Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 31

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Qupperneq 31
Lækur Hafnarfirði Lækur var stofnaður 24. september 2003 og standa Hafnarfjarðardeild Rauða krossins, Hafnar- fjarðarbær og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi að rekstrinum. Lækur er til húsa að Hörðuvöllum 1. Ekki sakar staðsetningin sem er við lækinn f Hafnarfirði þar sem fuglalíf er fjölbreytt og sí- breytilegt útsýni. Handhægar upplýsingar Opið er alla virka daga frá kl. 10.00-15.00. Síminn er: 566 8600; netfang: laekur@redcross.is Forstöðumaður Lækjar er Þórdís Guðjónsdóttir. Markmið starfseminnar er að auka lífsgildi, efla andlega, líkamlega og félagslega vellíðan og hæfni til daglegrar virkni. Lögð er áhersla á heimilislegt and- rúmsloft og er unnt að fá hádegisverð sem er undir- búinn sameiginlega af gestum og starfsmönnum. Gestum hefur fjölgað til muna frá opnun. í Læk er boðið upp á fjölbreytta dagskrá, bæði fyr- ir og eftir hádegi þar sem gestir ráða þátttöku að eig- in vild. Aðstaða er til listsköpunar, tölvur eru fyrir hendi, sem og þvotta- og baðaðstaða. Vikulegir hús- fundir eru haldnir og friðarstundir eru á hverjum degi. Frá vígsluhátíð Lækjar í Hafnarfirði að Hörðuvöllum 1, þann 24. september 2003. urs öryggis um framhaldið, vegna þess að fjárhagsgrundvöllur er ekki tryggður! í allri meðferð og endurhæfingu, félagslegri sem annarri, varðar mestu að einhver fari að trúa á þig sem einstakling, sem manneskju, fari að hrósa þér og möguleikunum sem þú býrð yfir, sjái styrkleikann sem býr í þér. Upphafsverkin þurfa ekki að vera flókin, kannski það að hella upp á kaffi, jafnvel sú athöfn getur skipt sköpum. Hingað kemur fólk sem hefur búið langdvölum inni á geðdeildum og spyr hvort það megi koma inn fyrir dyrnar, inn á skrifstofu og það að hella upp á kaffi er persónulegur sigur! Það er mjög ánægjulegt og gefandi að sjá fólk vaxa og dafna og öðlast getu til sjálfstæðra athafna. En það er ekki nóg að öðlast einhverju getu hér innan dyra, fara í sameiginlegar ferðir innanlands og utan eða gera eitthvað annað í öruggu umhverfi. Það sem öllu varðar er að geta gengið héðan út, út úr Vin, í þeirri fullvissu að hafa sama rétt og allir aðrir í samfélaginu. Þá fyrst erum við að gera rétt! Raddir allra verða að heyrast Það er einnig mikilvægt að styrkja hagsmunasamtök geðfatlaðra, styrkja til dæmis Geðhjálp og Hug- arafl sem eru að vinna að aukinni aðkomu geðfatlaðra að meðferð og ákvörðunum um leiðir. Það verður einnig að gæta þess að raddir allra heyrist, þannig að ekki verði einung- is tekið tillit til þeirra sem geta talað máli sínu sjálf. Einhver verður að vera talsmaður þeirra sem ekki megna að tala eigin máli, til dæmis þeirra sem eru á götunni og eru bæði geðfatlaðir og með fíknivanda. Þau eiga ekki marga talsmenn og satt best að segja, yfirleitt engan. Spurningin er hvernig unnt sé að endurhæfa og aðstoða þá einstak- linga. Það er ekki síst út frá þeim hópi sem margir segjast ekki vilja hafa alvarlega geðfatlaða einstak- linga í næsta nágrenni. Fólk getur oft orðið hrætt við hugsanlegt of- tímarit öryrkjabandalagsins 31

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.