Fréttablaðið - 21.05.2020, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
MÉR FANNST ÖSKUR
MJÖG VIÐEIGANDI
NAFN, SVONA Í LJÓSI ALLS SEM
VIÐ HÖFUM UPPLIFAÐ Á
ÞESSUM TÍMUM.
Orkan býður lítrann á lægsta
verðinu í öllum landshlutum
— án allra skilyrða.
LÆGSTA
VERÐIÐ
Í ÖLLUM
LANDS-
HLUTUM
Björgvin segir School of Visual Arts vera fjölþjóðlegan skóla og þar hafi hann eignast góða vini. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nú fyrir helgi opn-uðu þrír listamenn örgallerýið Öskur í Miðstræti 12. Þeir Björgvin Jónsson, Einar Snor r i og
Gotti Bernhöft opnuðu gallerýið
með skemmtilegri samsýningu en
þeir eru allir með vinnustofu sína á
staðnum.
Björgvin útskrifaðist með láði
frá listaskólanum School of Visual
Arts í New York fyrir tveimur árum
síðan og var einn af tuttugu bestu
nemendum við skólann sem var
valinn til að birta verk sín í bók sem
gefin er út árlega af skólanum.
Björgvin er nú snúinn heim aftur
til Íslands eftir sex ár í New York þar
sem hann lærði Fine Arts. Hann er
það sem kallast „mixed media“
listamaður. „Ég nota sem sagt mis-
munandi miðla í listsköpun minni
og vinn með mismunandi efni,“
segir Björgvin.
Listin birt um alla borg
Á fjórða ári hans við skólann var
honum boðið að taka þátt í stórri
sýningu á vegum MvVo, sem er
þekkt fyrirtæki innan listabrans-
ans fyrir framsæknar hugmyndir í
miðlun lista.
„Maria van Vlodrop, stofnandi
fyrirtækisins, leitaðist eftir því við
skólann minn að bjóða nokkrum
nemendum til að taka þátt í sýn-
ingu. Fjórir nemendur voru valdir,
svo það var mikill heiður að tilheyra
þeim hópi,“ segir Björgvin. Sýningin
var haldin í Sotheby‘s og gekk mjög
vel.
„Fyrirtækið sjálft er ekki með
eigið gallerý og notar það fyrst og
fremst síðuna Artsy til að koma
list á framfæri og má segja að hún
sé nokkurs konar netvettvangur til
að skoða og kaupa list.“
Að sögn Björgvins gerði MvVo
svo samning við LinkedIn í New
York sumarið eftir útskriftina hans
og birti verk hans þar á meðal ann-
arra á auglýsingaskiltum út um alla
borgina. „Mér fannst mjög gaman
og örlítið súrrealískt að sjá verkin
mín á skiltum víða um borgina,“
segir hann.
Fleiri tækifæri tóku við
„Þegar ég tók þátt í sýningu MvVo
sem er haldin í Sotheby‘s, þá er mér
boðið að taka þátt í sýningu í Los
Angeles,“ segir Björgvin.
Fleiri tækifæri komu í kjölfarið
sem varð til þess að Björgvin tók
þá ákvörðun að einbeita sér enn
frekar að listinni. Hann hreinsaði
hugann, fór á vit ævintýra og ferð-
aðist um Evrópu. Í skólanum í New
York hafði hann eignast marga vini
vítt og breitt um heimsálfuna og til-
valið að heilsa upp á þá.
„Skólinn var mjög fjölþjóðlegur
en New York er líka bara ótrúlega
fjölþjóðleg borg. Þar er endalaust
að sjá og skoða, og fólk hvaðanæva
að. Maður fær að upplifa menningu
svo margra ólíkra landa.“
Á ferðalögum sínum tók hann
myndir af og teiknaði upp fjölbreytt
og fræg kennileiti sem er nú hluti af
list hans í dag.
„Þegar ég var í Evrópu fór ég á alls
konar listasöfn og listsýningar, til
dæmis Feneyjatvíæringinn,“ segir
Björgvin.
Nýtt gallerý
Eftir Evrópureisuna fékk Björgvin
bréf frá gallerýi í New York.
„Í því var mér boðið að vera með
verk í gallerýinu og öðrum stórum
sýningum. Ég náði að taka þátt í
einni sýningunni sem heitir LA Art
show og er í Los Angeles, en síðan
skellur heimsfaraldurinn á,“ segir
Björgvin. „Einnig átti ég að vera
aftur með í sýningu MvVo í byrjun
maí en eins og gefur að skilja hefur
COVID-19 haft víðtæk áhrif. Það eru
þó gleðifréttir að sýningin verður
haldin í september.“
Art Basel í Miami er svo á döfinni
hjá Björgvin í desember, sem von-
andi stenst.
Samstarfið gott
Björgvin stefndi á að taka meistara-
námið í Bandaríkjunum en vegna
COVID-19 var því öllu slegið á
frest. Hann ákveð því að finna sér
aðstöðu hérna í Reykjavík til að
vinna að list sinni og fékk rýmið í
Miðstrætinu.
„Þetta er stórt rými þannig að ég
fékk Einar og Gotta með mér í stúd-
íóið. Við höfum þrír tekið þetta
allt saman í gegn og ég er ótrúlega
ánægður með okkar samstarf. Við
ákváðum að hafa gallerýið fremst í
rýminu og mér fannst Öskur mjög
viðeigandi nafn, svona í ljósi alls
sem við höfum upplifað á þessum
tímum. Alla hefur ef laust langað
í gegnum þennan tíma að öskra
endrum og eins,“ segir hann og hlær.
Sýningin í Öskur gallerýi stendur
yfir út mánuðinn.
steingerdur@frettabladid.is
Öskur í Miðstræti
Björgvin Jónsson er fluttur aftur heim eftir listnám í New York.
Hann tók þátt í LA Art show og fer senn með list sína á Art Basel í
Miami. Fyrir viku opnaði hann Öskur gallerý með félögum sínum.
2 1 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð