Fréttablaðið - 03.06.2020, Síða 28

Fréttablaðið - 03.06.2020, Síða 28
Það er áhugavert að lesa frásögn fyrrum seðlabankastjóra um að hann hafi losað höftin í hádegisverði í Washington DC árið 2014 og nokkrum dögum seinna farið til New York til að greina frá lausn- inni. Margir þeirra sem vilja vera leiðandi í þjóðmálaumræðu í landinu lögðu sig í framkróka við að bera blak af þeim sem í þessu máli gátu ekki talist annað en andstæðingar hagsmuna íslensku þjóðar- innar.   Nýútkomin bók Sigurðar Más Jónssonar „Afnám haftanna – samningar aldarinnar?“ hefur vakið talsverða athygli og umræðu á síðum Markaðar Frétta- blaðsins og víðar. Það þarf ekki að koma á óvart enda fjallar bókin um söguna á bak við einhverjar rót- tækustu efnahagsumbætur sem nokkurt ríki hefur ráðist í í seinni tíð. Aðgerðir sem á örskömmum tíma færðu Ísland úr því að vera þekkt sem gjaldþrota ríki (ranglega) í að teljast eitt velstæðasta land ver- aldar. Niðurstaða sem hinn reyndi lögmaður og ráðgjafi stjórnvalda, Lee Buchheit, kallaði einsdæmi í alþjóðlegri fjármálasögu. Fyrir vikið er Ísland í einstakri stöðu til að takast á við efnahagslegar afleið- ingar kórónuveirufaraldursins. Tekist á við ofurefli með óreyndum aðferðum Eins og nærri má geta gerist slíkt ekki vandræðalaust. Undir lágu gífurlegir hagsmunir og hagsmunir Íslands fóru ekki að öllu leyti saman við hagsmuni alþjóða fjármála- kerfisins. Meðal þeirra sem við var að eiga voru nokkrir af harðskeytt- ustu vogunarsjóðum heims. Þeirra á meðal voru sjóðir sem sérhæfa sig í að fjárfesta í skuldum fyrirtækja og ríkja í vanda og eru svo reiðubúnir að beita öllum brögðum í bókinni, ásamt öðrum sem ekki eru færð til bókar, til að hámarka ávinn- ing sinn. Fjárreiður þeirra og áhrif eru gríðarlega mikil og þeir skirr- ast ekki við að beita sér gagnvart stjórnmálamönnum og beita fyrir sig diplómötum eigin ríkja. Þegar hagsmunirnir hlaupa á hundruðum milljarða króna eru svo mútur eða hótanir ekki alltaf langt undan. Sú orrusta sem fram fór um efna- hagslega framtíð Íslands var lands- mönnum enda framandi. Hér var háð barátta með aðferðum sem f lestir Íslendingar höfðu aldrei kynnst og virtust landsmönnum sjálfsagt ólíkindalegar. Það er eðlilegt að fólk gjaldi varhug við nýmælum. Verra var þó að margir þeirra sem vilja vera leiðandi í þjóð- málaumræðu í landinu lögðu sig í framkróka við að bera blak af þeim sem í þessu máli gátu ekki talist annað en andstæðingar hagsmuna íslensku þjóðarinnar. Í huga viðkomandi skiptu innan- landsfordómar meira máli en raun- veruleiki umheimsins. Fyrir vikið var lítið gert úr tilraunum til að útskýra grundvallarátök um efna- hagslega hagsmuni Íslendinga. Þó skiptu ákveðnir fjölmiðlamenn sköpum í að draga fram eðli máls- ins. Aðferðafræðin byggðist á því að skapa réttu hvatana og því til útskýringar var vísað til „gulrótar og kylfu“. Stöðugleikaskilyrðin voru gulrót en stöðugleikaskatturinn var kylfan. Án kylfunnar hefði ásættan- leg lausn ekki náðst og þess vegna skipti sköpum að lögfesta stöðug- leikaskattinn. Það vakti sérstaka athygli mína við lestur greinar f yrr verandi seðlabankastjóra, sem birtist hér í Markaðnum fyrir tveimur vikum síðan, að talsvert er fjallað um gulrætur en hvergi minn- ist hann á kylfu. Það segir sína sögu um gangverk kerfisins. Því kemur ekki á óvart að sumum gremjist nú uppljóstranir sem birt- ast í bók Sigurðar Más. Það má hins vegar ekki valda því að við glötum tækifærinu til að læra af þeirri mikilvægu reynslu sem þar er lýst. Ef okkur auðnast ekki að læra af því sem best reynist og mestu máli skiptir er lítil von um framfarir. 1. Pólitísk forysta Mikilvægasti lærdómurinn af hafta- losuninni og uppgjöri bankahruns- ins er líklega sá að mesti og hraðasti efnahagslegi viðsnúningur sem nokkurt ríki hefur náð í seinni tíð er af leiðing pólitískra ákvarðana. „Allt orkar tvímælis þá gjört er“ en orðatiltækið á alveg sérstak- lega við um aðstæður þegar mikið liggur við. Við slíkar aðstæður þarf pólitíska forystu. Þegar taka þarf grundvallarákvarðanir dugar ekki að eftirláta kerfinu einu að reikna og taka ákvarðanir á svokölluðum „faglegum forsendum“. Hugtakið „fagleg ákvörðun“ hefur óneitanlega jákvæðara yfirbragð en „pólitísk ákvörðun“. Pólitísk ákvörðun er hins vegar oft „lýð- ræðisleg ákvörðun“. Ef við trúum því raunverulega að almenningur sé best til þess fallinn að ráða eigin örlögum hlýtur það að eiga sérstak- lega við um stóru málin. Kerfið metur hlutina á öðrum for- sendum en almenningur. Umfram allt forðast það áhættu, sérstaklega persónulega áhættu. Enginn vill sitja uppi með Svarta Pétur fari mál illa. Kerfið er ekki nýjungagjarnt, það vill almennt ekki gera það sem ekki hefur verið gert áður. Fordæmalaus vandamál kalla hins vegar á fordæmalausar lausnir. Slíkar lausnir finnast ekki nema með pólitískri forystu og ráðgjöf þeirra sem best þekkja til og þora að fara nýjar leiðir. Ákvarðanir sem lýst er í bók Sigurðar Más voru teknar í krafti lýðræðislegs umboðs. Í kosninga- baráttunni 2013 hafði ég verið afdráttarlaus um hvað til stæði fengi ég til þess stuðning. Það fór ekki fram hjá neinum. Raunar sner- ist kosningabaráttan að miklu leyti um gagnrýni á áformin. Það verður því ekki annað sagt en að þau hafi fengið lýðræðislega umræðu og jafnvel að hún hafi ráðið miklu um niðurstöðu kosninganna. Í kjölfarið tók við ríkisstjórn sem einbeitti sér að lausn málsins á nýjum forsend- um, með heildstæðri nálgun og með því að láta kröfuhafana vera farþega í rútunni í stað þess að vera í bíl- stjórasætinu. Það er einkennilegt, en kemur ef til vill ekki á óvart að fyrrum seðlabankastjóri skuli gera lítið úr þessum þætti í áðurnefndri grein sinni. 2. Traust og snjallt fólk Pólitískar ákvarðanir eiga hins vegar ekki að vera „ófaglegar“. Stjórnmálamenn þurfa að leita til þeirra sem eru best til þess fallnir að vinna með þeim að framkvæmd framfaramála. Það þarf ekki að vera fólk með fimm háskólagráður. Mestu máli skiptir að viðkomandi búi yfir innsæi og framtakssemi og sé treystandi. Í erfiðum málum vegur traust jafnvel þyngst. Við uppgjör bankahrunsins reyndist það þjóðinni einstaklega gæfuríkt að hópur snjallra manna reyndist reiðubúinn til að leggja sitt af mörkum til að leysa vandann. Við slíkar aðstæður getur einn maður skipt sköpum. Það reyndist til dæmis Íslendingum einstök gæfa að Sigurður Hannesson skyldi vinna að framgangi málsins. Þegar maður sem ég þekkti af því að vera ein- staklega snjall, réttsýnn og atorku- samur, en einnig traustur, fékkst til að vinna að málinu vissi ég að það færi vel. Þá skipti það sköpum að framkvæmdahópurinn (Benedikt Gíslason, Ásgeir Helgi Reykfjörð og Jón Sigurgeirsson auk Sigurðar) var samstilltur og vann jafnt og þétt að markmiðinu án þess að láta hindr- anir stoppa sig. Hópurinn ávann sér traust á skömmum tíma og bjó yfir áræðni sem átti stóran þátt í far- sælli niðurstöðu. Auk hins öf luga framkvæmdahóps kom margt fólk úr ólíkum áttum að verkefninu á mikilvægan hátt á ólíkum stigum eins og fram kemur í bók Sigurðar Más og ég mun fjalla nánar um síðar. 