Fréttablaðið - 03.06.2020, Side 41
Sýningin Út frá einu og yfir í annað stendur yfir í Listasal Mosfellsbæjar. Þar sýnir Ásgerður Arnar-dóttir skúlptúra og tvívíð verk.
„Í verkunum á sýningunni er ég
að leika mér með endurtekningar,“
segir Ásgerður. „Skúlptúrarnir eru
þrír og gerðir úr leir, en auk þeirra
sýni ég teikningar og prentverk
sem sýna mismunandi eiginleika
skúlptúranna. Þannig er ég að sýna
fram á hversu margt er hægt að gera
við hvern skúlptúr og varpa um
leið fram mörgum mismunandi
útfærslum og sjónarhornum.“
Ólík sjónarhorn
Sem dæmi má nefna að hún límir
teikningar af skúlptúrunum á
sjálfa skúlptúrana. Eins konar sam-
bland af ljósmyndum og stafrænum
prentverkum, sem unnin eru eftir
skúlptúrunum, eru einnig uppi á
veggjum. Sum verkin eru í ramma
en önnur ekki. „Með þessu er ég að
skapa ólík sjónarhorn og sýna hvað
samhengið skiptir miklu máli.
Mynd í ramma verður allt annað
en mynd sem er límd á vegg og er
ekki í ramma,“ segir Ásgerður. Sýn-
ingin fjallar sömuleiðis um í hvaða
listmiðil er hægt að staðsetja hvert
verk, þar sem sum verkin eru unnin
á mörkum ýmissa miðla.
Notar sama hlutinn oft
Þetta er þriðja einkasýning Ásgerð-
ar, sem útskrifaðist úr Listaháskól-
anum árið 2018. „Þetta er fyrsta
sýningin sem ég held þar sem
konseptið skiptir meira máli en
fegurðargildið. Þessi sýning þarf
ekki að vera falleg, áherslan er á
að sýna alls konar útgáfur af sama
skúlptúrnum. Ég nota sama hlutinn
oft og reyni að finna eitthvað nýtt
við hann. Ég er sömuleiðis að skoða
áferð og efniskennd.“
Ásgerður segir að listsköpun gefi
sér mikið en hún er líka gagnrýnin á
eigin verk. „Ég er endalaust að skapa
og geri oft verk sem mér líka ekki, en
það koma alltaf verk á milli sem ég
er hæstánægð með. Ég lifi fyrir þau
augnablik þegar ég sé að eitthvað í
listsköpun minni er að virka.“
YFIRSKRIFT TÓN-
LEIKANNA – HLJORÐ
– ER NÝYRÐI ÁSTU FANNEYJAR,
SAMSETT ÚR ORÐUNUM
„HLJÓГ OG „ORГ.
ÞESSI SÝNING ÞARF
EKKI AÐ VERA FALLEG,
ÁHERSLAN ER Á AÐ SÝNA ALLS
KONAR ÚTGÁFUR AF SAMA
SKÚLPTÚRNUM.
Leikur með alls kyns endurtekningar
Ásgerður Arnardóttir sýnir skúlptúra og tvívíð verk í Listasal Mosfellsbæjar. Notar
sama hlutinn oft og skapar ólík sjónarhorn. Segist vera mjög gagnrýnin á eigin verk.
Ásgerður Arnardóttir í sýningarsalnum í LIstasal Mosfellsbæjar. Þetta er þriðja einkasýning hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Verk á sýningu listakonunnar.
Hjá Fold uppboðshúsi stendur nú yfir vefuppboð á mynd-list, með úrvalsverkum val-
inna listamanna. Vegna aðstæðna í
þjóðfélaginu eru þessi verk, sem alla
jafna færu á hefðbundið uppboð í
sal, boðin upp á netinu. Verkin má
bæði skoða á vefnum og í galleríinu,
Rauðarárstíg, á opnunartíma þess.
Plexiglerverk eftir Eyborgu Guð-
mundsdóttur verður boðið upp, en
afar sjaldgæft er að verk eftir hana
komi í sölu. Verkið var á sýningu
Eyborgar í Norræna húsinu 1975.
Verk eftir hinn færeyska Sámal
Joensen Mikines eru einnig sjaldgæf
sjón á uppboðum hér á landi, en nú
er boðið upp olíumálverk eftir hann
sem sýnir sjómenn sigla úr vík við
strendur Færeyja.
Vefnaður eftir þær Barböru
Árnason og Júlíönu Sveinsdóttur
er á uppboðinu, en báðar listakon-
urnar eru þekktar fyrir að vinna
í þann miðil auk þess að mála og
þrykkja. Verk Barböru er frístand-
andi skilrúm í þremur hlutum, sem
sýnir Þorgeirsbola, en verk Júlíönu
er f latvefnaður með abstrakt form-
um. Á uppboðinu er einnig fallegur
bronsskúlptúr eftir Nínu Sæmunds-
son, fyrstu konuna til að gera högg-
myndalist að ævistarfi.
Fimm verk eftir Jóhannes S. Kjar-
val, landslagsmálverk eftir Jón Stef-
ánsson, málverk af verkamanni eftir
Jóhann Briem og glæsileg abstrakt
mynd eftir Nínu Tryggvadóttur,
eru öll boðin til sölu. Vatnslita-
myndir eftir Gunnlaug Blöndal og
Ásgrím Jónsson, meðal annars frá
því snemma á ferli hans, eru einn-
ig á uppboðinu. Verk eftir sam-
tímamyndlistarmenn verða einnig
boðin upp.
Uppboðið stendur yfir á netinu til
10. júní, en hægt er að skoða verkin
hjá Fold uppboðshúsi við Rauðarár-
stíg og einnig á vefnum uppod.is.
Úrvalsverk
á uppboði
Nína Sæmundsson, en bronsskúlpt-
úr eftir hana er á uppboðinu.
Sunnudaginn 7. júní kl. 20, lýkur sjöunda starfsári tónleika-raðarinnar Hljóðanar í Hafnar-
borg, með tónleikum Ástu Fanneyjar
Sigurðardóttur, listakonu og skálds,
og Svans Vilbergssonar, gítarleikara.
Yfirskrift tónleikanna – HLJORÐ – er
nýyrði Ástu Fanneyjar, samsett úr
orðunum „hljóð“ og „orð“.
Á tónleikunum f léttast ný og
nýleg verk Ástu Fanneyjar saman
við gítareinleiksverk í f lutningi
Svans eftir Haf liða Hallgríms-
son, Huga Guðmundsson, Scott
Wollschleger og fleiri.
Hljóðön er tónleikaröð tileinkuð
tónlist 20. og 21. aldar, þar sem ein-
stök hugmyndaauðgi og listræn
glíma tónskálda leiðir áheyrendur
inn á áður ókunnar slóðir. Hafnar-
borg efnir hér til tónleikaraðar þar
sem ætlunin er að kynna ólík verk
samtímatónskálda úr fremstu röð. Í
forgrunni eru verk sem fá best notið
sín við þær aðstæður og miklu nánd
Hljóðön lýkur
Svanur Vilbergsson gítarleikari.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
sem býðst í sal Hafnarborgar, sem
telja má sérstakan í flóru tónlistar-
sala á höfuðborgarsvæðinu.
Ásta Fanney Sigurðardóttir
vinnur meðal annars með tóna,
hljóð og orð í verkum sínum, ásamt
gjörningum. Hún hefur sýnt og flutt
verk sín, ljóð og gjörninga á ýmsum
hátíðum og sýningum bæði hér-
lendis og erlendis.
Svanur Vilbergsson hefur haldið
einleikstónleika víða um heim,
meðal annars í Bandaríkjunum,
Hollandi, Spáni, Englandi, Belgíu
og Írlandi. Hann hefur komið fram
í sjónvarpi í Bandaríkjunum og á
Spáni.
Heitustu
grillin!
weber.is
Kolagrill
Gasgrill
Rafmagns
grill
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 2 0