Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Qupperneq 18
Þ orsteinn Víglundsson lét af þingmennsku á dögunum og tók við
yfirmannsstöðu á hinum al-
menna vinnumarkaði. Þessar
fréttir voru ágæt tilbreyting
frá fregnum af fyrrverandi
stjórnmálamönnum sem
kvarta sáran undan því að fá
ekki atvinnu við hæfi eftir að
hafa yfirgefið stjórnmálin (sér
í lagi ef flokkur þeirra er ekki
í aðstöðu til að veita þeim bit-
linga).
En hvers vegna ætti Þor-
steinn ekki að geta sinnt
hvoru tveggja, yfirmanns-
stöðu í fyrirtæki og þing-
mennsku? Er rétt að líta á
störf á Alþingi eða í sveitar-
stjórnum sem eiginlega at-
vinnu þar sem menn öðlast
starfsreynslu? Eiga þessi
störf ekki í reynd meira sam-
merkt með félagsstörfum?
Fram á sjöunda áratug
síðustu aldar var fátítt að
menn gegndu þingmennsku
eingöngu. Samkomutími Al-
þingis var fremur stuttur og
nálega allir alþingismenn
sinntu öðrum störfum með-
fram þingmennskunni. Einu
atvinnustjórnmálamennirnir
voru þá þeir sem gegndu ráð-
herradómi hverju sinni.
Prófessorar, verkalýðs
leiðtogar og bankastjórar
Ef litið er á starfsheiti þing-
manna árið 1965 kemur í ljós
að þá sátu á Alþingi fimm
bændur, fimm framkvæmda-
stjórar, fjórir ritstjórar, þrír
bankastjórar, þrír bæjar- og
sveitarstjórar og tveir pró-
fessorar. Sömuleiðis tveir
verkalýðsleiðtogar, kaup-
maður, múrari, stýrimaður og
svo mætti áfram telja. Þarna
mátti finna mikla breidd í
störfum, en flestir höfðu náð
langt á sínu sviði.
En það var einmitt um þær
mundir sem farið var að tak-
ast á um það á Alþingi hvort
þingmennskan ætti að vera
fullt starf. Eysteinn Jónsson,
formaður Framsóknarflokks-
ins, vildi að menn legðu fyrir
sig þingmennsku sem eigin-
legan starfsvettvang. Bjarni
Benediktsson, forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæð-
isflokksins, var honum ósam-
mála. Að mati Bjarna væri
þingmönnum nauðsynlegt að
gegna samhliða öðrum störf-
um úti í þjóðlífinu. Til þing-
starfa ættu að veljast menn
sem áunnið hefðu sér traust,
hver á sínu sviði.
Eyjólfur Konráð Jónsson,
ritstjóri Morgunblaðsins og
alþingismaður, varaði við því
um 1970 að þingmennskan
yrði gerð að aðalatvinnu
manna. Hann taldi væn-
legra að fá góða menn til að
gefa kost á sér til setu á Al-
þingi hefðu þeir fullvissu
um að þeir gætu sinnt þing-
mennskunni samhliða öðrum
störfum.
Svissneskir þingmenn
í hlutastarfi
Svo fór að sjónarmið fram-
sóknarmanna varð ofan á í
þessu efni og atvinnumennsk-
an á Alþingi jókst hratt. Nú
er svo komið að nær allir
þingmenn hafa lífsviðurværi
sitt eingöngu af stjórnmála-
vafstri. Slíkt fyrirkomulag er
þó ekki óumflýjanlegt. Sviss-
neska sambandsþingið í Bern
kemur saman fjórum sinnum
á ári í um það bil þrjár vikur í
senn. Ef þörf krefur er efnt til
viðbótarsamkomu. Svissnesk-
ir stjórnmálamenn vilja síst
af öllu vera kallaðir atvinnu-
menn í pólitík. Hugmyndin
þar í landi er sú að þingmenn
í hlutastarfi séu í betri tengsl-
um við starfslíf úti í þjóð-
félaginu. Einu atvinnustjórn-
málamennirnir á svissneska
þinginu eru ráðherrarnir átta.
