Fréttablaðið - 23.05.2020, Síða 43
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Skima fyrir og greina málþroskavanda barna
með áherslu á áætlanagerð og eftirfylgd.
• Bjóða upp á íhlutun með áherslu á að nota
árangursríkar leiðir í starfi.
• Þátttaka í teymisvinnu með starfsfólki grunn-
skóla og veita ráðgjöfum viðeigandi úrræði
vegna málhljóða- og málþroskaraskana auk
annarra talmeina.
• Þátttaka í fræðslu um málþroska, málþroska-
röskun og áhrif hennar á möguleika til menntunar.
• Leiðbeina og fræða foreldra um málþroska
og leiðir til að efla hann.
• Þátttaka í þróun skólastarfs er varðar málþroska
og læsi í samvinnu við stjórnendur skóla og
samstarfsfólk.
• Stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum varðandi
málþroska og læsi barna á grunnskólaaldri með
því að beita snemmtækri íhlutun ásamt því að
vera þátttakandi í skipulagðri íhlutun og kennslu
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf í talmeinafræði og leyfi til að
starfa sem talmeinafræðingur.
• Þekking og reynsla af skólastarfi æskileg.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Hæfni til að sinna fræðslu og ráðgjöf til
nemenda, starfsmanna og foreldra.
• Góð almenn tæknikunnátta
(s.s. á fjarkennslubúnaði) nauðsynleg.
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og
skipulagshæfni.
• Faglegur metnaður til að efla málþroska og
læsi nemenda.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig
í ræðu og riti.
V IRÐING • V IRKNI • VELFERÐ
Skóla- og frístundasvið ásamt
velferðarsviði Reykjavíkurborgar auglýsir lausar
fimm stöður talmeinafræðinga
Talmeinafræðingar starfa samkvæmt Menntastefnu Reykjavíkurborgar ; Látum draumana rætast og stefnu
um skóla án aðgreiningar. Talmeinafræðingar, í samstarfi við annað starfsfólk, taka þátt í að efla málþroska
og læsi nemenda með árangur í námi að leiðarljósi. Starfsstöð er á þjónustumiðstöðvum en starfið
fer að hluta til fram í grunnskólum borgarinnar og náið samstarf verður með öðrum sérfræðingum
á báðum starfsstöðum.
Skóla- og frístundasvið og velferðarsvið
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að kynna sér og nota rafrænar lausnir í þjónustu
við nemendur skólanna.
Starfshlutfall er 100% og laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og
viðkomandi stéttarfélags. Umsókn fylgi stuttur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið,
yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf talmeinafræðinga og annað er málið varðar.
Viðkomandi skal hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Umsækjendum er bent á að sækja um starfið á starfavef Reykjavíkurborgar
https://reykjavik.is/laus-storf/oll-storf
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní en ráðið verður í starfið 17. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar um störfin veita Arnheiður Helgadóttir, arnheidur.helgadottir@reykjavik.is,
Helgi H Viborg, helgi.viborg@reykjavik.is og Þóra Sæunn Úlfsdóttir, thora.saeunn.ulfsdottir@reykjavik.is
Talmeinafræðingar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli
það margbreytilega samfélag sem borgin er
Náms- og starfsráðgjafi
óskast til starfa
Borgarhólsskóli er tæplega 300 barna skóli á Húsavík.
Þar fer fram metnaðarfullt skólastarf og áhersla er lögð
á jákvæð samskipti og samveru. Skólinn nýtir uppeldis-
stefnuna Jákvæður agi og teymiskennslu.
Sjá nánar, www.borgarholsskoli.is
80 % starfshlutfall
Hæfniskröfur
· Starfsréttindi sem námsráðgjafi
· Sjálfstæð vinnubrögð
· Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
· Jákvæðni og frumkvæði
Helstu verkefni:
Náms- og starfsráðgjöf í grunnskóla felst í því að vinna
með nemendum, foreldrum, kennurum, skólastjórnendum
og öðrum starfsmönnum skólans að ýmiss konar vel-
ferðarstarfi er snýr að námi, líðan og framtíðaráformum
nemenda. Náms- og starfsráðgjöf felst í því að liðsinna
nemendum við að finna hæfileikum sínum, áhugasviðum
og kröftum farveg.
Hvetjum jafnt karla sem konur til að sækja um.
Leyfisbréf skal fylgja umsókn sem og ferilskrá skal fylgja
umsókn sem og afrit af prófskírteinum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Launanefndar
Sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2020. Umsóknum skal skila í
tölvupósti á netfangið threyk@borgarholsskoli.is
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Erum við
að leita að þér?