Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Side 10
Þorbjörg Marínósdóttir tobba@dv.is Svanhvít er alin upp alls staðar að eigin sögn þó að hún líti helst til Breið- holtsins sem síns hverfis í æsku. Hún ólst upp til sjö ára aldurs hjá móður sinni og fluttu þær mæðgur mjög oft. Sjö ára fór hún á fóstur- heimili fyrir norðan, á Grund í Eyjafirði, í eitt ár áður en hún flutti til föður síns. Rótleysið var því mikið og Svanhvít varð mjög snemma ábyrg og fullorðnaðist fljótt. „Ég varð ófrísk 18 ára og átti Sölku dóttur mína 19 ára og var þá í námi í hárgreiðslu. Fjölskylda Þorra, barnsföður míns, er dásamleg og hann var alveg með barnið til móts við mig þótt við höfum ekki verið saman,“ segir Svanhvít en hana hefur aldrei skort gott fólk í kringum sig þó að blóð- skylt baklandið hafi verið tak- markað. „Ég bjó með Hrönn vinkonu minni og Árna, þá- verandi kærasta mínum og bróður hennar, þegar Salka fæddist. Þarna bjuggum við unglingarnir þrír saman,“ segir Svanhvít og hlær og á þá við systkinin Hrönn Sveins- dóttur, framkvæmdastýru Bíó Paradísar, og Árna Sveinsson kvikmyndagerðarmann. „Þetta var náttúrlega al- gjört djók á þessum tíma. Ég var að reyna að halda heimili en það var ekkert vinsælt hjá hinum unglingunum að ég væri að ryksuga á morgnana. Við vorum í raun meira eins og systkini,“ segir Svanhvít sem kynntist svo eiginmanni sínum Georg rúmu ári síðar. Í dag eru þau fimm manna fjölskylda, elsta dóttirin býr í Bretlandi en hin fjögur í mið- borginni. Laumaði sófanum inn „Við Georg kynntumst á skemmtistaðnum Thomsen og dönsuðum þar fram undir morgun. Ég var þó ekki tilbú- in að hleypa neinum inn í mitt líf verandi með lítið barn. En hann var þrjóskur og ég þakka honum í dag fyrir það,“ segir Svanhvít sem þvertók fyrir að kærastinn gisti þegar dóttirin var heima. „Ég bjó á þessum tíma með tveimur vinkonum mínum. Önnur þeirra átti barn á sama aldri og Salka svo það var dá- samlegt að fá að búa saman. En þegar ég flutti í eigin íbúð fór Georg að koma sér betur fyrir. Hann hægt og rólega bara flutti inn. Hann fór að koma með dót og skilja það eftir. Smám saman urðu þetta stærri hlutir, eins og dj-græj- urnar og einn sófi sem þurfti að geyma. Ég tók eiginlega bara ekki eftir því þegar hann flutti inn,“ segir Svanhvít og hlær innilega. Ævintýraþráin togaði hjóna- leysin fljótlega til útlanda en þau bjuggu um tíma í Bret- landi og á Spáni þar sem Svanhvít vann bæði sem hár- greiðslukona og enskukenn- ari á meðan Georg flaug út og suður við upptökur á plötum og í hljómleikaferðalög og kom svo heim inni á milli þegar færi gafst. „Þetta er bara hans vinna og ég vand- ist þessu fljótt að hann væri að fara og koma. Ég er alveg sjálfri mér næg þó að lífið sé alltaf skemmtilegra með honum.“ Gátu ekki hætt að hafa áhyggjur „Við bjuggum um tíma í Gi- rona á Spáni sem er stórkost- legur staður. Við vorum að keyra um Spán og enduðum einhvern veginn alltaf þarna. Þetta var æðislegt. Við vor- um þarna í tvö og hálft ár og bjuggum um tíma í kringlóttu húsi sem var gömul vatns- mylla.“ Ævintýrið tók þó snarpan enda fjórum mánuðum eftir að dóttir þeirra Elena kom í heiminn. „Elena verður lasin fljótlega eftir að hún fæðist. Fær vanvirkan skjaldkirtil og gulu. Það er fylgst vel með henni þarna úti en hún fær kýli á gagnaugað sem fer ekki. Ég fékk á tilfinninguna að það væri eitthvað meira að þrátt fyrir að okkur væri ítrekað sagt að hún hlyti að hafa rekið sig í og að þetta ætti bara að jafna sig. Við tókum strax þá ákvörð- un að flytja heim og vera nær fjölskyldunni okkar. Hún er bara fjögurra mánaða og þetta kýli fer ekki. Hérna heima er okkur sagt af þremur ís- lenskum læknum að þetta séu bara hausamótin að jafna sig, þetta sé bara fituhnúður og að við þurfum ekki að hafa áhyggjur. En við gátum ekki hætt að hafa áhyggjur. Þetta er barnið okkar.“ Eftir ítrekaðar læknisheim- sóknir er Elena sett í segulóm- skanna og í ljós kemur að hnúðurinn er æxli. „Hún var með æxli úti um allan líkam- ann. Í rifbeinunum, mjöðm- unum, úti um allt höfuðið. Þarna er hún rúmlega fimm mánaða. Krabbameinið sem hún greindist með heitir his- tiocytosis og við tók krabba- meinsmeðferð. Hálft ár í lyfjameðferð og svo stanslaus tékk. Ég er í raun í sóttkví með hana heima í heilt ár því svona lítið barn er ekki komið með ónæmiskerfi. Spritt í for- stofunni og Georg fór bara út í búð og ég hékk úti í glugga. Þetta var mjög erfitt fyrir Sölku, sem var þá sex ára. Hún fór í skólann en gat ekki fengið neina vini í heimsókn. Það voru örfáir sem fengu að koma inn á heimilið. Georg var mikið í burtu vegna vinnu og Adda vinkona mín hélt mér gangandi. Hún mætti, þvoði sér og sprittaði og kom og skemmti mér. Við gátum fíflast saman. Það var nauð- synlegt.“ Aðspurð um andlega líðan á þessum erfiða tíma segist hún ekki hafa leyft sér að hugsa um veikindin og hvað gæti gerst. „Þetta var bara normið. Ég sé það núna þegar ég horfi til baka hvað þetta var erfitt. En sem betur fer er gerð þessa sjúkdóms þannig að þetta krabbamein kemur ekki aftur. Þetta er mjög sjald- gæft.“ Brunuðu í bæinn eftir ár Við tóku rólegri tímar heima á Íslandi. Svanhvít fór aftur að vinna þegar sú stutta náði Eru með ævin- týralega áætlun Svanhvít Tryggvadóttir og Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar, eru einstaklega jákvæð og kraftmikil hjón. Dóttir þeirra greindist með krabbamein aðeins fjögurra mánaða gömul svo að heimilið var sett í sóttkví í heilt ár. Í dag standa hjónin í erfiðum málaferlum og vita í raun ekki hvort þau verða heimilislaus þegar yfir lýkur. Svanhvít og Georg eru einstaklega lunkin við að skemmta hvort öðru í samkomubanni. Hann litaði t.d. á henni hárið á milli þess sem þau sinntu fjöldamörgum fjarklúbbum sínum. MYNDIR/ SIGTRYGGUR ARI 10 FRÉTTIR 17. APRÍL 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.