Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 40
ÞEGAR GESTIR GANGA INN Í SALINN GETA ÞEIR ANDAÐ AÐ SÉR SÝNING- UNNI Í EINU VETFANGI, EN EF LITIÐ ER NÆR, SÉR FÓLK AÐ HVERT LISTAVERK ER Í RAUN HEIMUR ÚT AF FYRIR SIG.Sýningin efni:viður stendur yfir í Hafnarborg og er hluti af HönnunarMars sem að þessu sinni fer fram 24.-28. júní. Unnur Mjöll S. Leifsdóttir er sýningar- stjóri og valdi verkin á sýninguna. „Á þessari sýningu er góð blanda af hönnuðum og listafólki sem vinnur verk sín úr viði, hugmyndin er að tef la saman listafólki með mismunandi bakgrunn og ólíkar áherslur í myndmáli,“ segir Unnur. „Þegar gestir ganga inn í salinn geta þeir andað að sér sýningunni í einu vetfangi, en ef litið er nær, sér fólk að hvert listaverk er í raun heimur út af fyrir sig.“ Verkin eru saman í stóru rými sem Unnur segir að hafi á tíma- bili verið reynt að skipta upp. „Við settum upp lausa veggi til að hólfa verkin af, en það gekk ekki, það varð of mikil spenna í rýminu. Þannig að við ákváðum að leyfa rýminu að vera mjög opið. Þannig verður til samtal á milli verkanna og um leið eru töfrar í hverju verki. Öll verkin á sýningunni búa yfir sérstöku aðdráttaraf li, áferð og lögun, sem mann langar nær ósjálfrátt til að strjúka og elta með fingrunum, en það er að sjálfsögðu bannað, þannig að fólk verður að láta sér nægja að horfa.“ Ævintýralegur bekkur Meðal verka má nefna verkfæra- kassa úr viði eftir Sindra Leifsson. „Hann tók trjábol í sundur, sem sagt opnaði hann langsum og þar sjáum við hólf sem mótar fyrir exi. Sindri setti litlar hengjur á bolinn, þannig að verkið er fallegur, skringilegur skúlptúr, sem er hálfpartinn að þykjast vera verkfærakassi,“ segir Unnur. Um verk Rósu Gísladóttur segir Unnur: „Þetta verk sá ég í Berg Con- temporary og heillaðist mjög af því. Þetta eru tveir turnar, annar stend- ur og hinn liggur, og þeir mynda geometrísk spíralform í anda rúss- neska konstrúktífismans. Efnis- notkunin er látlaus og verkið unnið úr sköftum úr renndum harðviði. Verkið teiknar svo skugga á gólfið og aðeins upp á vegg.” Unndór Egill Jónsson á einstak- lega fallegt verk á sýningunni, sem er bekkur. „Hann var að vinna nýtt verk þegar ég hafði samband við hann og vildi setja það á sýning- una. Þetta er bekkur úr birki og evrópskri hnotu, þar sem hönnun og myndlist sameinast fullkom- lega. Unndór vann viðinn mikið á ákveðnum stöðum, en aðrir hlutar verksins fá að njóta sín á náttúru- legan hátt. Þessi bekkur er eins og áður óþekkt skepna og má ímynda sér að fæturnir sem eru úr íslensku birki séu uppstoppaðir afturfætur af dýri,“ segir Unnur. Skógarilmur mætir gestum Verk Aðalheiðar Eysteinsdóttur sýnir börn sem hún hefur unnið úr viði. „Ég er nýkomin úr fæðingaror- lofi og tók þetta verk í fangið,“ segir Unnur. „Þegar maður horfir á það fer maður bæði á fallega staði og óhugnanlega. Þetta er óþægilegt listaverk en um leið svo hugljúft, maður hugsar til f lóttafólks, til mis- munandi aðstæðna einstaklinga og einnig til þess kraftaverks sem barnsfæðing er.“ Á sýningunni er ilmsturta sem unnin er af Nordic Angan, hönn- unarteymi. Gengið er inn í rými þar sem ilmsturtan stendur og skógar- ilmur umlykur mann. Vitanlega yndisleg upplifun. Guðjón Ketilsson er í hópi þeirra listamanna sem á verk á sýning- unni, en það sýnir fjall og spegil- mynd þess. Hann var á svæðinu og lýsir verki sínu fyrir blaðamanni: „Ég sá fyrir mér spegilslétt vatn og fjall sem speglast í því. Baráttan við að gera þetta verk fólst í því að skapa spegilmynd. Það var dálítil stærðfræði.“ Þessi áhugaverða og fallega sýn- ing stendur til 23. ágúst. Töfrar í hverju einasta verki Á sýningu í Hafnarborg er hönnuðum og listafólki teflt saman. Meðal verka, sem öll eru unnin úr viði, eru ilmsturta, glæsilegur bekkur og verkfærakista. Þátttakendur Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Agustav (Ágústa Magnúsdóttir og Gustav Jóhannsson), Björn Steinar Blumenstein, Guðjón Ketilsson, Indíana Auðuns- dóttir, Nordic Angan, Rósa Gísladóttir, Sindri Leifsson, Tinna Gunnarsdóttir og Unndór Egill Jónsson. Unndór Egill Jónsson gerði þennan fallega bekk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Listafólk með mismunandi bakgrunn og ólíkar áherslur sýnir verk sín á sýningu í Hafnarborg Hafnarfirði. Þar eru öll verkin unnin úr viði. Skemmtilegur verkfærakassi eftir Sindra Leifsson. Verk Aðalheiðar Eysteinsdóttur sýnir börn sem hún hefur unnið úr viði. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is BÆKUR Tíbrá Ármann Jakobsson Útgefandi: Bjartur Fjöldi síðna: 295 Tíbrá ber nafn með rentu. Hér er á ferð skemmtileg glæpasaga, sem er einmitt fyrst og fremst það; glæpa- saga, sem verður seint flokkuð með spen nut r yl lu m eða hrollvekjum þeim sem eru svo algengar í dag. Sagan stendur og fellur með glæpn- um, framkvæmd hans og f léttunni í kringum hann og eins og í öllum góðum glæpasögum þurfa lesendur sífellt að vera á varðbergi. Hver er morðinginn? Hvert er mótífið? Og svo er það stærsta spurningin sem gerir söguna nokkuð einkennilega: Hver er glæpurinn nákvæmlega? Fjórir menn fara saman á rjúpu í ríkmannlegum bústað á hálendinu. Mennirnir eru allir ólíkir í persónu- leika og útliti, þekkjast lítið og líkar raunar ekki sérlega vel hverjum við annan. Saman f lækjast þeir í atburðarás, sem reynist f lóknari en þá grunaði í fyrstu og á eftir að breyta lífi þeirra varanlega. Sagan er sögð á skemmtilegan hátt og er skipt nokkuð ört um sjónarhorn milli kaf la og skipta persónurnar þannig frásögninni jafnt á milli sín. Lesandinn fær því innsýn inn í líf mannanna fjögurra og auðvitað rannsóknarteymisins, sem bregður hér aftur á leik. Það samanstendur af gamalreynda rannsóknarlögreglumanninum Bjarna, hinni hreinlyndu Margréti Krabbe, unga folanum Njáli og loks aðalstjörnunni Kristínu, sem er öllu margræðari og f lóknari per- sónuleiki, eins og alvöru norrænni rannsóknarlögreglu sæmir. Tíbrá er þriðja spennusaga Ármanns um rannsóknarteymið en er sjálfstætt framhald hinna bókanna. Ármanni tekst hér vel upp. Sagan er ekki aðeins skrifuð á skemmtilegan hátt þar sem frá- sagnargleði höfundarins nýtur sín vel, heldur er hún vel uppbyggð og vex ásmegin með hverjum kaflan- um þar til loks að leysist úr gátunni og lesendur fá svör við spurningum sínum. Hnyttni virðist höfundinum í blóð borin og geta lesendur notið lærðra orðaleikja og vísana í Íslend- ingasögurnar, sem ber nokkuð á út alla bókina. Pólitískt réttlæti og önnur samtímamál eru einnig tekin fyrir en þó ekki á þann týpíska, þrá- láta og leiðinlega máta sem mönn- um hættir til sækjast í. Ármann gætir þess að staldra ekki of lengi við þessar hugleiðingar, heldur rétt drepur á þær á gamansaman hátt og heldur svo áfram með söguna. Bókin hefst á hversdagslegum nótum og í fyrstu er lesandanum ómögulegt að sjá í hverju spennan og dulúðin felast, sem eru svo ómiss- andi þættir góðrar glæpasögu. Hann verður þó að hafa nafn bókarinnar í huga; hún er ekki öll þar sem hún er séð eins og síðar kemur í ljós. Þegar upp er staðið er sagan vel heppnuð. Tíbrá er skemmtileg glæpasaga sem er laus við alla tilgerð og leiðinlegan, norrænan grámann, sem vill svo oft fylgja krimmunum. Óttar Kolbeinsson Proppé NIÐURSTAÐA: Skemmtileg og frumleg saga af óvenjulegum glæp. Fléttan kemur skemmtilega á óvart. Ekki allt sem sýnist 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.