Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Side 26
Ferðafélagið Víðsýn
Víðsýn er ferðafélag gesta og starfsfólks Vinjar.
Það var stofnað 1999 og hefur að markmiði að fé-
lagsmenn hafi kost á því að ferðast innanlands sem
utan á sem hagkvæmastan hátt og með þeim stuðn-
ingi sem þarf.
í félaginu eru nú 40 félagar og skipa gestir og einn
starfsmaður stjórn. Langferðir eru undirbúnar með
allt að árs fyrirvara og gefst gestum færi á því að
leggja fyrir mánaðarlega upp í ferðakostnað.
Á heimasíðu Vinjar má lesa stórskemmtilegar
ferðasögur sem Arnar Valgeirsson hefur skráð.
Til dæmis um sautján manna hóp sem fór til Þela-
merkur í Noregi um mánaðamótin júní, júlí síðasta
sumar og tók þar þátt í norrænu sumarmóti geðhjálp-
arsamtaka. Markmið sumarmótanna er að gefa fólki
færi á því að kynnast innbyrðis, fá fræðslu um geð-
heilbrigðismál, ferðast og njóta samveru í skemmti-
legu umhverfi. Mótið í sumar var hið tuttugasta sem
haldið hefur verið og lék veðrið við þátttakendur. Einn
af hápunktum sumarmótanna er blakmót og í ár rúll-
aði Vinjarhópurinn andstæðingunum upp og lagði
þrjú lið, hið finnska, danska og norska. Það má því
með sanni segja um Víðsýnarfélaga að þeir hafi
komið, séð og sigrað!
Annar hópur, fimmtán manna, hélt til Kaupmanna-
hafnar um miðjan maí síðastliðinn. Margt var að
skoða í borginni við sundið, hópurinn leit inn á safn
Bertels Thorvaldsens, sem var hálfur Skagfirðingur
og hálfur Dani, einnig var komið við á Þjóðminjasafni
Dana eða Nationalmuseet þar sem sjá má margt
konunglegra djásna. Ekki er síður margt að skoða ut-
andyra og tók Guðlaugur Arason rithöfundur, sem
lengi hefur verið búsettur í Kaupmannahöfn, hópinn í
göngu um íslendingaslóðir. Ferðin var því í alla staði
hin ágætasta og að sjálfsögðu var notið ýmissa Ijúfra
veitinga í Nýhöfninni!
Úr Ijóðabókinni Daganna
kvæðakver eftir Leif Jó-
elsson.
Úr Þelamerkurferð Víðsýnarfélaga sumarið 2005. Hér er Leifur Jóelsson
í forgrunni en farið var með kláfi upp í þúsund metra hæð og útsýnis
notið.
Bókin var gefin út árið 2004 með
stuðningi Rauða kross íslands og
GuðjónsÓ. Leifur er einn af gest-
um Vinjar. Ljóðið er birt með góð-
fúslegu leyfi höfundar.
23.6.
Nema má af neyð og pín,
njóta gleðiminna,
fara um hugskot fornra kynna,
ferskum huga degi vinna.
Tal má kyrra ef kólnar þel,
kann að verma þögnin,
mörg kann þróast agnarögnin.
"Að minnast sjálfs sín" sefar hug,
en sumir telja,
sjálf sé ei annað en orðið eitt,
með öðrum þetta líf sé þreytt.
26
www.obi.is