3. Eftirfylgni Það er hins vegar ekki nóg að hafa áætlun og trausta bandamenn. Áætlun er lítils virði ef ekki tekst að hrinda henni í framkvæmd. Þótt stjórnkerfinu sé ætlað að sjá um framkvæmd lýðræðislegra ákvarð- ana getur það reynst hindrun frem- ur en verkfæri. Þannig gerðist það til dæmis að á fundi þar sem fulltrúar Íslands gerðu talsmönnum vogun- arsjóðanna ljóst hvað til þeirra frið- ar heyrði drógu hinir síðarnefndu fram skýrslur Seðlabanka Íslands máli sínu til stuðnings. Við slíkar aðstæður skiptir sköpum að þeir sem hafa tekið að sér að framfylgja hinum lýðræðislega vilja haldi sínu striki. Þessu eru gerð ágæt skil í bókinni þar sem vísað er til þess að þáverandi seðlabankastjóri mátti ekki til þess hugsa að stöðugleika- skatturinn væri mjög hár og alls ekki yfir 30% af ótta við viðbrögð kröfuhafanna. Á það var ekki fallist enda hefði það veikt stöðu Íslands. Stjórnkerfið gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki en það eru ýmsar ástæður fyrir því að kerfið hagar sér eins og það gerir. Aðal- atriðið er að stjórnmálamenn séu meðvitaðir um verkaskiptinguna milli þeirra sjálfra og stjórn- kerfisins. Það er hlutverk stjórn- málamanna að marka stefnu og framfylgja henni ásamt þeim sem þeir treysta til verksins. Því fylgir ábyrgð og stjórnmálamenn þurfa að vera reiðubúnir til að standa eða falla með ákvörðunum sínum. Hlut- verk stjórnkerfisins er hins vegar að framfylgja hinum lýðræðislega vilja án þess að þurfa að bera ábyrgð á honum. Í því samhengi unnu starfs- menn Seðlabankans og stjórnar- ráðsins ákaflega gott starf. Aðferð sem virkaði Aðgerðirnar sem skiluðu þeim efnahagslega viðsnúningi sem gerir okkur nú kleift að takast á við mestu niðursveif lu í 100 ár voru afrakstur þess að greina vandann, finna lausnirnar og veita pólitíska forystu. Hins vegar hefði þessi atburðarás verið ómöguleg væri Ísland ekki fullvalda ríki. Við höfðum tækifæri til að vera okkar eigin gæfu smiðir og gátum sniðið lausnir að því sem hentaði okkur. Það er áhugavert að lesa frásögn fyrrum seðlabankastjóra um að hann hafi losað höftin í hádegis- verði í Washington DC árið 2014 og nokkrum dögum seinna farið til New York til að greina frá lausninni. Ekki hafði hann þó fyrir því á sínum tíma að greina þáverandi forsætis- ráðherra frá hugmyndum sínum. Án „kylfu“ og pólitískrar forystu hefði málið ekki hlotið eins far- sælan endi og raun bar vitni. Þegar ég leitaðist við að halda málstað Íslands á lofti benti ég oft á full- veldisréttinn og hvaða varnir hann veitti landsmönnum, ekki síst með því að veita trúverðuga kylfu. Þetta þótti sumum forkastanlegt og má sjá þess merki í grein fyrrum seðla- bankastjóra. Með því að halda full- veldisréttinum til haga, vísa í ýmsar útfærslur kylfunnar, fá traust og snjallt fólk að málinu og fylgja því eftir tókst að losa höftin með ótrú- lega góðum árangri. Að því komu margir en niðurstaðan var háð því að til þess bærir aðilar tækju réttar ákvarðanir. Það gekk eftir og ætti að vera verðmæt reynsla til að ná árangri í framtíðinni. Það þurfti kylfu og gulrót  Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, á ársfundi Seðlabankans árið 2014. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.