Fréttablaðið - 03.06.2020, Page 16

Fréttablaðið - 03.06.2020, Page 16
Gylfi segist hafa verið orðinn það slæmur á síðasta tíma-bilinu sínu með Fylki að undir lokin gat hann æft mjög takmarkað með liðinu. Hann tók bara sterkar töflur fyrir leiki til að reyna að koma sér í gegnum þá. „Eins mikið og ég elska fótbolta þá varð ég að segja þetta gott og lagði skóna á hilluna um haustið 2011. Brjóskið í hægri mjöðminni var nánast ekkert og var bara bein í bein sem hefti hreyfanleika í mjöðminni,“ segir Gylfi. „Ég var búinn að hitta lækna á Íslandi sem ráðlögðu mér að fresta því að fara í mjaðmaskiptaaðgerð vegna þess hve stutt í raun hún virkar. Þeir sögðu mér að mjaðma- skiptaaðgerð væri nánast bara fyrir eldra fólk. Heilsa mín versn- aði bara og einfaldir hlutir eins og að reima á sig skóna eða klæða sig í sokka var vesen. Það tók líka pínu gleðina úr golfinu að vera farinn að haltra á áttundu eða níundu holu, þá ekki orðinn fertugur.“ Mjaðmaaðgerðin er besta ákvörðun sem ég hef tekið Fyrir um þremur árum heyrði Gylfi fyrir tilviljun af lækni í Belgíu að nafni Dr. Koen De Smet, sem var að gera svokallaðar „hip resurfacing“ mjaðmaaðgerðir. „Þær eru meira ætlaðar yngra fólki sem er aktíft og með sterk bein. Ég fór að lesa mér til um hip resurfacing og eftir að hafa kynnt mér Dr. Koen sem hafði gert 10 þúsund mjaðmaaðgerðir, þá vissi ég að þetta væri rétti kosturinn fyrir mig. Hip resurfacing er miklu minna inngrip og á að duga lengur,“ útskýrir Gylfi. Í janúar 2018 fór Gylfi svo til Gent í Belgíu í tvöfalda mjaðmaað- gerð hjá Dr. Koen De Smet, en eftir hana segist hann hafa öðlast nýtt líf. „Það var áhugavert að þarna var fólk samankomið frá öllum heimshornum til að hitta þennan færa lækni. Þarna var mikið af Svíum, Bandaríkjamönnum og Kínverjum. Til gamans þá var her- bergisfélagi minn 70 ára Kanada- maður, sem var þrátt fyrir að vera orðinn þetta gamall, gjaldgengur í hip resurfacing vegna þess hve sterk bein hann hafði,“ segir Gylfi. Gylfi segir þónokkra Íslendinga í svipuðum málum og hann var í hafa sett sig í samband við hann og spurt út í reynsluna af aðgerð- inni. Gylfi hefur glaður hjálpað þeim og tengt nokkra þeirra við Dr. Koen. „Að hafa farið í aðgerðina reyndist vera ein besta ákvörðun sem ég hef tekið því nú get ég fengið útrás í líkamsrækt og spilað golf án þess að vera með verki. Maður áttar sig á því hvað góð heilsa skiptir miklu máli, ekki síst fyrir andlegu hliðina.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Eftir að ég byrjaði að taka inn kolla- gen frá Feel Iceland fann ég aukinn liðleika í skrokknum og var fljótari að jafna mig eftir átök. Framhald af forsíðu ➛ Gylfi var úti í atvinnumennsku í mörg ár og lék líka með íslenska landsliðinu. Hann neyddist til að leggja skóna á hilluna árið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Kollagen bætiefnin hafa minnkað stirðleikann Gylfi segir að þrátt fyrir aðgerðina hafi hann samt oft verið stífur í bakinu eftir golfhring eða átök í ræktinni. Konan hans benti honum þá á kollagen bætiefni frá Feel Iceland en hún hafði sjálf verið að taka það inn. Hann segir Amino Marine kollagenið og Joint Rewind hylkin frá Feel Iceland hafa hjálpað mikið. „Ég hafði engu að tapa svo ég ákvað að prófa. Eftir að ég byrjaði að taka inn kollagen frá Feel Iceland fann ég aukinn liðleika í skrokknum og var fljótari að jafna mig eftir átök. Ég tek inn Amino Marine kollagen og Joint Rewind hylki. Ég set þetta út í kaffibollann á morgnana. Þetta er bara hluti af morgunrútínunni.“ segir Gylfi. Gylfi segir vörurnar líka góðar fyrir húð, hár og neglur og því séu þær góðar fyrir alla. „Mesti munurinn sem ég finn á mér er minni stirðleiki en ég er líka farinn að sofa betur. Ég er með stóra fjölskyldu og finn hvað orkan hefur aukist eftir að ég fór að taka inn þessi bætiefni. Það er mikill munur á mér, þess vegna mæli ég virkilega með þessum vörum.“ Feel Iceland fæst m.a. í Hagkaup, Heilsuhúsinu, Lyfju, Lyfjum og heilsu, Fjarðarkaupum, Apótekar- anum, Fríhöfninni og Jurtaapótek- inu. Nánar um vöruna á feeliceland. com 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.