Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 13
AÐILDARFÉLÖG
Að mörgu að hyggja hjá
Parkinsonsamtökunum á
íslandi
Stjórn Parkinsonsamtakanna
Á aðalfundi samtakanna 17. apríl
árið 2004 voru eftirtalin kosin í
stjórn: Jón Sigurðsson formaður til
eins árs, Guðmundur Guðmunds-
son til tveggja ára, Héðinn Waage til
tveggja ára, Tryggvi Sigurbjarnar-
son og Sólveig Eggertsdóttir vara-
menn til tveggja ára. Fyrir í stjórn-
inni voru Ólína Sveinsdóttir, Siglinde
Sigurbjarnarson varamaður, Karl M.
Karlsson og Einar Gylfi Jónsson.
Guðmundur og Sólveig gefa ekki
kost á sér í næstu stjórn og eru
þeim færðar bestu þakkir fyrir sam-
starfið. Þau eru hins vegar tilbúin að
starfa að einstökum verkefnum.
Stjórnin kom fyrst saman 26. apríl
og byrjaði á að skipta þannig með
sér verkum: Tryggvi varaformaður,
Einar Gylfi ritari, Ólína gjaldkeri en
Guðmundur, Héðinn og Karl með-
stjórnendur. Siglinde tók að sér að
vera vararitari.
Samþykkt var að halda stjórnar-
fundi hálfsmánaðarlega fram í júní
en eftir það var fastur fundardagur
fyrsti mánudagur hvers mánaðar.
Stjórnarfundir á starfsárinu voru
sautján, auk fræðslufundar, jóla-
fundar, um tíu laugardagsfunda á
vegum Sigurvonar, en þeir hafa ver-
ið vel sóttir af fólki á öllum aldri.
Félagsfundirnir hafa að mestu
dottið niður, en á hinn bóginn hafa
verið skipulögð til dæmis dans- og
söngvakvöld í Bústaðakirkju.
Haustferð var farin í draugaskoð-
un á Stokkseyri með tveimur valin-
kunnum leiðsögumönnum, Þór Vig-
fússyni og Tryggva Sigurbjarnar-
syni.
Fræðsluráðstefna var haldin í
október og var þemað rafskautaað-
gerðir, ásamt fyrir- og eftirmeðferð.
Anna Lena Törnquist hjúkrunarfor-
stjóri og Stig Rehncrona yfirskurð-
læknir á Háskólasjúkrahúsinu í
Lundi voru sérstakir gestir ráðstefn-
unnar, en þeim var boðið að undir-
lagi Þórarins Guðlaugssonar og
Vignis Jónssonar, sem fóru í raf-
skautaaðgerð til Lundar á síðasta
ári. íslenskir fyrirlesarar voru Sig-
urður Thorlacius, tryggingayfirlækn-
ir og taugalæknarnir Grétar Guð-
mundsson og Sigurlaug Svein-
björnsdóttir. Fyrirlestrarnir birtust í
Fréttabréfi Parkinsonsamtakanna,
1. útg. 2005.
Skrifstofan hefur verið opin alla
virka daga frá 10-12, en væntanlega
mun opnunartími lengjast. Samtökin
hafa fjárfest í stafrænni myndavél
og svokölluðu chatter vox tæki eða
talhækkunartæki sem er hljóðnemi
og lítill hátalari, mjög þægilegt tæki
fyrir þá sem misst hafa raddstyrk.
Fréttabréfið kom út tvisvar árið
2004 og stærra og veigameira blað
kom út í febrúar 2005. Rætt hefur
verið um breytingar á útgáfunni og
jafnframt endurbætur á heimasíðu
samtakanna: www.parkinson.is
Til viðbótar því mun ný heimasíða
ÖBÍ væntanlega nýtast öllum aðild-
arfélögum og félagsmönnum þeirra.
Erlend samskipti hafa verið með
svipuðu móti og áður og fóru fulltrú-
ar héðan á ráðstefnur í Danmörku
og Lissabon. Einnig fóru fulltrúar á
þing Norrænu Parkinsonsamtak-
anna en árið 2006 fellur það í hlut
Parkinsonsamtakanna á íslandi að
halda þingið hér á landi.
Viðræður við Parkinsonfélag
Akureyrar og nágrennis leiddu til
^ Ij ?
þess að samþykkt var að félagið
verði deild innan Parkinsonsamtak-
anna á íslandi.
Félagsmönnum var boðin frí
húðskönnun til að kanna vítamínbú-
skap líkamans og kynning á andox-
unarefnum í því sambandi. Þó
nokkrir nýttu sér boðið.
Málefni B2, taugadeildar LSH
hafa verið talsvert í brennidepli und-
anfarið ár og hefur stjórn fundað
með starfsfólki deildarinnar. Reynt
hefur verið að þrýsta á um úrbætur í
þjónustu. Samstarfið við taugadeild-
ina hefur aukist og erum við vonandi
á réttri braut í þeim efnum.
Undirbúningsvinnu við jafningja-
stuðninginn er að mestu lokið og er
verið að mynda teymi sem tekur til
starfa innan skamms.
Að lokum
Starfsárið hefur verið fremur
annasamt og að mörgu að hyggja.
Parkinsonsamtökin eru stöðugt að
færa út kvíarnar, bæði út á við með
þrýstingi og eins inn á við, ekki síst
með stuðningi við nýgreinda ein-
staklinga. Alltaf er unnt að taka við
nýjum hugmyndum og fleiri einstak-
lingum sem geta lagt okkur lið til
þess að gera Parkinsonsamtökin
betri og meira aðlaðandi fyrirfélags-
menn.
Unnið upp úr skýrslu stjórnar
starfsárið 2004-2005.
-bþ-
tímarit öryrkjabandalagsins
13