Fréttablaðið - 23.05.2020, Síða 2
Veður
Norðaustan 3-10 m/s og að mestu
skýjað en bjartviðri um vestan-
vert landið. Gengur í norðan 8-15
í kvöld, en 15-23 m/s undir Vatna-
jökli. Rigning eða slydda með
köflum austan til á landinu, annars
þurrt. Hiti 5 til 16 stig yfir daginn.
SJÁ SÍÐU 38
Veðurlagsins blíða
SAMFÉLAG Hin ellefu ára gamla
Brynhildur Lára Hrafnsdóttir, eða
Lára eins og hún er oftast kölluð,
ákvað að fara öðruvísi leið til að
safna fyrir sérútbúnum bíl fyrir
hjólastól, en hún auglýsti eftir 500
krónum „sem fólk væri hætt að
nota“ eins og hún orðar það sjálf.
Lára er með sjaldgæfan ólækn-
andi erfðasjúkdóm sem heitir
NF1. Fjölskyldan hefur staðið fyrir
f leiri söfnunum í gegnum tíðina
en margar hindranir hafa verið á
vegi Láru. Foreldrar Láru, Margrét
Grjetarsdóttir og Hrafn Óttarsson,
lýsa henni sem miklum mannvini
og einstakri stelpu.
„Hún hefur gengið í gegnum mjög
mikið og enginn endir í sýn. Hún
er alblind frá haustinu 2014. Hún
er með átta æxli sem vitað er um
og eru fimm þeirra í höfðinu, eitt
á hrygg og eitt í hvoru læri,“ segir
Margrét, en auk þess er hún með
ADHD og ódæmigerða einhverfu
sem er fylgifiskur sjúkdómsins.
Fyrir um það bil ári hrakaði Láru
mikið, hún varð mjög máttfarin í
hægri hlið líkamans og hefur þurft
að nota hjólastól frá þeim tíma.
Fjölskyldan ákvað að setja sig í
samband við fyrirtæki sem útbýr
sérsniðna bíla fyrir hjólastóla og
hófst þar með ferli í gegnum sænska
almannatryggingakerfið.
Strangar reglur gilda um kaup á
slíkum bíl og þrátt fyrir að fá styrk,
þarf fólk að mestu að fjármagna
kaupin sjálf. „Þetta er mjög erfið
aðstaða, að endalaust þurfa að kalla
á hjálp frá utanaðkomandi aðilum.
Við vonum bara að fólk skilji hvern-
ig þetta er,“ segja foreldrar Láru.
Ákveðið var að söfnun Láru færi í
að kaupa bílinn, en að sögn foreldr-
anna hefur söfnunin gengið vonum
framar. „Ég veit ekki hvað hægt er að
segja svo fólk átti sig á því sem bær-
ist um í huga manns af þakklæti,“
segir Margrét en næsta skref er að
safna fyrir útborgun í húsnæði.
„Eftir að bíllinn er kominn þá
munum við halda áfram að stefna
á húsnæði. Það myndi breyta svo
miklu fyrir Láru og ekki bara það
heldur gætum við aðlagað hús-
næðið að öllum hennar þörfum.
Svo söfnunin mun halda áfram.“
Nánar er rætt við foreldra Láru á
frettabladid.is og þar má einnig
nálgast upplýsingar um söfnunina.
fanndis@frettabladid.is
Safnar 500 krónum
fyrir sérútbúnum bíl
Lára safnar nú fyrir sérútbúnum bíl fyrir hjólastóla og hefur auglýst eftir 500
krónum sem fólk er hætt að nota. Lára er með sjaldgæfan erfðasjúkdóm og
þarf að nota hjólastól. Fjölskyldan segir söfnunina hafa gengið vonum framar.
Lára er með sjaldgæfan, ólæknandi erfðasjúkdóm.
Meira á frettabladid.is
COVID-19 Á mánudaginn mega 200
manns koma saman eftir 50 manna
hámarks samkomufjölda sem gilt
hefur frá 16. mars, þegar ný aug-
lýsing heilbrigðisráðherra um sam-
komutakmarkanir tekur gildi.
Samkvæmt auglýsingunni má
opna líkamsræktarstöðvar á ný,
með sömu takmörkunum og gilda
um sund- og baðstaði. Þá verður
öllum veitingastöðum, þar með
töldum krám og skemmtistöðum
heimilt að hafa opið til klukkan 23.
Tveggja metra reglan breytist
þannig að til að vernda viðkvæma
hópa ber þjónustuveitendum að
tryggja rými fyrir þá sem kjósa að
halda slíkri fjarlægð áfram. – aá
Landinn kemst
loks í ræktina
Svandís Svavars-
dóttir heilbrigð-
isráðherra.
VIÐSKIPTI Icelandair Group stefnir
að því að hlutafjárútboð félagsins
fari fram í lok júnímánaðar. Tillaga
um að stjórn félagsins fái heimild
til að auka hlutafé um allt að þrjá-
tíu milljarða króna að nafnvirði var
samþykkt samhljóða á hluthafa-
fundi félagsins í gær.
Stefnt er að því að nýtt hlutafé
geti numið á bilinu 150 til 200
milljónum dala, eða allt að 29 millj-
örðum króna, og að útboðið fari
fram í kjölfar þess að samkomulag
náist við helstu haghafa flugfélags-
ins. Má í því sambandi nefna f lug-
freyjur og f lugþjóna félagsins, lán-
veitendur, leigusala og aðra birgja,
stjórnvöld og bandaríska f lug-
vélaframleiðandann Boeing. Skili
samningar árangri verði lýsing fyrir
hlutafjárútboðið í kjölfarið gefin út
og kynningar fyrir fjárfesta haldnar
á dögunum 16. til 22. júní og gert ráð
fyrir að hlutafjárútboðið fari fram á
dögunum 29. júní til 2. júlí.
Í kynningu kemur fram að við-
ræður Icelandair Group við kröfu-
hafa gangi út á endurskipulagningu
skulda og er í því sambandi meðal
annars nefnt greiðsluhlé og breyt-
ingar á lykilskilmálum.
Þess má geta að sá valmöguleiki
verður fyrir hendi í hlutafjárút-
boðinu að skuldum verði breytt í
hlutafé. – kij
Hlutafé aukið
síðar í sumar
Bogi Nils Bogason forsjóri á hlut-
hafafundi í gær. FRÉTTABLADID/VALLI
Útisvæði veitingastaða miðborgarinnar voru þéttsetin í gær enda veðrið með besta móti þrátt fyrir sólarleysi. Íbúar höfuðborgarsvæðisins geta
glaðst áfram yfir veðrinu en spáð er allt að 18 stigum og heiðskíru í Reykjavík í dag en rigning er svo í kortunum næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 3 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð