Fréttablaðið - 23.05.2020, Page 39
Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir öflugum sérfræðingi sem hefur
víðtæka þekkingu á fjármálum og rekstri fyrirtækja og hefur brennandi
áhuga á samkeppnismálum. Mun viðkomandi bera ábyrgð á úrlausn
samkeppnismála á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins auk þess að koma
að og greina og fylgjast með fjárhagsstöðu fyrirtækja í teymisvinnu.
Starf sérfræðings hjá
Samkeppniseftirlitinu
Helstu verkefni
• Ábyrgð á úrlausnum samkeppnismála á fjölbreyttum
sviðum atvinnulífsins
• Greining á fjárhagsstöðu fyrirtækja
• Eftirlit og greining markaða
• Rannsóknir og gagnavinnsla
• Skýrslu- og álitsgerðir
• Miðlun þekkingar á rekstri og fjárhagsstöðu fyrirtækja
• Samskipti við hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða öðru námi sem
nýtist í viðkomandi starfi
• Sérhæfing á sviði fjármála eða endurskoðunar er kostur
• Gott vald á notkun hugbúnaðar við greiningar og úrvinnslu
gagna
• Reynsla af samkeppnismálum er kostur
• Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
• Hæfni í samskiptum og geta til að vinna undir álagi
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 2. júní nk.
Sótt er rafrænt um starfið á www.starfatorg.is. Með umsókninni þarf að fylgja
kynningarbréf og starfsferilskrá.
Starfshlutfall er 100%. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veita Steingrímur Ægisson, verkefna- og teymisstjóri,
(steingrimur@samkeppni.is) og Karítas Jónsdóttir, rekstrarstjóri,
(karitas@samkeppni.is) í síma 585-0700.
Samkeppniseftirlitið áskilur sér rétt til þess að ráða á grundvelli
auglýsingarinnar næstu sex mánuði eftir birtingu hennar, sbr. reglur um
auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019. Við ráðningar hjá
Samkeppniseftirlitinu er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun
stofnunarinnar.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Vísindi á vakt
Hjá Veðurstofu Íslands starfar öflugur hópur fólks sem hefur það hlutverk að stuðla að
bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar. Því hlutverki
sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun og
greiningu gagna, rannsóknum, þróun og miðlun upplýsinga. Jafnframt er það hlutverk
Veðurstofunnar að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega hagkvæmni.
Nánari upplýsingar um Veðurstofu Íslands má finna á vedur.is
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða í tvö spennandi störf:
Snjóflóðasérfræðingur á Eftirlits- og spásviði
Á sviðinu starfa rúmlega 50 starfsmenn við ýmis störf er leika lykilhlutverk í íslensku samfélagi þegar kemur að eftirliti, vöktun og þjónustu
vegna náttúruvár og veðurs. Viðkomandi er hluti af samstilltu teymi sérfræðinga ofanflóðavöktunar Veðurstofunnar, sem er í nánu samstarfi
meðal annars við snjóathugunarfólk víðsvegar um landið og veðurfræðinga á vakt.
Sérfræðingur á sviði ofanflóðahættumats á Úrvinnslu-og rannsóknasviði
Á sviðinu starfa rúmlega 50 manns við ýmis spennandi þróunar- og rannsóknaverkefni er tengjast veður- og loftslagsrannsóknum, ofanflóðum,
jökla-, vatna- og haffræði, jarðskorpuhreyfingum og eldgosum. Viðkomandi yrði hluti af teymi 10 sérfræðinga á fagsviði ofanflóða.
Hópurinn vinnur meðal annars að hættumati, vöktun og rannsókna- og þróunarverkefnum tengdum ofanflóðum.
Ef þú hefur áhuga á að vinna í samstilltu teymi sérfræðinga sem sinnir mikilvægum og krefjandi verkefnum þegar kemur
að eftirliti, vöktun, rannsóknum og þjónustu vegna náttúruvár og veðurs, þá skaltu kynna þér störfin á Starfatorginu –
starfatorg.is en þar eru að finna nánari upplýsingar og hæfniskröfur sem gerðar eru.
Umsóknafrestur er til og með 2. júní, 2020.
– sem sinna eftirliti, vöktun, rannsóknum og þjónustu vegna ofanflóða
TVÖ STÖRF Í ÖFLUGU TEYMI SÉRFRÆÐINGA
Gildi Veðurstofunnar eru
þekking áreiðanleiki,
framsækni og samvinna.
Ráðningar hjá stofnuninni taka
mið af þessum gildum.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára