Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Side 38
Kærleikskúla Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra
- árið 2005 -
Fyrsta Kærleikskúlan leit dags-
ins Ijós fyrir jólin 2003. Kærleiks-
kúlan er fallegur listmunur og
skemmtileg til söfnunar, en það
sem gerir hana dýrmæta er inni-
haldið - kærleikurinn sem hún
ber vott um.
Kærleikskúlan er blásin glerkúla.
Um Kærleikskúluna má segja svip-
að og um börnin í heiminum; engar
tvær eru nákvæmlega eins en hver
og ein fögur á sinn hátt.
Nafn kúlunnar er táknrænt en
markmiðið með gerð hennar er að
auðga líf fatlaðra barna og ung-
menna.
Fyrsta Kærleikskúla hvers árs
hefur verið afhent við hátíðlega
athöfn. Árið 2003 veitti forseti ís-
lands, herra Ólafur Ragnar Gríms-
son, fyrstu Kærleikskúlunni viðtöku
úr hendi Steinunnar Ásu Þorvalds-
dóttur. Ári síðar afhenti biskup ís-
lands, herra Karl Sigurbjörnsson,
Freyju Flaraldsdóttur fyrstu kúluna.
Fyrsta Kærleikskúla ársins 2005
verður afhent í Listasafni Reykjavík-
ur hinn 1. desember næstkomandi.
Fremstu listamenn þjóðarinnar hafa
lagt Styrktarfélaginu lið og var fyrsta
Kærleikskúlan eftir Erró, hann nefndi
verkið 2 málarar og er boðskapur þess
friður, jafnrétti, bræðralag. Aðra kúluna
hannaði Ólafur Elíasson og nefnist
verk hans Augað. í ár er það Rúrí sem
tjáir kærleikann með útliti kúlunnar.
_j
38
www.obi.is