Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Síða 34
Öflugt starf
Kvennahreyfingar ÖBÍ
... allt frá stofnun 8. mars síðastliðinn
Kvennahreyfing ÖBÍ var stofn-
uð á afar fjölmennum fundi í Há-
túni 10 þann 8. mars síðastliðinn.
Samkvæmt samþykktri stefnu-
skrá voru sjö konur valdar til for-
ystu á stofnfundinum. Þær eru:
Brynja Arthúrsdóttir, Guðbjörg
Kristín Eiríksdóttir, Jóhanna
Leópoldsdóttir, Kolbrún Dögg
Kristjánsdóttir, Ólína Sveinsdótt-
ir, Steinunn Þóra Árnadóttir og
Þorbera Fjölnisdóttir. Úr þessum
hópi voru valdar tvær talskonur,
þær Jóhanna Leópoldsdóttir og
Ólína Sveinsdóttir og einn fulltrúi
með seturétt á aðalfundi og aðal-
stjórnarfundum, Guðbjörg Kristín
Eiríksdóttir.
Mánaðarlegir laugardagsfundir
Forysta Kvennahreyfingarinnar
hefur hist að meðaltali tvisvar til þri-
svar í hverjum mánuði. Allt frá stofn-
fundi hafa verið skipulagðir almenn-
ir, opnir fundir síðasta laugardag í
hverjum mánuði. Fundirnir eru
haldnir frá ki. 11.00-13.00 á 9. hæð
í Hátúni 10. Frí var þó tekið yfir sum-
artímann, það er mánuðina júní, júlí
og ágúst. Góðir gestir hafa verið
fengnir á fundina til að halda fyrir-
lestra og ( kjölfarið hafa skapast
gagnlegar umræður um stöðu fatl-
aðra og langveikra kvenna.
Sigríður Lillý Baldursdóttir, eðl-
isfræðingur, hélt fyrirlestur undir
heitinu Afhverju konurnar - sérstaða
kvenna meðal öryrkja. Brynhildur
Flóvenz, lögfræðingur Mannrétt-
indaskrifstofu íslands, hélt erindi
með heitinu Réttindi fatlaðra - mis-
munur á milli réttarreglna og raun-
veruleikans. Dr. Rannveig Trausta-
dóttir og Hanna Björg Sigurjóns-
dóttir kynntu fötlunarfræði sem
fræðigrein og sögðu frá uppbygg-
ingu námsins í Háskóla íslands.
Vetrarstarfið hófst með því að
Arndís Guðmundsdóttir, félags-
málafulltrúi Sjálfsbjargar hélt erindi
er hún nefndi Um orðræður og völd:
Frá stofnfundi Kvennahreyfingarinnar 8. mars síðastliðinn
34
www.obi.is