
Þórshöfn frá og með næsta hausti.
Sveitarstjóra og fræðslunefnd
var falið að vinna að umræddri
breytingu og öðru því er að málinu
snýr. Sveitarstjórn leggur áherslu
á að vandað verði til verka og
leitað verði eftir fagaðstoð eins
og þurfa þykir og að sveitarstjórn
verði upplýst mjög reglulega um
gang mála. /MÞÞ
Agrotron dráttarvélarnar frá DEUTZ-FAHR eru af mörgum taldar einar þær sterkustu
og endingarbestu sem völ er á.
C-SHIFT útgáfan er þar engin undantekning. Hún er búin rafskiptingu á öllum gírum.
Engin eiginleg gírstöng og aldrei þarf að kúpla til þess að skipta um gír.
Við eigum til afgreiðslu strax nokkrar 130 ha DEUTZ-FAHR Agrotron 6130.4 C-Shift
vélar á sérstöku tilboðsverði. Þessar vélar hafa alveg ótrúlegt afl - með snerpu smærri
véla en styrkleika þeirra stærri.
Vegna mikillar styrkingar íslensku krónunnar undanfarnar vikur getum við boðið
þessar vélar til afgreiðslu strax á alveg ótrúlegu verði. Allar nánari upplýsingar
veita sölumenn okkar.
DEUTZ-FAHR 6130.4
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Suðurhrauni 12b - 210 Garðabæ | 545 4600 | Fax 545 4601 | metal@metal.is
Langanesbyggð:
Grunnskólar sameinaðir í einn næsta haust
Þórshöfn á Langanesi. Mynd / HK
Dalvíkurbyggð og AFE:
Ekki hækkun
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
fjallaði um erindi frá Atvinnu-
þróunarfélagi Eyjafjarðar á fundi
sínum á dögunum, þess efnis að
framlög sveitarfélaga sem standa
að atvinnuþróunarfélaginu
hækki um 20%.
Stjórn Atvinnuþróunarfélagsins
mun á aðalfundi þess í apríl leggja
til 20% hækkun á framlögum
sveitarfélaga og að hún muni gilda
afturvirkt frá áramótum.
Fram kemur í fundar-
gerð Byggðaráðs að framlag
Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017
yrði þá ríflega 3 milljónir króna,
en það var rúmlega 2,5 milljónir
árið 2016 og í fjárhagsáætlun fyrir
þetta ár var gert ráð fyrir nokkurn
veginn sömu upphæð.
Einnig kemur fram að ráðið
hafi á því skilning að hækka þurfi
framlög sveitarfélaga til AFE vegna
uppsafnaðs misgengis launa- og
neysluvísitölu undanfarinna ára.
„Hækkunin er nokkuð mikil, eða
sem nemur 20%, og ekki gert ráð
fyrir slíku í fjárhagsáætlun sveitar-
félagsins og gildir það sjálfsagt um
fleiri sveitarfélög. Finna þarf leið
til þess að hækkanir á framlögum
sveitarfélaga til AFE verði ákveðn-
ar áður en fjárhagsáætlunarvinna
sveitarfélaga fer fram að hausti,“
segir í bókun frá fundinum. /MÞÞ