Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Síða 40

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2005, Síða 40
Reykjadalur - gleði - árangur - ævintýri - Fái einhver orð lýst starfsem- inni sem fram fer í Reykjadal, eru það ofangreind: gleði - árangur - ævintýri. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur rekið sumar- og helgardvalar- stað í Reykjadal frá árinu 1963. Dvalargestir eru börn og ungmenni alls staðar að af landinu, sem eiga það sameiginlegt að eiga ekki völ á hefðbundinni sumardvöl vegna fötl- unar sinnar. Á hverju ári njóta um 200 börn og ungmenni dvalar í Reykjadal, í lengri eða skemmri tíma. Aldursbilið er allbreitt, eða frá sex ára til þrí- tugs. Flest eru hreyfihömluð og/eða þroskahömluð. Börn og ungmenni sem sækja Reykjadal heim þurfa allflest mikla þjónustu og er þeim óvíða boðið upp á sambærilega dvöl og þar býðst. Ekki síst þess vegna er ánægja, árangur og upplif- un þeirra sem njóta ómæld. Reykjadalur er fallegur og vel í sveit settur. Skammt er í fjalllendi og skemmtilegar gönguleiðir liggja víða. íþróttahús, sundlaug og heitur pottur eru á staðnum. Reiðhestar eru í næsta nágrenni og um 10 mín- útna akstur upp að Hafravatni þar sem hægt er að stunda siglingar. Margt er til boða, meðan á dvöl stendur og er megináhersla lögð á að örva frumkvæði og sjálfstraust ungmennanna. Markmiðið er að öll- um þyki gaman og fari börnin ánægð heim, þá er ætlunarverkið í höfn! í Reykjadal að sumri sem vetri... Sumardvöl í Reykjadal hefst í lok maí og stendur fram í miðjan ágúst. Reynt er að bjóða upp á ámóta starfsemi og í öðrum sumarbúðum, að teknu tilliti til getu hvers hóps. íþróttir og leikir skipa stóran sess, auk þess sem gönguferðir eru skipulagðar. Farið er á hestbak og siglt á bátum. Sundlaugin og heiti potturinn eru sívinsæl og njóta krakkarnir þess mjög að svamla í heitu vatninu. Yfir veturinn er starfsemi um helg- ar í Reykjadal. Fyrri vetraráfangi hefst í september og stendur fram í nóvember. Hinn síðari hefst í janúar og lýkur honum í mars. ... veitir sífellda gleði Dvöl í Reykjadal er ævintýri sem veitir ungmennunum frí frá alvöru hversdagsins. Að veltast um í grasinu eða snjónum, ærslast í heitri lauginni, strjúka hestunum og fá að fara á bak, sigla um á kanó, reyna sig í fjallgöngum, styrkja vina- bönd og eignast nýja vini, takast á, hlæja og skemmta sér ... allt þetta er hreinasta ævintýri. Birna Þórðardóttir Kökubakstur getur verið snúinn og eins gott að vanda sig, þannig að allt fari á besta veg. 40 www.obi.is

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.