Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Síða 25

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Síða 25
Sameiginlega stefnumótun vantar Það sem hamlar félagslegri end- urhæfingu geðfatlaðra er að mínu mati skortur á sameiginlegri stefnu- mótun. Það er verið að gera allt mögulegt og búa til úrræði á ýmsum stöðum. Rauði krossinn gerir eitt, Geðhjálp annað, Svæðisskrifstofur málefna fatlaðra, félagsþjónustan og geðdeildir sitt, en það er engin sameiginleg stefna. Það er ekkert sem bindur starfið saman og þá get- ur hent að úrræðin lifi ekki af. Þekk- ingin og reynslan helst ef til vill ein- ungis hjá þeim sem eru að vinna að ákveðnu verkefni og beita ákveðn- um úrræðum, en það er enginn sem heldur utan um heildarúrræðin eða þá aðila sem að þeim koma. Innan heimahjúkrunar í Reykjavík er búið að setja á stofn geðheima- hjúkrunarteymi. Þau sem þar starfa vinna að mjög góðum hlutum, fara inn á sambýlin og vinna með lang- veikum. Það sem á skortir er hins vegar samfellan eins og ég nefndi í upphafi, það vantar að ræða um hug- myndafræði og stefnumótun. Það gengur ekki til lengdar að hvert og eitt okkar vinni í sínu horni og spurningin sé ætíð hver lifi af og hver ekki. Enginn kemur til dæmis til okkar í Vin til að athuga hvað við séum að gera. Sem forstöðumaður gæti ég verið að gera allt mögulegt, jafnvel eitthvað sem skaðaði einstakling- ana, án þess að nokkur skipti sér af því og án þess að nokkurt yfirvald kæmi þar að. Hér opnaði Rauði krossinn athvarf og þá er bara að halda áfram! Hins vegar skiptir eng- inn opinber aðili sér af því sem hér er gert, ekki heldur hjá Geðhjálp, Hugarafli eða Klúbbnum Geysi. Þótt starfað sé eftir ákveðinni hug- myndafræði þá er engin binding, ekkert sem tengir saman það sem verið er að gera á hinum mismun- andi stöðum. Það er ekki spurt um meginmarkmið starfseminnar og þá náttúrlega ekki heldur, hvað þurfi að uppfylla til þess að halda starfsem- inni áfram. Ég bý til ársskýrslu hér í Vin og skrái það sem gert er og það verður bara að treysta því að ég geri það af heilindum! Með þessu er ég ekki að óska eft- ir því að yfirvöld séu með puttann í öllu því sem verið er að gera, en ég sakna sameiginlegrar umræðu um markmið og leiðir. Það er ekki nóg að byggja .... Viðhorf til félagslegrar endurhæf- ingar hafa verið að breytast, þótt sú breyting hafi ekki verið sett fram á stefnumótandi t.átt. Það er stefnt að því að einstaklingar dvelji skamman tíma inni á geðdeild og fari síðan út í samfélagið og það er verið að þoka þeim sem búið hafa á geð- deildum í átt að sambýlum eða annarri búsetu utan stofnana. Um- hverfið mun því breytast, en þá vaknar spurningin hvað þurfi til að endurhæfa. Gamla steinsteypu- formið, íslenska leiðin að byggja sig út úr vandanum, dugir ekki. Það eru til sambýli í bænum þar sem fólk sit- ur bara og hefur afskaplega lítið fyr- ir stafni. Skortur á sameigin- legri stefnumótun hamlar félagslegri end- urhæfingu geðfatlaðra. Vandinn verður ekki leystur með því að færa einstaklinginn um stað, komi ekkert annað til getur innihald- ! 1 I r' | ' v 'z JHF jm- * 4 wmm Hk P ... þar sem fólki líður greinilega vel. tímarit öryrkjabandalagsins 25

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.