Fréttablaðið - 23.05.2020, Page 80

Fréttablaðið - 23.05.2020, Page 80
HÚSIÐ SJÁLFT VAR AUÐVITAÐ GLÆSILEGT EN JAFNFRAMT VAR MIKIÐ LAGT Í ALLA INNAN- STOKKSMUNI, SKREYT- INGAR, BORÐBÚNAÐ OG LISTMUNI. Má n u d a g i n n 25.  maí eru 90 ár frá opnun hót el si n s en veitingastaður-inn og skemmti- staðurinn höfðu verið opnuð aðeins fyrr á árinu 1930. Af því tilefni mun Stefán Pálsson leiða gesti um húsið milli klukkan 16.30 og 19 og fara yfir sögu hótelsins sem nú er eitt Keahótela. „Þetta var eiginlega magnað afrek því húsið var opnað um 18 mánuð- um eftir að framkvæmdir hófust. Í raun mátti ekki tæpara standa þar sem menn réru lífróður við að ná að opna fyrir sumarið 1930 þar sem Alþingishátíðin var fram undan,“ segir Stefán sem hefur kynnt sér sögu Borgarinnar í þaula. „Íslendingar höfðu ákveðið að halda gríðarlega mikla hátíð til að fagna 1.000 ára afmæli Alþingis þetta sumarið og er hún kveikjan að byggingu hótelsins. Þetta er langstærsta hátíð sem Íslendingar hafa haldið og var ókjörum öllum af erlendum þingmönnum, gestum og kóngafólki boðið. Með svona straum til bæjarins var ljóst að eitthvað þyrfti að gera enda höfðum við aldrei fyrr fengið marga tigna gesti í einu. Litlu gisti- heimilin sem fyrir voru náðu engu máli og menn höfðu af þessu þungar áhyggjur. Hinn magnaði Jóhannes á Borg Þá stígur inn hin magnaða týpa Jóhannes Jósefsson glímukappi, sem síðar kenndi sig alltaf við Borgina. Hann var ofboðslega mikill Íslend- ingasögukall svo Borgar nafnið vísar ekkert í Reykjavíkurborg, heldur Borg á Mýrum þar sem Skallagrímur og Egill höfðust við fyrr á öldum. Jóhannes hafði í 20 ár lifað mjög ævintýralegu lífi þar sem hann starfaði sem glímukappi og af l- raunamaður í fjölleikahúsum, sér- staklega í Bandaríkjunum. Þar hafði hann kynnst stórstjörnum og var til að mynda persónulegur vinur Houdini. Hann kemur hingað til lands til að setjast í helgan stein og setur allt sitt sparifé í að byggja Hótel Borg en fær á móti ábyrgð frá bæði ríki og borg, gegn því að hótelið verði klárað fyrir Alþingishátíðina og það tókst. Tímaáætlunin stóðst vel en kostnaðurinn varð tvöfalt það sem lagt var upp með í byrjun.“ Fjörutíu herbergja lúxushótelið var hannað af Guðjóni Samúels- syni og voru húsakynnin glæsi- legri en fólk átti að venjast hér á landi. „Þegar fólk sá veislusalina sagði það strax að upplifunin væri eins og að koma til útlanda, eins og að sigla eins og sagt var. Húsið sjálft var auðvitað glæsilegt en jafnframt var mikið lagt í alla innanstokks- muni, skreytingar, borðbúnað og listmuni.“ Hálftómt lúxushótel Að hátíðinni lokinni kom það í ljós að ferðamannatímabilið var ekki sérstaklega langt hér á landi. „Reksturinn var erfiður enda þetta fína hótel hálftómt stóran hluta ársins. Ríkið hljóp þá undir bagga og eiginlega svipti aðra veitinga- staði vínveitingaleyfi svo Borgin sat ein að því. Um allnokkurt skeið var Borgin því eina löglega vínveit- ingahúsið á landinu og lengi vel lykilstofnun í öllu skemmtanalífi og tónlistarsögu hér á landi. Allar fínni samkomur voru haldnar á Borginni og það er ekkert fyrr en vel eftir stríð að það fara að verða einhverjir aðrir valkostir. Það má kalla fjórða áratuginn gullöld Borgarinnar enda þótti það fádæma munaður að fara þangað. Meirihluti herbergja var með sitt eigið bað eða sturtu en það var ekki orðinn standard útbúnaður nema á heimilum betri borgara. Þokkalega vel stæðir Reykvíkingar hituðu bara vatn í bala á eldhúsgólfinu ef þeir ætluðu í bað, sem þeir gerðu reynd- Ævintýrin á Borginni Á mánudaginn eru 90 ár frá því Hótel Borg opnaði dyrnar fyrir gestum og af því tilefni rifjaði sagnfræðingurinn Stefán Pálsson upp söguna á bak við hótelið og fyrstu ár rekstursins sem voru í raun ævintýraleg. Mynd frá árinu 1930 þegar Hótel Borg opnaði fyrst dyrnar fyrir gestum stuttu fyrir Alþingis- hátíðina en stóð svo nánast tóm árin á eftir. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Eins og sjá má var mikið lagt upp úr því að þjónar staðarins væru virðulegir.Þernurnar á Borginni árið 1935. Einn fyrstu matseðla Borgarinnar sýnir að réttirnir voru mun látlausari á ástkæra ylhýra en á frönsku. Mynd tekin á bilinu 1950 til 1955. Húsband Borgarinnar, hljómsveit Carls Billich. MYND/LJÓS- MYNDASAFN REYKJAVÍKUR Jóhannes og eiginkona hans Karólína bjuggu á hótelinu og þegar þau skildu flutti hún í turn- herbergið en hann á fyrstu hæðina. Stefán Pálsson, sagnfræðingur. MYND/GEIRIX Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is ar litið af,“ segir Stefán og hlær. „Það var ekkert við stærðina á íslensku samfélagi né stöðu túr- ismans sem réttlætti það að ráðast í byggingu lúxushótels á þessum tíma og það korter í kreppu. Þetta hefði aldrei verið gert nema vegna þessarar tilviljunar, að þessi sér- kennilegi eigandi er reiðubúinn að setja umtalsvert fé í þetta og ríkið vill að hótelið sé byggt.“ Stefán bendir á að f lestar aðrar atvinnugreinar hefðu verið arð- bærari fyrir Jóhannes. „En hann var auðvitað búinn að lifa hálfgerðu glamúrlífi, var vanur því að búa á hótelum og þekkti nýjasta banda- ríska lúxusinn.“ Eiginkona Jóhannesar, Karólína Amalía Guðlaugsdóttir, átti stóran þátt í að byggja hótelið upp með honum. „Lengi vel bjuggu þau hjónin í hótelbyggingunni þar sem þau voru með þjóna og matreiðslu- menn á sínum snærum. Þegar þau svo skildu f lutti hún í turninn og hann bjó á fyrstu hæðinni.“ Stefán segir opnun Hótel Borgar hafa breytt borgarbragnum töluvert og að það sé ekki að ástæðulausu að ákveðin rómantík sé yfir bygg- ingunni í huga fólks. „Byggingin kippti mönnum inn í nútímann og var eins konar gluggi inn í erlendan glamúr og í raun er dálítið magnað að menn hafi náð að upplifa slíkt hér á landi á þessum tíma.“ Stefán mun eins og fyrr segir leiða gesti um Hótel Borg á afmælisdag- inn en einnig mun Sigríður Thorla- cius syngja tóna sem ómað hafa á Borginni í gegnum tíðina og henni til halds og trausts verða tónlistar- mennirnir Guðmundur Óskar og Ómar Guðjónsson. 2 3 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.