Bændablaðið - 18.06.2020, Page 55

Bændablaðið - 18.06.2020, Page 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júní 2020 55 Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 2,1% frá yfir­ standandi ári og verður 9.429 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir árið 2021. Þetta er umtalsvert minni hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 6,1% á landinu öllu. Hækkun á Vestfjörðum Heildarfasteignamat á höfuðborgar­ svæðinu hækkar um 2,2% en um 1,9% á landsbyggðinni. Þar af er mest hækkun á Vestfjörðum eða 8,2%, um 6,5% á Norðurlandi vestra, 3,5% á Austurlandi og um 2,2% á Suðurlandi, 1,9% á Norðurlandi eystra, um 0,4% á Vesturlandi og lækkun um 0,5% á Suðurnesjum. Af einstaka bæjarfélögum hækkar heildarfasteignamat mest á Ísafirði, eða um 11,2%, um 8,8% í Akrahreppi og 8,5% í Tálknafjarðarhreppi og á Blönduósi. Mest lækkun er í Skorradalshreppi og Sveitarfélaginu Vogum þar sem fasteignamatið lækkar um 3,6%. Almennt eru litlar breytingar á aðferðarfræði fasteignamats á milli ára. Aðferð við lóðarmat var endurskoðuð auk þess sem hætt er að að nota sérstaka matsaðferð á búgarða. Einnig er verið að endurskoða hlunnindamat jarða og færa það til nútímahorfs. Að öðru leyti er helsta breytingin hagnýting á gervigreind sem styrkir núverandi aðferðarfræði og líkanagerð við fasteignamat. Íbúðarmat hækkar mest í Akrahreppi Samanlagt mat íbúða á öllu landinu hækkar um 2,3% á milli ára og verður alls 6.511 milljarðar króna, þar af hækkar sérbýli um 2,2% á meðan fjölbýli hækkar um 2,4%. Almennt er hækkun á íbúðarmati á höfuðborgarsvæðinu 2,4% en 2,1% á landsbyggðinni. Fasteignamat íbúða hækkar mest í Akrahreppi en þar hækkar íbúðarmatið um 17,8%, á Ísafirði um 15,5% og í sveitarfélaginu Ölfusi um 15,2%. Mestu lækkanir á íbúðamati eru í sveitarfélaginu Vogum þar sem fasteignamat íbúða lækkar um 5,2%, Í Vopnafjarðarhreppi lækkar matið um 3,6% og í Reykjanesbæ þar sem fasteignamat íbúða lækkar um 3,3%. Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 1,7% á landinu öllu; um 1,6% á höfuðborgarsvæðinu en um 1,9% á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár Íslands. /MÞÞ BÝ TIL HVAÐ SEM ER - GERI VIÐ ALLT Laghentur smiður ferðast um landið og tekur að sér verkefni. • Kjarnaborun, allar stærðir af borum. • Steypusögun, múrbrot. Fræsun fyrir gólfhita. • Viðhald og viðgerðir á öllu, s.s. raftækjum. • Geri við sumarbústaði, smíða hvað sem er inn í hús. Drífandi ehf. S. 777-8371 - Netfang: gunnariceman@gmail.com Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is OKKAR ÆR OG KÝR — STARTARAR OG ALTERNATORAR — Járnsmíðafyrirtæki er að hætta og því er allt til sölu hjá okkur, þar á meðal nafnið og kennitala 1976, alls konar vélar, líka fyrir tré, auk þess eru ýmsir efnisafgangar til sölu. Stálprýði Sjá heimasíðuna okkar www.stalprydi.is/bunadur Upplýsingar í s. 581-3050. Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla. Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi. Sendum um allt land. www.pgs.is pgs@pgs.is s 586 1260 Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík Alternatorinn eða startarinn bilaður? Hvað er í boði fyrir ferðamenn? Verið velkomin í viðskipti Nýtt auglýsingapláss í Bændablaðinu beinir sjónum að fjölbreyttri ferðaþjónustu innanlands. Býður þú upp á gistingu, mat eða afþreyingu? Komdu þinni þjónustu á framfæri á auðveldan og hagkvæman hátt í Bændablaðinu. Auglýsingastjóri Bændablaðsins gefur nánari upplýsingar um birtingar í síma 563-0303 og netfangið gudrunhulda@bondi.is Þín auglýsing birtist í 32 þúsund eintökum Bændablaðsins sem kemur út á tveggja vikna fresti. Pakkatilboð: Birtingar í þremur tölublöðum Bændablaðsins á kr. 30.000 + vsk. Stærðin er 81 mm (breidd) x 40 mm (hæð). Við aðstoðum við uppsetningu ef þarf gegn vægu gjaldi. Óska eftir Er að leita mér að Ford Bronco, ástand skiptir litlu máli. Uppl. í síma 842-0507. Óska eftir vel með förnum lið- léttingi. Helst MultiOne eða Avant 4x4. Aukahlutir mini digger/backhoe, ámokstursskófla, gaffall. Skoða allt, er á Norðurlandi. Uppl. í síma 899- 7013. Óska eftir Cat hjólaskóflum til útflutnings. Mjög hagstætt gengi til útflutnings. Upplýsingar í síma 847-6628. Óska eftir að kaupa Volvo Lapplander í gangfæru ástandi eða í pörtum. Einnig óskast orginal Lapplander kerra. Hef áhuga á að heyra sögu Lapplander á Íslandi og annarra Volvo-fornbíla. Uppl. í netfangið konrad@korabiewski.com og síma 697-9389. Atvinna Enskur karlmaður, 34 ára, leit- ar að fullri vinnu við sauðfjárbú. Getur verið í fullri vinnu fram yf- ir sauðburð árið 2021. Uppl. í s. +4407980864926 eða á facebook. com/S.Normannsson.Sherdding Tuttugu og tveggja ára frönsk stúlka óskar eftir vinnu á sveitabæ. Hefur reynslu af bústörfum. Nánari uppl. elea.nomine@gmail.com og síma +33686479696. Starfsmaður óskast á kúabú fram í Eyjafirði. Um er að ræða fullt starf. Reynsla af vinnu við bústörf æskileg, ekki skilyrði. Upplýsingar á netfang: vgs@vgs.is. Einkamál 65 ára karlmaður sem býr á Akureyri, óskar eftir að kynnast konu á svipuðum aldri. Uppl. í síma 462- 1176 og 856-2269. Jarðir 1,3 ha í Reykjalandi, Mosfellsbæ til sölu á kr. 19,5 millj. Einnig 8 ha við Sandsfjall í Kjós á kr. 14,9 millj. Uppl. í síma 848-3377. Þjónusta Tek að mér viðgerðir á flestum tegundum sjálfskiptinga. Hafið samband í s. 663-9589 til að fá uppl. og tilboð. HP transmission, Akureyri. Netfang: einar.g9@gmail. com, Einar G. Tek að mér almenna girðingarvinnu og viðhald á girðingum. Hreinn s. 866-9588, Sveitadurgur ehf. Umtalsvert minni hækkun á fasteignamati en ætlað var – 2,2% hækkun á höfuðborgarsvæðinu Bænda 2. júlí

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.