Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 14

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 14
AÐILDARFÉLÖG Stómasamtök íslands Starfsárið 2004-2005 Að loknum aðalfundi Stóma- samtaka íslands 2004 skipuðu eftirtalin stjórn samtakanna: For- maður Kristján Freyr Helgason, varaformaður Kjartan Sigurjóns- son, ritari Inger Rós Jónsdóttir, gjaldkeri Jón Þorkelsson, með- stjórnandi Ingibjörg Jónsdóttir og varamenn Sigríður Guðný Rögnvaldsdóttir og Rósa Ágústa Rögnvaldsdóttir. Aðild að ÖBÍ Fyrsta verk stjórnar var að ganga endanlega frá umsókn samtakanna í Öryrkjabandalag íslands og á haustmánuðum 2004 urðu Stóma- samtök íslands þrítugasta aðildarfé- lag ÖBÍ. Með þessu hafa Stóma- samtökin skotið annarri styrkri stoð undir félagsstarfið og hagsmuna- gæslu til viðbótar við baklandið sem þau hafa alla tíð haft frá Krabba- meinsfélagi íslands. Starf innan Krabbameinsfélags- ins og fræðsiufundir Formaður samtakanna var skip- aður í starfsnefnd á vegum Krabba- meinsfélags íslands. Skyldi nefndin ganga frá tillögum um fjármál og fjáröflun félagsins sem hún og gerði. Stjórnarmenn Stómasamtakanna hafa einnig sótt fjölmarga fundi á vegum stuðningshópa innan Krabbameinsfélagsins, þar sem fjallað hefur verið um samstarf hóp- anna innbyrðis og við félagið. Starfstímabil Stómasamtakanna 2004-2005 hófst með sameiginleg- um fundi stuðningshópanna. Fund- urinn var fjölsóttur og þótti einkar vel heppnaður. í október var haldinn fé- lagsfundur á Akureyri sem þrír stjórnarmenn sóttu, ásamt Oddfríði Ragnheiði Jónsdóttur, stómahjúkr- unarfræðingi. Fundurinn var allvel sóttur og þykir tilefni til að hafa slík- an fund árvissan til að efla sam- bandið á milli stómaþega norðan og sunnan heiða. í nóvember var haldinn opinn fé- lagsfundur, þar sem Daníel Ólason, sálfræðingur og lektor við Háskóla íslands, flutti erindi um gildi þess fyrir fólk að vera jákvætt í afstöðu sinni og nálgun að erfiðum viðfangs- efnum. Næsti opni fundur var hald- inn í janúar í samvinnu við Crohns & Colitis Ulcerosa samtökin á íslandi (CCU). Jónína S. Jónsdóttir, lyfja- fræðingur, fjallaði um helstu lyf sem eru notuð í baráttunni við bólgusjúk- dóma í ristli. Einnig kynnti Jónína þá þjónustu sem Lyf og heilsa bjóða stómaþegum. I mars héldu Stómasamtökin og CCU annan sameiginlegan félags- fund, þar sem Tryggvi Stefánsson, skurðlæknir, og Kjartan Örvar, lyf- læknir, töluðu um bólgusjúkdóma í ristli og samvinnu lyflækna og skurðlækna við meðferð þessara sjúkdóma. Fundurinn var afar vel sóttur og mjög fróðlegur. Var það og mál manna að samvinna Stóma- samtakanna og CCU á þessu sviði væri gott framtak sem mætti gjarnan auka. í janúar var boðað til fundar með þeim sem skipa heimsóknarþjón- ustu Stómasamtakanna. Samþykkt var að hafa samband við hlutaðeig- andi aðila á Landspítala háskóla- sjúkrahúsi og óska eftir fundi til að reyna að koma betra skikki á þetta mikilvæga mál. Útgáfumál Fjögur tölublöð Fréttabréfs Stóma- samtakanna komu út á starfsárinu, undir ritstjórn Sigurðar Jóns Ólafs- sonar. Krabbameinsfélag íslands hefur stutt við útgáfuna og er sá stuðningur samtökunum mikils virði. Unnið hefur verið að uppsetningu nýrrar heimasíðu, en fleiri vantar til að koma að því verki og er hér með auglýst eftir áhugasömum félags- mönnum sem vilja taka þátt í starf- inu. Norrænt og fjölþjóðlegt sam- starf í október 2004 sóttu formaður og varaformaður fund norrænna stómasamtaka í Vesterás í Svíþjóð. Fundurinn var góður og margvísleg sameiginleg mál rædd. Má þar nefna samband stómasamtaka og framleiðenda stómavarnings og hvernig samskiptin geta best orðið, eins var rætt samnorrænt stómakort sem lengi hefur verið í undirbúningi og útgáfa fréttablaða. Síðast en ekki síst fór fram ítarleg umræða um heimsóknarþjónustu sem virðist sömu vandkvæðum háð á öllum Norðurlöndunum. Formaður sótti norrænan for- mannafund í janúar. Fundurinn var haldinn í Osló og var þar talsvert rætt um mögulega aðstoð norrænu stómasamtakanna við stómaþega í Austur-Evrópu. Úr varð að Stóma- samtök íslands og dönsku stóma- samtökin tóku að sér í sameiningu að annast málefni Úkraínu. Úkraína er fjölmennt land, láta má nærri að þar séu um 50.000 stómaþegar og úrræðin ekki upp á marga fiska. í þessu skyni voru sendar ýmsar 14 www.obi.is

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.