Thomas Minder, sem kjörinn
var stjórnmálamaður ársins í
Sviss 2013, rekur snyrtivöru-
verksmiðju. Í viðtali kvaðst
hann umfram allt líta á sig
sem athafnamann, en þar á
eftir sem öldungadeildarþing-
mann utan flokka.
„... ask a busy man to do it“
Atvinnumennskan í stjórn-
málum hefur raunar gengið
lengra hér en í nágrannalönd-
unum því allir borgarfulltrú-
ar Reykjavíkur, 23 að tölu, eru
atvinnupólitíkusar og „fyrstu
varaborgarfulltrúar“ á hverj-
um lista svo að segja líka, en
þeir eru átta. Slíkt fyrirkomu-
lag þekkist ekki einu sinni í
milljónaborgum Norðurlanda.
Ég kynntist vel Páli Gísla-
syni, yfirlækni og borgar-
fulltrúa, og leyfi mér að
fullyrða að hann hafi komið
fleiru til leiðar í borgarstjórn
en flestir þeir sem þar sitja
nú – í fullu starfi. Í ensku er
stundum tekið svo til orða: „If
you want anything done, ask
a busy man to do it.“ Í þessu
felast mikil sannindi. Við
hljótum að vilja að til þátt-
töku í stjórnmálum veljist
vinnusamt hæfileikafólk og
hví ekki gefa fólki færi á að
taka þátt í stjórnmálunum í
hlutastarfi?
Að auka traust á
stjórnmálunum
Kannski er hér fundin ein
helsta skýringin á því hvers
vegna traust á Alþingi og
borgarstjórn er farið veg
allrar veraldar. Dugmiklir
einstaklingar ætla ekki að
fórna þeim árangri sem þeir
hafa náð í starfi fyrir þátttöku
í stjórnmálum – enda ætlast
til þess að þeir ýti öllu öðru
til hliðar.
Hér má líka spyrja sig hvort
almennar stjórnmálaumræð-
ur eigi ekki umfram allt að
fara fram á vettvangi frjálsra
félagasamtaka. Þær þurfa
ekki að eiga sér stað í sal Al-
þingis í hverri viku. Þingið
er vettvangur lagasetningar.
Fólk sem sinnti þingmennsku
í hlutastarfi gæti til að mynda
ekki leyft sér að ræða við
sjálft sig í pontu Alþingis vik-
um saman eins og nýverið átti
sér stað. Ætla má að með því
að draga úr atvinnumennsk-
unni væri hægt að auka veru-
lega traust almennings á ís-
lenskum stjórnmálum. n
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
NOKKRIR KUNNIR STJÓRNMÁLAMENN SEM SINNTU ÖÐRUM STÖRFUM SAMHLIÐA STJÓRNMÁLUM
Guðmundur H. Garðarsson
Blaðafulltrúi SH og
formaður VR
Alþingismaður
1974–1978 og
1987–1991
Guðmundur J. Guðmundsson
Formaður
Dagsbrúnar
Alþingismaður
1979–1987
Hannibal Valdimarsson
Forseti ASÍ
Alþingismaður
1946–1978
Vilhjálmur Egilsson
Framkvæmda-
stjóri Verslunar-
ráðs Íslands
Alþingismaður
1991–2003
Adda Bára Sigfúsdóttir
Veðurfræðingur
Borgarfulltrúi
1962–1966
Gísli Halldórsson
Arkitekt og
forseti ÍSÍ
Borgarfulltrúi
1958–1974
Páll Gíslason
Yfirlæknir og skáta-
höfðingi
Borgarfulltrúi
1974–1998
Úlfar Þórðarson
Læknir
Borgarfulltrúi
1958–1978
Sigrún Magnúsdóttir
Kaupmaður
Borgarfulltrúi
1986–2002
Þórir Kr. Þórðarson
Prófessor
Borgarfulltrúi
1962–1970
ERU STJÓRNMÁL EIGINLEGA ATVINNA?
Allir alþingis
menn og
borgarfull
trúar eru nú
atvinnustjórn
málamenn. Á
sama tíma er
atgervisflótti úr
stjórnmálunum.
Fólk sem sinnti þingmennsku
í hlutastarfi gæti til að
mynda ekki leyft sér að ræða
við sjálft sig í pontu Alþingis
vikum saman eins og nýverið
átti sér stað.
18 EYJAN 17. APRÍL 2020 DV