Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Síða 21
Tekjuáætlun fyrir árið 2006
Nákvæmni er þörf við útfyllingu eyðublaðs!
í lok nóvembermánaðar fengu ör-
yrkjar og aðrir lífeyrisþegar eins og
undanfarin þrjú ár bréf frá Trygg-
ingastofnun ríkisins ásamt eyðu-
blaði er kallast þetta árið Tekju-
áætlun fyrir árið 2006.
Margir kannast við þessa tekjuáætl-
un frá fyrri árum. Einnig kannast þús-
undir öryrkja við þá bakreikninga sem
þeim bárust í lok nóvember á síðast-
liðnu ári þar sem þeir voru krafðir um
þúsundir og allt upp í hundruð þús-
unda frá TR vegna ofgreiddra bóta
fyrir árið 2003. Öllu stærri hópur ör-
yrkja gat þó glaðst yfir að fá endur-
greiðslur vegna vangreiddra bóta.
Margt olli þessum kröfum á hendur
lífeyrisþegum en flest tilfelli voru
vegna misskilnings á útfyllingu tekju-
áætlunareyðublaðsins fyrir árið 2003.
Skýringa á því má meðal annars leita
í óljósum leiðbeiningum Trygginga-
stofnunar ríkisins.
Starfsmenn ÖBÍ vilja því hvetja alla
örorkulífeyrisþega til að fara vel yfir
tekjuáætlunarblað 2006 og skila með
leiðréttingum ef með þarf.
Útfylling tekjuáætlunar fyrir árið
2006
Fremsti dálkurinn útskýrir tekjuteg-
undir og frádrætti. í öðrum dálki, lituð-
um, Áætlaðar árstekjur 2006 eru birt-
ar tölur sem TR setur inn. Tölur TR
eru fengnar úr síðustu tekjuáætlun
eða úr síðasta skattframtali. Ef þær
tölur eru of háar eða lágar miðað við
það sem bótaþegi veit eða telur að
hann hafi í tekjur árið 2006, verður að
fylla inn í auða dálkinn við hliðina sem
heitir Leiðrétt áætlun um árstekjur
2006. Þar eiga réttar tölur að koma
inn. Allar tekjutölur verða að vera
heildartekjur (brúttó), það er áður en
skattur og annar frádráttur dregst frá
þeim. Margur hefur farið flatt á að
setja eingöngu inn þá upphæð sem
útborguð er. Gætið vel að þessu því
að TR leggur mikla áherslu á að það
sé bótaþegans að tekjuáætlunin sé
rétt fyllt út.
Hið sama gildir um tvo aftari dálk-
ana. Ef bótaþegi á maka, þarf að fara
yfir tölur i litaða dálknum sem TR hef-
ur sett inn. Ef þær eru ekki réttar þarf
að setja réttar tölur í aftari dálkinn.
Öllu skiptir að tölur sem koma fram í
dálkunum Leiðrétt áætlun um árstekj-
ur 2006 séu sem nákvæmast áætlað-
ar fyrir árið 2006.
Bótaþegi þarf því næst að undirrita
tekjuáætlunina og einnig maki þar
sem það á við. Annars er tekjuáætlun-
in ekki tekin gild!
Mælt er með að bótaþegi mæti í af-
greiðslu Tryggingastofnunar ríkisins
eða umboða hennar, þar sem þau
eru, láti stimpla tekjuáætlunarblaðið
við móttöku þess og fái afrit af því til
að geyma næstu sex árin. Sé ekki
kostur á slíku er fólki ráðlagt að taka
Ijósrit af tekjuáætlunarblaðinu, senda
frumritið síðan í ábyrgðarbréfi og
geyma póstkvittunina með Ijósritinu.
Óvæntar breytingar á tekjum árið
2006
Þeim sem verða fyrir því að tekjur
eða greiðslur til þeirra hækka á árinu
er skylt að tilkynna það strax til TR.
Annars eru bætur ofgreiddar og end-
urkrafa myndast með leiðinlegum af-
leiðingum. Hið sama gildir ef tekjur
eða aðrar greiðslur lækka. Þá skal til-
kynna það til TR til að fá réttar (hækk-
aðar) bætur frá stofnuninni.
Þegar slíkar breytingar verða á öðr-
um tíma ársins þarf að fylla út nýja
tekjuáætlun. Þetta eyðublað nefnist
Tekjuáætlun-tilkynning um tekjubreyt-
ingar og má nálgast á heimasíðu TR,
www.tr.is ef bótaþegi hefur aðgang að
tölvu. Annars má nálgast slíkt hjá TR
eða fá það sent.
Munið þegar þið afhendið eða
sendið TR eyðublaðið að fá það
stimplað við móttöku og haldið sjálf
eftir afriti af því næstu sex árin (sjá
leiðbeiningar hér ofar).
Gætið þess einnig að geyma launa-
seðla, greiðsluseðla frá lífeyrissjóðum
og aðra þá seðla sem tengjast skatt-
framtölum á einhvern hátt í jafnlangan
tíma.
Allar tekjur skerða bæturnar!
Hafið ætíð í huga að allar tekjur
skerða bætur og alltaf er reiknað út frá
heildartekjum, ekki því sem menn fá í
vasann. Til tekna teljast eigin launa-
tekjur, tekjur maka, lífeyrissjóðs-
greiðslur, eftirlaun, séreignarlífeyrir,
sumir styrkir, fjármagnstekjur, til dæm-
is leigutekjur, arður af hlutabréfum,
vextir/verðbætur af bankainnistæðum
og fleira. Tekjur skerða bætur mismik-
ið því að þær skiptast í fjölda tekju-
flokka. Af bótagreiðslum TR verður
tekjutryggingarauki fyrstur fyrir skerð-
ingu, eða frá fyrstu krónu sem bóta-
þegi fær í vasann annars staðar frá.
Þegar tekjutryggingaraukinn er að
fullu fallinn út tekur við skerðing á
tekjutryggingu og heimilisuppbót hjá
þeim sem þeirrar uppþótar njóta. Hér
verður ekki farið nánar ofan í saum-
ana á tekjutengingum og skerðingum
þeirra vegna. Því miður er það alltof
flókið mál sem ekki verður útskýrt í
stuttu greinarkorni.
Bára Snæfeld
upplýsingafulltrúi ÖBÍ
tímarit öryrkjabandalagsins
21