Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Side 24
Vin Reykjavík
Vin var stofnuð 8. febrúar 1993 og er til húsa að
Hverfisgötu 47 í Reykjavik, í húsnæði sem Reykjavík-
urborg á.
Vin er athvarf sem býður skjól, vernd, hlýju og um-
önnun, en einnig virkni og ábyrgð, eins og segir á
heimasíðu Vinjar. Mikið er lagt upp úr því I starfi að
hópurinn skiptist ekki í tvennt, starfsfólk og gesti,
heldur sé einungis um einn hóp að ræða sem ber
sameiginlega ábyrgð. Gengið er út frá þeirri stað-
reynd að enginn geti allt en allir geti eitthvað.
Gestir taka þátt í að elda heitan mat I hádeginu og
er hann seldur á kostnaðarverði, boðið er upp á bað-
og þvottaaðstöðu og hvíldarherbergi, aðgangurerað
tölvu með nettengingu, skipulagðar eru heimsóknir á
listsýningar og kaffihús, að ógleymdum ferðalögum
með ferðafélaginu Víðsýn. í Vin er einnig hægt að
lesa blöð, spjalla, hlusta á tónlist, njóta félagsskapar-
ins, allt eftir óskum hvers og eins.
Húsfundur er haldinn vikulega þar sem vikan fram-
undan er skipulögð. Gestir Vinjar taka virkan þátt í
kynningum á húsinu og aðstæðum sínum svo og
móttöku nema og ýmissa gesta.
Engar upplýsingar eru gefnar um gesti nema í
samráði við þá.
Hagnýtar upplýsingar
Opið erfrá 9.00-16.00 alla virka daga nema mánu-
daga þegar opið er 13.00-20.00 og yfir vetrartímann
er opið til kl. 20.00 á fimmtudögum. Á veturna sér
sjálfboðaliðahópur frá Ungmennahreyfingu Rauða
krossins um að hafa opið kl. 14.00-17.00 á sunnu-
dögum.
Síminn er: 561 2612; netfang: vin@redcross.is
Forstöðumaður Vinjar er Guðbjörg Sveinsdóttir.
Húsvinahópur
Húsvinahópur tók til starfa 2002. í honum eru fasta-
gestir Vinjar. Hópurinn hefur aðgang að Vin fyrir utan
hefðbundinn opnunartíma og er markmiðið að auka
stjórn gesta á starfsemi hússins. Skilyrði fyrir þátt-
töku er að hafa verið fastagestur I að minnsta kosti
þrjá mánuði, eiga ekki við virkan áfengis- eða fíkni-
efnavanda að stríða og hafa stjórn á hegðun sinni
þannig að aðrir hræðist ekki.
Æm*
Stofan í Vin er heimilisleg ...
24
www.obi.is