Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Page 12
þó ekki ávísun á ríkidæmi þó
að hljómsveitin sé ákaflega
vel þekkt og vinsæl. „Þetta er
auðvitað gífurlega mikil vinna
og það eru forréttindi að geta
lifað af því sem maður elsk-
ar að gera. Við höfum getað
keypt okkur heimili og keypt
það sem við viljum í matinn en
þetta eru alls engar stórkost-
legar fjárhæðir og nú virðist
sem ekkert muni sitja eftir,“
segir Svanhvít og vísar í skatt-
rannsókn sem hefur haldið
fjölskyldunni í heljargreipum
í rúmlega þrjú ár.
„Þetta er í raun og veru
þannig að við ákváðum að
vera með lögheimili á Íslandi
og greiða alla okkar skatta
hingað. Við kunnum ekkert á
það og réðum því erlent stór-
fyrirtæki með útibú á Íslandi
til að sjá um okkar mál. Við
vorum þar með virtan endur-
skoðanda sem svo ákveður
eftir nokkur ár að fara frá fyr-
irtækinu og stofna sitt eigið.
Við ákváðum að fylgja honum
enda hafði allt bara gengið
vel, eða svo héldum við.
Við erum að borga fyrir
þjónustu sem við kunnum
ekki á og svo kemur þetta
reiðarslag. Það var bara allt
í volli. Ég veit ekki einu sinni
hvernig hann fór að þessu en
hann hafði ekki verið að gera
hlutina rétt og já, við vorum
bara gapandi. Það höfðu bara
ekki verið staðin skil á okk-
ar málum.“ Allir meðlimir
Sigur Rósar voru með sama
endurskoðanda og lentu allir
í málaferlum. Hver meðlimur
er rannsakaður sér og endur-
skoðandinn sér.
„Þetta var rosalegt andlegt
sjokk og í raun algjör rússí-
bani. Við gerum fyrst bara
grín að þessu og gerum okkur
engan veginn grein fyrir um-
fanginu. Við bara skiljum
þetta ekki. Svo tekur þetta
allt svo langan tíma og maður
fer úr því að hlæja og dembist
niður rússíbana og fer úr því
að gera grín og yfir í að kom-
ast ekki fram úr á morgnana.“
Á þessum tíma var Svan-
hvít að vinna við upptökur á
íslenska sjónvarpsþættinum
Ráðherranum en var algjör-
lega í kjallaranum andlega.
„Ég reyndi að girða mig í
brók og mæta á tólf tíma vakt
og búa til gott sjónvarps-
efni. Það var á köflum mjög
Þetta var rosa-
legt andlegt sjokk
og í raun algjör
rússíbani.
Fjölskyldan hefur nýtt samkomubannið til að tileinka sér heimakennslu fyrir skútuflutningana miklu.
12 FRÉTTIR 17. APRÍL 2020 DV