Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 6
Ályktanir aðalfundar ÖBÍ
Öryrkjabandalag íslands fagnar
þeirri ákvörðun stjórnvalda að
leggja til að hluta þeirra fjármuna,
sem fengust fyrir Landssímann,
skuli varið til uppbyggingar úr-
ræða fyrir geðfatlaða. Eins er
ákvörðun stjórnvalda að efla
starfsendurhæfingu fagnaðar-
efni, en á hinn bóginn er á engan
hátt hægt að fallast á að sú efling
feli í sér um leið kjararýrnun líf-
eyrisþega eins og kemur fram í
nýframlögðu frumvarpi til fjárlaga
fyrir næsta ár.
Öryrkjabandalag íslands krefst
þess að ríkisvaldið hverfi af þeirri
braut að skerða markvisst kjör fatl-
aðra og lífeyrisþega, en að undan-
förnu hafa kjör vegna bifreiðakaupa
hreyfihamlaðra verið skert, hlutdeild
neytenda í lyfjakostnaði verið aukin,
gjöld fyrir hvers kyns þjálfun verið
hækkuð og nú er uppbót á elli- og
örorkulífeyri vegna reksturs bifreiðar
í uppnámi. Bandalagið bendireinnig
á að fyrirhugaður sparnaður á bót-
um samkvæmt lögum um félags-
lega aðstoð samræmist ekki þeim
mikla tekjuafgangi sem áætlaður er
af ríkissjóði. Á meðan dregið er úr
sköttum á hátekjufólk eru álögur á
fatlaða auknar og bein tekjurýrnun
boðuð.
Öryrkjabandalag íslands telur að
brýna nauðsyn beri til að endur-
skoða nú þegar lög um almanna-
tryggingar. Einfalda þarf ýmsa þætti
laganna og tryggja afkomuöryggi líf-
eyrisþega. Síauknar tekjutengingar
eru stórkostlegt vandamál. Banda-
lagið vekur athygli á að hér á landi
eru færri öryrkjar en á öðrum Norð-
urlöndum og fram að þessu hefur
ísland skorið sig úr vegna meiri at-
vinnuþátttöku fatlaðra en víðast
hvar í Evrópu. Jafnframt hefur kom-
ið í Ijós að endurhæfingarúrræði eru
færri hér á landi en víðast hvar í
Vestur-Evrópu. Upphæðir sem ætl-
aðar eru til framfærslu hér eru mun
lægri en á öðrum Norðurlöndum, en
verðlag þó hærra.
Öryrkjabandalag íslands lýsir sig
reiðubúið til samstarfs við stjórnvöld
um raunhæfar úrbætur í málefnum
fatlaðra og skorar á stjórnvöld að
hefja virkt samráð í stað þess að
setja samtök fatlaðra jafnan hjá
þegar ákvarðanir eru teknar um kjör
þeirra. Bandalagið minnir á kjörorð
Evrópusamtaka fatlaðra, Ekkert um
okkur án okkar.
Öryrkjabandalag íslands skorar
að lokum á ríkisstjórn íslands að
standa við samkomulagið frá 24.
mars 2003 og forðast þannig mála-
ferli. Fullnusta samkomulagsins og
virkt samráð við samtök fatlaðra er
lykill að framþróun sem færir íslend-
ingum Eitt samfélag fyrir alla.
Arnþór framkvæmdastjóri og Sigursteinn nýkjörinn Fyrrverandi formenn ÖBÍ þeir Garðar og Emil.
formaður ÖBÍ.
6
www.obi.is