Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Blaðsíða 21
FÓKUS 21 Áhrifavaldar sem hafa fengið skammir frá Neytendastofu Neytendastofa hefur eftirlit með duldum auglýsingum á samfélags- miðlum, ásamt öðru, og tekur við ábendingum frá almenningi. Í nóv- ember í fyrra greindi Neytenda- stofa frá því að áhrifavaldarnir Sólrún Diego og Tinna Alavis hefðu brotið lög með duldum aug- lýsingum á samfélagsmiðlum. Neytendastofa birti tvær ákvarðanir í fyrra er varða duldar auglýsingar sem báðar voru tengdar bílaumboðinu Heklu. Í öðru tilvikinu var það áhrifa- valdurinn og tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti sem auglýsti fyrir Heklu á sínum miðlum. Árið 2018 voru áhrifavald- arnir Fanney Ingvarsdóttir og Svana Lovísa Kristjáns- dóttir áminntir fyrir að dylja auglýsingar á mynda- vélum á blogg- síðunni Trendnet. Auglýsingar á tímum kórónuveirunnar Eins og Davíð Lúther segir hafa margir áhrifavaldar farið að aug- lýsa þjónustu sem er hægt að nýta heima. Nýja streymisveitan Viaplay kom á íslenskan markað fyrir stuttu og hefur nýtt sér þjónustu nokkurra íslenskra áhrifavalda til að koma sér á framfæri. Áhrifavaldarnir Manuela Ósk Harðardóttir, Fanney Ingvarsdóttir, Linda Ben og Brynjólfur Löve hafa nýlega auglýst streymisveituna á sínum miðlum. Áhrifavaldurinn Tanja Ýr auglýsti á dögunum peysu úr netverslun. Áhrifavaldurinn Fanney Dóra auglýsir jakka úr Vero Moda, sem býður einnig upp á netverslun. Sunneva Einarsdóttir, einn vinsælasti áhrifavaldur Íslands, auglýsti hvítt nærfatasett úr erlendri netverslun. Birgitta Líf hefur lengi verið í samstarfi með Nike. Hér auglýsir hún útivistarfatnað frá merkinu. DV 17. APRÍL 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.