Fréttablaðið - 23.05.2020, Qupperneq 41
Spennandi störf hjá SSNV
Capacent — leiðir til árangurs
Starfssvæði SSNV nær yfir
7 sveitarfélög frá Hrútafirði í
vestri yfir í Skagafjörð í austri.
Starfsmenn samtakanna
eru 7. Samtökin vinna að
framkvæmd Sóknaráætlunar
Norðurlands vestra,
atvinnuþróun og öðrum
sameiginlegum verkefnum
sveitarfélaganna. Á
Norðurlandi vestra búa um
7000 manns í fjölskylduvænum
samfélögum í nálægð
við stórbrotna náttúru.
Tómstundastarf er fjölbreytt og
menningarlíf gróskumikið.
Umsækjendur eru beðnir um
að sækja um störfin í gegnum
Alfreð: www.alfred.is
Upplýsingar og umsókn
https://alfred.is/starfsgrein/laus-storf?search=ssnv
Umsóknarfrestur
7. júní
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) leita að starfsmönnum í eftirtalin störf.
Bókhald og almenn skrifstofustörf
á Hvammstanga
Helstu verkefni eru umsjón og færsla bókhalds
samtakanna, skjalavarsla, almennt skrifstofuhald og
ýmiskonar aðstoð við framkvæmdastjóra. Um 50% starf
er að ræða.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi, viðurkenndur bókari er kostur.
Haldbær reynsla af færslu bókhalds í Navision
bókhaldskerfi eða sambærilegum kerfum.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum,
frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Nákvæmni og greiningarhæfni.
Góð almenn tölvukunnátta, sérstaklega á Excel.
Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
Atvinnuráðgjafi með áherslu á
nýsköpun á Sauðárkróki
Helstu verkefni atvinnuráðgjafa eru aðstoð við
gerð rekstrar- og markaðsáætlana, gerð styrks- og
lánaumsókna, aðstoð við fjármögnun, stofnun fyrirtækja
o.s.frv. Sérstök áhersla verður lögð á stuðning við
nýsköpunarfyrirtæki á Norðurlandi vestra, eflingu þeirra
og fjölgun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi.
Haldbær þekking/reynsla af rekstri.
Reynsla af gerð rekstraráætlana.
Þekking á styrkja- og nýsköpunarumhverfinu er kostur.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum,
frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góð almenn tölvukunnátta.
Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is
Viðskiptastjóri
á apóteks- og sérvörumarkaði
Heilsa óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf viðskiptastjóra.
Viðkomandi mun leiða verkefni apóteks- og sérvörumarkaðar, bera ábyrgð á sölu og
kynningu á vörum fyrirtækisins til apóteka, fagaðila og sérverslana ásamt samskiptum
við viðskiptavini.
Við leitum að góðum sölumanni með brennandi áhuga á heilbrigðum lífsstíl,
fæðubótarefnum, snyrtivörum og vellíðunartengdum vörum.
Menntunar og hæfniskröfur
• Mjög góðir samskiptahæfileikar og lausnarmiðað viðhorf
• Geta til að koma fram og halda kynningar skilyrði
• Reynsla af sölustörfum og þekking á heilsuvörum
• Þekking á ensku og/eða norðurlandamáli
• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta, þekking á NAV kostur
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní n.k. Umsækjendur eru vinsamlega
beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Heilsu, heilsa.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Bára Einarsdóttir, sölustjóri, í síma 517-0685.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 2 3 . M A Í 2 0 2 0