Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Qupperneq 14
erfitt og það kom dagur sem ég brotnaði algjörlega niður. Ég er ákaflega þakklát sam- starfsfólki mínu í Ráðherr- anum sem hélt þétt utan um mig á þessum tíma.“ Aðspurð um hvort hún hafi upplifað óvild í garð þeirra hjóna eftir að fréttir um meint skattsvik hljómsveitarinnar komust í fjölmiðla árið 2016 segir hún svo ekki vera. „Ég upplifði bara ótrúlega mikla velvild. Þegar við komumst að þessu greiddum við þessa vangoldnu skatta ásamt vöxt- um og þetta eru rosalegar fjárhæðir sem við áttu ekki til en sem betur fer eigum við ótrúlegt fólk að. Tengda- móðir mín seldi sumarbústað- inn sinn og lánaði okkur fyrir þessu. Allar okkar eignir, það er að segja húsið okkar, voru frystar svo við gátum ekkert selt og það vildi enginn banki lána okkur í þessari stöðu.“ Georg og Svanhvít borguðu skuldina sem hljóp á tugum milljóna. Þau héldu að með því lyki málinu en svo var ekki. Þá fór dómsmál í gang þar sem lágmarks sekt er 200% ef þau verða fundin sek. Þetta hefur oftar en einu sinni verið dæmt ólöglegt af Mannrétt- indadómstóli Evrópu. Er þá lagt upp með að þau hafi vís- vitandi stungið undan skatti og þá með saknæmum hætti. Um það snýst dómsmálið sem í dag hefur flakkað á milli Landsréttar og héraðsdóms og nú í febrúar vísaði Lands- réttur málinu aftur í hérað. „Við stöndum með snöruna utan um hálsinn uppi á kolli og vonum að það verði ekki sparkað í kollinn. Burt séð frá því hvernig þetta mál fer þá erum við að safna upp lögfræðikostnaði upp á tugi milljóna króna. Þó að þetta fari á besta veg þá erum við alltaf að tapa. Við gætum tapað öllu. Mér líður eins og það sé búið að dæma okkur sek áður en málið hefur verið tekið fyrir. Það er allt fryst og allt okkar líf sett í biðstöðu.“ Ævintýraleg áætlun og stórkostleg ást Fjölskyldan dó þó ekki ráða- laus og fljótlega eftir að í ljós kom að þau gætu tapað heim- ili sínu fóru hugmyndirnar að koma. „Við hugsuðum að við sem fjölskylda yrðum að tækla þetta sem eining. Og þá kviknaði þessi hugmynd um að kaupa litla skútu og ferðast um heiminn og búa á henni. Við fengjum litla íbúð- arkytru fyrir sama pening og skútu.“ Lífið sem fylgir skútu- draumnum er þó óneitanlega ævintýralegra. „Ævintýraþráin tók yfir. Við höfum búið á Íslandi frá 2004 og ákváðum að gera bara ævin týri úr þessu. Nýtt upp- haf.“ Stelpurnar voru til í að fylgja ævintýralegum áætl- unum foreldra sinna og síð- astliðið ár hefur farið í undir- búning. Georg tók pungapróf og fjölskyldan byrjaði að selja hluti af heimilinu og leggja fyrir í skútusjóð. Þau ætla að lágmarka eigur fjölskyld- unnar við það sem kemst með á skútuna litlu. „Við ætluðum að leggja af stað í september en það mun dragast eitthvað sökum faraldursins en við förum þegar við getum. Þó að það verði í janúar. Við tökum þetta bara á flæðinu, en við ætlum að fara.“ Svanhvít og Georg hafa vakið athygli á samfélags- miðlum fyrir skemmtilegar hugmyndir í samkomubanni og það er nokkuð ljóst að þau geta skemmt sér vel saman og fjölskyldan hefur mikið hug- myndaflug. Þau hafa verið að streyma í beinni löngum púlstundum sínum, stýrt spurningakeppnum fyrir stór- fjölskylduna í gegnum fjar- fundabúnað, verið með fjar- saumaklúbba og danspartí í eldhúsinu. „Þetta ástand hefur í raun undirbúið okkur vel undir ferðalagið. Stelpurnar eru búnar að vera í heima- kennslu og við höfum þurft að skemmta hvert öðru og blessunarlega finnst mér þau geggjaðslega skemmtileg. Ég hef satt besta að segja sjaldan verið eins félagslega virk og í þessu samkomubanni. Við erum með öll þessi fjarfunda- forrit, Zoom, Houseparty, Whereby, Bluejeans og allt þetta. Þetta er bara eins og að velja bar. Hvar eigum við að hittast? Ég hef bara engar áhyggjur af okkur fjölskyld- unni saman á báti.“ Aðspurð um hvort hjóna- bandið hafi aldrei verið komið að þolmörkum í því álagi sem þau hafa búið við í bland við fjarlægð og veikindi. „Nei, alls ekki. Aldrei. Við erum bara sterkari. Við giftum okkur eiginlega þrisvar. Fyrst var ég í kjól úr Kolaportinu hjá sýslu- manni, svo vorum við með ásatrúarbrúðkaup, mjög „low budget“ og gestirnir komu með veitingar en algjörlega dásam- legt. Og nú síðast endurnýjuð- um við heitin erlendis. Þetta er alveg neglt. Við verðum sam- an,“ segir hún og brosir. Framtíðin er, þrátt fyrir kvíðablandna bið eftir örlög- unum, björt hjá fjölskyldunni. „Við erum öll hraust og okkur líður vel saman. Vonandi verð- ur bara enginn sjóveikur.“ n Við fengjum litla íbúðarkytru fyrir sama pening og skútu. Svanhvít er fljót að koma auga á jákvæðu hliðarnar hverju sinni. Því skal ekki undra að félagslífið blómstri hjá henni í samkomubanni. 14 FRÉTTIR 17. APRÍL 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.