Fréttablaðið - 03.06.2020, Side 20
Stefnandi er þjóð-
þekktur einstakl-
ingur og sú umfjöllun sem
finna má um stefnanda í
umræddri grein er rætin og
bornar á stefnanda alvar-
legar sakir um lögbrot.
Úr stefnu Lúðvíks Bergvinssonar
á hendur útgáfufélagi og ritstjóra
Viðskiptablaðsins.
Lúðvík Bergvinsson, hér-aðsdómslögmaður og fyrrverandi þingmaður S a m f y l k i n g a r i n n a r, hefur stefnt ritstjóra og útgáfufélagi Viðskipta-
blaðsins fyrir meiðyrði vegna skrifa
Óðins, nafnlauss pistlahöfundar í
blaðinu, um störf hans sem óháðs
kunnáttumanns vegna kaupa N1
á Festi. Hann krefur Trausta Haf-
liðason ritstjóra um samtals þrjár
milljónir króna í miskabætur.
Í stefnu Lúðvíks, sem er rituð
af lögmanni hans, Jóni Magnús-
syni, og Markaðurinn hefur undir
höndum, segir hann „liggja í augum
uppi, þegar birting umræddrar
greinar og umstefndra ummæla er
skoðuð, að ásetningur og tilraunir
stefndu til þess að sverta mannorð
stefnanda sé augljós“.
Ummælin sem hann vill að verði
dæmd dauð og ómerk séu „ósönn,
óviðurkvæmileg, tilhæfulaus og
smekklaus“ og til þess fallin að
sverta æru hans.
Lúðvík, sem var skipaður af Sam-
keppniseftirlitinu til þess að fylgjast
með því að skilyrðum í sátt N1 við
eftirlitið vegna kaupa olíufélagsins
á Festi væri fylgt eftir, krefst þess
Stefnir Viðskiptablaðinu fyrir meiðyrði
Lúðvík Bergvinsson, sem starfar sem óháður kunnáttumaður vegna kaupa N1 á Festi, telur virðingu sína hafa beðið hnekki vegna
skrifa Óðins um störf sín. Skrifin feli í sér ærumeiðandi aðdróttanir. Krefst ómerkingar ummæla og þriggja milljóna miskabóta.
Lúðvík Bergvinsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, var skipaður af Samkeppniseftirlitinu til þess að fylgjast
með að skilyrðum í sátt eftirlitsins við N1 vegna kaupa á Festi væri fylgt eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
Kristinn Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
nánar tiltekið að þrenn ummæli í
grein Óðins, „Hjörtun í Namibíu og
Borgartúni“, sem birtist í Viðskipta-
blaðinu um miðjan apríl síðastlið-
inn, verði dæmd dauð og ómerk.
Í pistli Óðins var fjallað með
gagnrýnum hætti um kostnað af
störfum Lúðvíks sem óháðs kunn-
áttumanns - en hann nam ríf-
lega fjörutíu milljónum króna frá
haustinu 2018 til loka síðasta árs -
og vísað til fréttar Markaðarins þess
efnis að kostnaðurinn hefði verið
um áttfalt hærri en kostnaður Haga
á sama tíma af störfum kunnáttu-
manns vegna kaupa smásölurisans
á Olís.
Forstjórinn hafði samband
Í fyrsta lagi krefst Lúðvík ómerking-
ar á eftirfarandi ummælum í pistli
Óðins um vinskap hans og aðstoð-
arforstjóra Samkeppniseftirlitsins:
„Við blasir að efasemdirnar um
Lúðvík voru ekki minni, sérstaklega
vegna vináttunnar við aðstoðarfor-
stjórann. Því jafnvel þó svo hann
hafi þar hvergi komið nærri að
nokkru leyti, þá leit það ekki þann-
ig út og burtskýringin kom ekki
fyrr en eftir að efasemdirnar höfðu
komið fram á opinberum vettvangi.
Sem sagt um seinan. Fyrir þá vini
báða, Lúðvík og Ásgeir, Samkeppn-
iseftirlitið og góða stjórnsýslu.“
Í stefnu Lúðvíks segir að með
ummælunum sé gefið í skyn að
hann hafi verið skipaður í starfið
vegna vináttunnar við aðstoðar-
forstjórann. Það sé fráleitt enda hafi
forstjóri N1, nú Festar, haft sam-
band við hann símleiðis, að eigin
frumkvæði, og farið þess á leit að
hann tæki starfann að sér. Stjórn-
endur Samkeppniseftirlitsins hafi
ekki verið í neinni aðstöðu til þess
að tryggja tengdum aðilum starfið
eða fjárhagslegan ávinning af starf-
inu.
Í öðru lagi vill hann að ómerkt
verði ummæli þess efnis að frétt-
irnar af „óheyrilegum kostnaði við
eftirlit með samruna eru án efa til-
efni í einn safaríkan Kveiks-þátt.
Óðinn hlakkar raunar til að sjá
Helga Seljan rannsaka þessa hlið-
stæðu. Hann getur varla látið svona
tækifæri fram hjá sér fara. Þeim
virðist svipa saman hjörtunum, í
Namibíu og Borgartúni“.
