Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Side 19
Þakkir til
Öryrkjabandalags íslands
Eftir síðasta aðalfund Öryrkja-
bandalags íslands barst fram-
kvæmdastjóra meðfylgjandi bréf
frá Gísla Ásmundssyni, fyrrum
fulltrúa Tourette samtakanna í að-
alstjórn ÖBÍ.
Sæll Arnþór!
Aðalfundurinn í gær var síðasti
fundur minn hjá Öryrkjabandalag-
inu, að sinni að minnsta kosti. Ég
hef setið í aðalstjórn ÖBÍ fyrir hönd
Tourette samtakanna á íslandi síð-
astliðin fjögur ár og samhliða hef ég
verið í stjórn Tourette samtakanna.
Um leið og ég þakka þér og öllum
innan ÖBÍ gott samstarf og árang-
ursríkt vil ég upplýsa ÖBÍ um mikil-
vægi starfs aðildarfélaga ÖBÍ og þá
sérstaklega Tourette samtakanna,
sem ég þekki best. Ég á son sem
greindist með Tourette heilkenni sjö
til átta ára gamall og leitaði aðstoðar
Tourette samtakanna þá þegar.
Að geta gengið að hjálp og liðsinni
samtakanna, jafn hálparlaus og
einn og maður var á þeim tíma, var
ómetanlegt. Ég tel einnig að framtíð
sonar míns sé björt og árangur hans
bæði í námi, leik og starfi sé mikið
því að þakka að ég hafði eitthvað að
leita eftir aðstoð. í raun tel ég að
það hafi skipt sköpum fyrir þroska
og árangur sonar míns í námi og líf-
inu yfirleitt. Hann er 18 ára í dag,
gengur vel í námi og er á fljúgandi
ferð út í lífið. Það er starfi ÖBÍ og
starfi Tourette samtakanna að
þakka. Um leið og ég þakka ykkur
samstarfið vil ég upplýsa þetta.
Ég óska ÖBÍ og aðildarfélögum
velfarnaðar um ókomin ár og þakka
fyrir mig og son minn.
Gísli Ásmundsson
Fyrir hönd starfsmanna Öryrkja-
bandalags íslands eru Gísla Ás-
mundssyni þökkuð farsæl samskipti
og samstarf.
Arnþór Helgason
Hjálpartæki
Ný upplýsingasíða
Þann 1. október síðastliðinn var opnuð ný samevrópsk upplýsingasíða um margvísleg
hjálpartæki. Heimsíðan nefnist EASTIN sem er stytting fyrir European ASsistive
Technology Information Network. Upplýsingar á síðunni eru á ensku, dönsku, þýsku,
spænsku, ítölsku og hollensku.
Slóðin er: www.eastin.info
tímarit öryrkjabandalagsins
19