Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
SMELLTU Á VÖRU OG
ÞÚ FERÐ BEINT INN Í
VEFVERSLUN
DORMA.IS
SUMAR
tilboðin
Sumarið er
komið í DORMA
verslaðu á dorma.is eða í
DORMA
verslun og við sendum þé
r það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
Zone og Affari og smávara
2-11 | RÚM 12–23 | Mjúkv
ara og dúnn 24–27 | Stólar
28–29 | Sófar 30–37 | Sve
fnsófar 38–39
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Sumarið er komið í DORMA
Verslaðu á dorma.is
LICATA
2ja og 3ja sæta sófar
Sófarnir eru í tvennskonar litum af Kentucky áklæði. Annarsvegar
koniak og hinsvegar steingráu. Svartir nettir járnfætur. Stærð 2ja
sæta: 159 x 94 x 82 cm. Stærð 3ja sæta: 199 x 94 x 82 cm
2ja sæta Dormaverð: Aðeins 119.990 kr.
3ja sæta Dormaverð: Aðeins 149.990 kr.
VERÐ
ER GOTT
VERÐ
DORMA
3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
DAG HVERN LESA
93.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
Sesselja og Markús við verkið Björgun úr sjávarháska eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Árni hefur haft mikinn áhuga á hjólreiðum frá tvítugsaldri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í dag er alþjóðlegur dagur reið-hjólsins og af því tilefni hafa Hjólafærni Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Landssam-tök hjólreiðamanna tekið höndum saman og ætla að
bjóða upp á hjólatúr með leiðsögn.
Hjólað verður um Vesturbæinn í
Reykjavík og Seltjarnarnesið og
útilistaverk skoðuð með leiðsögn
frá listfræðingnum Markúsi Þór
Andréssyni, deildarstjóra sýninga
og miðlunar hjá Listasafni Reykja-
víkur. Á morgun er byrjað í Hafnar-
húsinu og þaðan farið vestur í bæ og
niður á Ægisíðu.
„Á þeirri leið eru ýmis verk, eins
og súlurnar á Hagatorgi og stytta
Ásmundar af björgun úr sjávar-
háska. Þaðan förum við um Sel-
tjarnarnesið sem státar af ýmsum
fallegum verkum og við ætlum að
enda í Golfskálanum í hressingu
eftir hjólatúrinn,“ segir Markús.
Fyrsti túrinn á vegum þessara
þriggja samstarfsaðila var farinn á
fullveldisdaginn 1. desember, árið
2018.
„Það var á hundrað ára afmæli
fullveldisins. Hjólafærni og Lands-
samtök hjólreiðamanna hafa
lengi átt í góðu samstarfi en þarna
nálguðumst við Listasafn Reykja-
víkur með þá hugmynd að bjóða
upp á túr í sameiningu. Hann gekk
vonum framar, þrátt fyrir mikið
frost og vind. Þetta var alveg svaka-
lega kaldur dagur en alveg ótrú-
lega skemmtilegur,“ segir Sesselja
Traustadóttir, framkvæmdastjóri
Hjólafærni á Íslandi.
Sólfarið góður hvíldarstaður
Eigið þið ykkar uppáhaldsútilista-
verk sem borgarbúar gera notið í
reiðhjólatúrum í sumar?
„Ég hlakka til að staldra við grá-
sleppurnar hennar Steinunnar
Þórarinsdóttur, verkið Flóð og fjara
í göngustígnum á Ægisíðu, það er
verk sem mikill fjöldi borgarbúa
gengur eða hjólar hjá en staldrar ef
til vill ekki svo oft við, því það fer
lítið fyrir verkinu,“ segir Markús.
„Það listaverk sem f lestir hjól-
reiðamenn sjá á sinni leið er senni-
lega uppáhaldsverkið en það er
Kvika eftir Ólöfu Norðdal. Annars
uppgötvar maður alltaf ný verk í
þessum ferðum og þá tekur maður
betur eftir þeim og kann betur að
meta útilistaverkin,“ segir Árni,
formaður Landssamtaka hjólreiða-
manna.
„Mér finnst alltaf skemmtilegast
að stoppa hjá Sólfarinu. Það er
líka góð áning, það er gott að hvíla
sig þar. Mér finnst svo frábært að
þegar þú hjólar þessa helstu hjól-
reiðastíga, þá hjólar þú ekki fram
hjá neinum búðum, þú hjólar bara
fram hjá listaverkum.“
Skammast sín fyrir bílastæðið
Markús segir hjólreiðar kannski
ekki stóran part af sínu lífi.
„En ég hef unun af því að hjóla
um og það er frábær leið til að skoða
listaverkin í borginni. Í fyrra vorum
við í safninu með sérstaka áherslu
á list í almannarými og útbjuggum
smáforritið Útilist í Reykjavík. Þar
var hljóðleiðsögn og ýmsar leiðir
sem hægt er að ganga eða hjóla og
njóta leiðsagnar um verk í ólíkum
hverfum borgarinnar,“ segir Mark-
ús.
Árni hefur lengi haft mikinn
áhuga á öllu tengdu hjólreiðum.
„Ég hef náttúrlega hjólað frá því
ég var barn. Ég byrjaði síðan að
hjóla af einhverri alvöru til sam-
gangna upp úr tvítugu og síðan
hefur þetta verið einn af þeim sam-
göngumátum sem ég nýtt mér til
að komast á milli staða. Það er svo
í kringum árið 2008 sem ég fer að
taka þátt í hagsmunabaráttu hjól-
reiðamanna,“ segir Árni.
Það er um áratugur síðan Sesselja
hóf störf fyrir Hjólafærni á Íslandi,
og hefur áhugi hennar á hjólreiðum
aukist mikið á þeim tíma.
„Þegar ég keypti húsið mitt fyrir
fjórtán árum síðan þá var það fyrsta
sem ég hugsaði: Hvað get ég búið til
mörg bílastæði í kringum húsið
mitt? Í dag skammast ég mín fyrir
þetta eina bílastæði sem eftir er. Ég
var hérna áður eins og klassískur
Íslendingur en svo sá ég ljósið,“ segir
Sesselja og hlær.
Hjólreiðatúrinn hefst við Lista-
safn Reykjavíkur í dag klukkan
18.00. steingerdur@frettabladid.is
Listaleiðsögn á hjólum
Í dag er boðið upp á hjólreiðatúr um Vesturbæinn og Seltjarnarnes
þar sem öll helstu útilistaverkin eru skoðuð. Markús Þór Andrés-
son, Sesselja Traustadóttir og Árni Davíðsson kynna viðburðinn.