Ummælin gefa í skyn, að mati
Lúðvíks, að hann og Samkeppnis-
eftirlitið hafi haft rangt við og hann
sé hluti af einhvers konar meintri
spillingu hérlendra samkeppnis-
yfirvalda. Ekki sé nokkur fótur fyrir
því. Ásakanirnar séu ekki til neins
annars fallnar en að f lekka mann-
orð hans.
Þá krefst Lúðvík þess í þriðja
lagi að dæmd verði dauð og ómerk
ummæli í pistli Óðins á þá leið að
„öll skynsemis- og réttlætisrök
virðast hníga að því að Festi kæri
kunnáttumanninn fyrir tilhæfu-
lausa reikninga“.
Lúðvík telur ljóst að í umræddum
ummælum felist gróf ásökun þess
efnis að hann hafi gerst sekur um
að hafa haft fé af Festi með tilhæfu-
lausum reikningum en slíkt brot
teljist fjársvik og skjalafals og geti
varðað fangelsisrefsingu. Ummæl-
in séu með öllu tilhæfulaus enda
liggi fyrir að forsvarsmenn Festar
hafi aldrei gert athugasemdir við
gjaldtöku hans eða óskað eftir því
að Samkeppniseftirlitið grípi inn í
vegna hennar.
Virðingin beðið hnekki
Lúðvík byggir málatilbúnað sinn
á því að með birtingu umrædds
pistils hafi Trausti, sem ritstjóri og
ábyrgðarmaður Viðskiptablaðsins,
vegið með ólögmætum og einstak-
lega grófum hætti að æru og starfs-
heiðri Lúðvíks og enn fremur borið
á hann alvarlegar sakir um lögbrot.
Það liggi ljóst fyrir að virðing hans
hafi beðið hnekki sem og æra hans
og persóna.
Hann hafi, sökum starfa sinna og
stöðu í þjóðfélaginu, mikla hags-
muni af því að mannorð hans, æra
og starfsheiður haldist óflekkuð.
„Stefnandi er þjóðþekktur ein-
staklingur og sú umfjöllun sem
finna má um stefnanda í umræddri
grein er rætin og bornar á stefn-
anda alvarlegar sakir um lögbrot.
Ummæl in er u ær u meiða nd i
aðdróttanir sem eru bæði rangar
og bornar út og birtar opinberlega,“
segir í stefnunni.
Auk þess að gera kröfu um
ómerkingu fyrrnefndra ummæla
og miskabætur úr hendi ritstjóra
Viðskiptablaðsins krefst Lúðvík
þess að ritstjórinn verði dæmdur
til þess að greiða honum yfir fimm
hundruð þúsund krónur til þess að
kosta birtingu forsendna dómsins í
útbreiddu dagblaði, að því gefnu að
ritstjórinn verði dæmdur sekur um
meiðyrði.
Auk þess gerir hann þá kröfu að
Viðskiptablaðinu verði gert að birta
forsendur dómsins í blaði sínu og á
vef ekki síðar en sjö dögum eftir að
dómur gengur í málinu.
13:00-13:05 Kynning og fundarstjórn
Páll Gunnar Pálsson | forstjóri Samkeppniseftirlitsins
13:05-13:25 Frummælandi
Jonathan Baker
Rannsóknarprófessor við lagadeild
American University Washington College of Law
National champions and competition policy
13:25-14:30 Pallborðsumræður
Þátttakendur:
Fiona Scott Morton
prófessor í hagfræði við Yale University
School of Management
Gylfi Magnússon
Dósent í hagfræði við Háskóla Íslands
Jonathan B. Baker
Rannsóknarprófessor við lagadeild
American University Washington College of Law
Lars Sørgard
Forstjóri norska samkeppniseftirlitsins
Pierre Régibeau
Aðalhagfræðingur samkeppnisdeildar
framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
Umræðustjóri:
Valur Þráinsson
Aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins
COVID 19: HÆTTA Á AUKINNI VERNDARSTEFNU
OG VEIKARA EFTIRLITI MEÐ SAMKEPPNI?
Samkeppniseftirlitið býður til vefráðstefnu þar sem virtir fræðimenn á vettvangi samkeppnismála
beggja vegna Atlantshafsins ræða álitaefni sem skipta miklu í mótun samkeppnis- og
efnahagsstefnu á næstunni.
Varpað verður fram eftirfarandi spurningum:
• Þróun samkeppniseftirlits í Evrópu og Bandaríkjunum. Hvaða lærdóm geta stjórnvöld hvorum
megin Atlantshafsins dregið af reynslu hvers annars?
• Hvaða rök standa með og á móti því að til verði stór leiðandi fyrirtæki (e. national champions)
og hver yrðu áhrif slíkra fyrirtækja á samkeppni?
• Hversu líklegt má telja að núverandi efnahagssamdrætti verði svarað með aukinni verndarhyggju
og veikara eftirliti með samkeppni?
9. júní 2020
Skráning er á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins,
www.samkeppni.is
3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN